Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 25

Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 25
Barnateppi Barnateppi Barnateppið á þessari mynd er prjónað úr einföldum plötulopa með vöffluprjóni á prjóna nr. 3%—4. Kanturinn í kring er um 5 cm breið- ur. Hann er prjónaður með perlu- prjóni um leið og vöffluprjónið. Þetta teppi er um 70x80 cm, fitjaðar upp 100 lykkjur. Heklað er í kring með takkahekli. Perluprjón er þannig, að í hverri umf er prj 1 sl og 1 br, pr á enda og sama 1 ævinlega prj eins frá báð- um hliðum. Vöffluprjón Lykkjufjöldi deilist með 2. Vöffluprjón er aðeins hægt að prjóna fram og aftur. 1. umf: 1 sl, bregðið bandinu um prjóninn, farið ofan í næstu I (eins og brugðna 1) og takið hana fram af óprjónaða. Látið lausa bandið liggja yfir lykkjuna. Endurtakið frá byrjun. Prjónið þannig alla umf. A prjónin- um eru nú til skiptis einfaldar og tvö- faldar lykkjur. 2. umf: Einfalda lykkjan er nú prjónuð slétt ásamt þeirri lykkju sem liggur undir lausa bandinu. Lausa bandið er því næst flutt yfir á hægri handar prjón. 3. umf (raunverulegt klukkuprjón): Tvöföldu lykkjurnar eru prjónaðar sléttar (teknar saman), einföldu lykkjurnar eru teknar fram af óprjón- aðar, eftir að bandinu hefur verið brugðið um prjóninn. Farið alltaf of- an í lykkjuna þegar hún er tekin fram af. Prjónið áfram til skiptis 2. og 3. umf. A réttunni vöffluprjón, á röngunni klukkuprjón. HUGUR OG HÖND 25

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.