Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 37

Hugur og hönd - 01.06.1973, Side 37
Hekluð „kósakka- húfa” Efni: í kollinn er undið saman mórauður hespulopi og sauðsvart tvíband, einn þráður af hvoru. 1 skyggni, hnakka- og eyrnaskjól er sauðsvart tvíband undið þre- falt. Heklunál nr. 3 eða 3%. Þensla: 5 1 og 4^2 umf. fastahekl = 5x5 sm. Lykkjuhekl: Það er h fram og tilbaka, ein lykkjuumf og ein umf keðjuhekl til skiptis. Lykkjurnar myndast á þeirri hlið er frá snýr þegar heklað er, eða þannig: Ein 1 á n * b vafið um vinstri vísifingur eins og þegar prjónað er fast, n stungið í næstu 1 fyrri umf og b, sem liggur um fingurinn dr í g, hefur þá myndazt lykkja um fingurinn. Garninu br um nálina og dr í g 2 1, fingurinn dreginn úr lykkjunni *. Endurtakið frá * til *. Keðjuhekl er h þannig, að farið er í hverja 1 fyrri umf, dr upp 1, sem dr er áfram í gegnum 1 á n = ein keðjul. Fastahekl: Ein 1 á n. Farið er í næstu 1 fyrri umf, dr upp 1, b br um n og dr í gegnum báðar 1 á n = ein fastal. Húfukollur: Hann er h með fastah. Fitjað er upp í hvirflinum 4 loftl., lagðar í hring og lokað með keðjul. H eru 10 fastal í hringinn. í næstu 9 umf er aukið út um 5 1 í hv umf, eða þar til komnar eru 55 fastal. Þá er hekl. án aukn., þar til dýpt húfukollsins er orðin um 21 sm., eða hæfileg, síðan klippt á þráðinn og gengið frá honum. Skyggni: Það er h með lykkjuhekli í 21 miðlykkjurnar að framan. H eru 8—10 lykkjuumf. í síðustu tveimur umf er minnkað um 2 1 í hvorri hlið, eina í byrjun og enda umf. Endað er með 1 umf keðjuh. og klippt á þráð- inn. Hnakka- og eyrnaskjól. Þau eru einnig hekluð með lykkjuhekli í þær 1, sem eftir eru af húfukantinum. Ií eru 4 lykkjuumf og endað með keðjuh. Þá eru eyrnaskjól li í 10 1 hvoru megin (14 1 eftir við miðju að aftan), farið er tvisvar í fyrstu og síðustu 1 svo aukist út í 12 1. H 6 lykkjuumf, þá er fækkað um 1 1 í hverri hlið næstu umf, en 2 1 í hvorri hlið í þar næstu umf. Nú eru 6 I eftir, í þær er h fastah. um 6 umf. H er hneppsla öðrum megin, en annars eru böndin lengd nokk- uð eigi þau að vera hnýtt. H að lokum til styrktar 1 umf með keðjuh. í brúnir hnakka- og eyrnaskjóla. Brotið er inn af skyggninu að ofan og því tyllt við húfuna. H. Á. HUGUR OG HÖND 37

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.