Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 32
Gleraugnah-ús
Saumuð gleraugnahús eru einkar skemmtileg vinargjöf.
Við gerð þeirra gefst tækifæri til að velja eigin liti, mynzt-
ur og vinnuaðferðir og gefa eða eignast með því persónu-
lega og smekklega muni.
Gleraugnahúsin má vinna á tvo vegu. Stærð þeirra má
hafa að vild, með eða án botns, en skal þá ath. að hann
gefi nokkurt rými. Snið fylgir fyrir venjuleg gleraugu, en
annars má finna hæfilega stærð með því að mæla hæð
og breidd þeirra gleraugna, sem sauma skal utanum.
Efni: Þéttofið og fremur þunnt ullar-, hör- eða bóm-
ullarefni. Fóður í lit, er fer vel við efnið og er ágætt að
það sé nokkuð voðfellt og með mattri áferð, svo gler-
augun renni síður til. Sem millilag má nota millifóður-
striga og verða þá gleraugnahúsin mjúk og létt, eða
þunnan bókbandspappa, sem ekki brotnar og verða þau
þá hörð og sterkleg. Saumgarn má hafa af ýmsum gerð-
um og grófleika, einnig perlur og smáhluti til áherzlu
lita og mynzturs.
Velja má milli hinna ýmsu saumgerða, sem sýndar eru á
bls. 19 og 20 og sauma með mörgum mismunandi aðferðum
og fer það eftir mynztri og litavali. Mynztrið má búa til
með ýmsu móti, hafa það fíngerðar leikandi línur, ein-
föld stór fyllt form, skorninga fyrir bótasaum, eða marga
litla fleti, er mynda heild. Ágætt er að teikna mynztrið
á efnið með kalkipappír í þeim lit, er hæfir því, t. d.
hvítum. Hefur það þann kost, að útlínur hverfa að mestu
í útsauminn. Einnig er ágætt að teikna á efnið í gegnum
gataða smjörpappírsörk og nota til þess steinolíu og þar
til gerðan áteikningarlit. Festist þessi litur mun betur i
efnið en litur kalkipappírsins, en er bá um leið erfiðara
að fjarlægja hann.
Að útsaumi loknum er pressað á mjúku stykki, svo
útsaumurinn bælist ekki. Síðan sniðin með 1% sm. saum-
fari, stærðin mörkuð með nákvæmri merkiþræðingu og
aðgætt að hliðarnar liggi eftir þræði.
Sníðið fóðrið örlítið minna. Ágætt er að vinna helm-
ingana jafnhliða. Veljið millilagið, annaðhvort þunnan
pappa eða tvöfalt millifóður, sem stungið er eða straujað
saman. Sveigið brúnirnar inn á við svo stykkin verði svo-
lítið íhvolf. Leggið örþunna bómullar- eða vattþynnu
á ytri hlið millilagsins, látið eyðast við brúnirnar og
límið með þunnu límlagi. Leggið síðan útsaumaða stykkið
yfir framhliðina, látið merkiþræðinguna nema við brúnir
og límið saumfarið inn á rönguna, eða heftið langsum
og þversum með löngum tvinnasporum á röngu og strekk-
ið dálítið um leið. Brjótið inn af fóðrinu, hafið það 2 mm.
minna en ytra stykkið og þræðið vandlega svo hornin
verði ávöl. Staðsetjið fóðrið, nælið og leggið fínlega niður
við í höndum með samlitum tvinna. Vinnið botninn á
sama hátt og hliðarnar, en hafið fóðrið 4 mm. fyrir innan
brúnirnar. Leggið nú helmingana saman, byrjið um 6
sm. frá efstu brún, og saumið með varpspori, eða jaðrið
brúnirnar saman þéttum sporum. Staðsetjið botninn og
gangið frá á sama hátt.
Ganga má frá brúnum gleraugnahúsanna á ýmsa vegu.
Snúa, flétta eða hekla snúru úr skreytilit eða ríkjandi
garnlit mynztursins, eða hafa hana samlita efni eða fóðri.
Einnig má ganga frá með þræðispori, sem látið er liggja
að mestu á réttu, svo það hylji tvinnasporin. Mjög
heppilegt er einnig að velja eina saumgerð sem saumað
var með og taka í brúnir beggja helminganna til styrktar
um leið og saumað er. H.Á.