Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 01.06.1973, Qupperneq 35

Hugur og hönd - 01.06.1973, Qupperneq 35
6. Þá er prjónuð önnur umferð rjett. Þá er tekið úr á oddinum á hælprjónunum, þangað til að jafnt er orðið á þeim og ristarprjónunum. (Tekið saman í fyrra skiftið, en steypt yfir í seinna skiftið). 2 umferðir prjónaðar á milli. 7. Þá er prjónaður framleisturinn, og er hann jafn- margar umferðir, frá tungunni, og lykkjurnar, sem upp eru fitjaðar á 3 prjónum, að frádregnum 2 umferðum. 8. Totan. Þá er tekið úr á hliðunum í annari hvorri umferð, og höfð ein lykkja fyrir utan hvoru megin. Steypt yfir í fyrra skiftið, en tekið saman í seinna skiftið. -— Prjónað yfir síðast. Dregið upp úr, þegar tvær lykkjur eru á prjón. 9. Háleistana skal pressa vel með blautu stykki, láta þá taka sig vel og klippa síðan allar illhærur alt í kring. 10. Festa leistana sarnan með bandenda með lítilli slaufu í tá og að ofan (innri borðin), þegar framleitt er til sölu. 11. Merkja leistana annaðhvort með merkimiðum, ef til eru, eða með ræmu úr stífu brjefi, og stinga hana þá með samfestingu að ofan, svo það detti ekki af. A rjett- unni er nr. háleistanna, en á bakinu nr. konunnar, sem prjónar. 12. Fara hreinlega með prjónlesið, þareð ekkert er þvegið. 13. Prjóna aldrei hnúta með, en sauma á misvíxl endana. 14. Búnta saman 12 og 12 pör, binda saman á tveim stöðum. 15. Lengd á framleist: nr. 7 og 8: 18 og 20 sm. nr. 9 og 10: 22 og 24 sm. nr. 11 og 12: 26 og 28 sm. 16. Leistarnir þurfa að hafa vissa þyngd til þess að vera góð verzlunarvara. Af nr. 7 og 8 má fá 8 pör úr kg. •— -— 9 og 10 má fá 6 pör úr kg. -----11 og 12 má fá 4 pör úr kg. Ef leistarnir ná ekki þessari þyngd, eru þeir ónýtir og ónothæf verzlunarvara. 17. Prjónar úr bambusreir eru hentugastir á leistana, þeir eru ljettir, ekki brothættir, góðir fyrir hendurnar. Laghentur maður tálgar þá með vasahníf sínum. Vargakjaftar Nú á tímum dralons, nylons og annarra gerfiefna eru viðgerðir á sokkum svo til úr sögunni. En sokka- plögg verða alla jafna fyrir mestu sliti við notkun og þvotta. Þó reyndi enn meir á slitþol meðan notaðir voru heimaunnir sokkar og skór. Yar þá gripið til ýmissa ráða svo sokk- arnir mættu duga sem lengst, því hirðing þeiri'a og viðgerð var tíma- frek og seinleg. Algengt var að prjóna nýja tá og hæl á gamla sokka, eða alveg nýjan framleist. Ein aðferð er e.t.v. ekki eins þekkt, en það eru svokallaðir „vargakjaftar“ sem hér birtist mynd af. Fitjaðar eru upp jafnmargar lykkj- ur og eru á sokkbolnum, og prjónað slétt sem svarar til hæðar á hæl. Þá er prjónaður í mislitur aukaþráður. Prjónið áfram framleistinn að tá- úrtöku, þar er prjónaður aukaþráður í helming lykkja. Nú er fyrri tátotan prjónuð. Þá er aukaþráðurinn við tána tekinn úr og lykkjurnar teknar upp á 4 prjóna og önnur tá prjónuð eins og sú fyrri. Næst er að pi'jóna hæltoturnar. Aukaþráður er dreginn úr helming af lykkjunum, þær teknar upp á 4 prjóna og fyrri hællinn prjónaður. Þá er aukaþráðurinn tekinn alveg burt, lykkjurnar teknar upp og seinni hæl- totan prjónuð eins og sú fyrri. Þegar sóla átti sokka með þessum „vargakjöftum“ var klippt upp úr hliðunum lykkjað sundur milli tánna og fékkst þá nýr hæll, sóli og tá á eitt par af sokkum. V.P. HUGUR OG HÖND 35

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.