Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 7

Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 7
2. bragð. Augu manna eru líka að opnast fyrir því að eigulegri er hlutur sem að- eins er til af eitt eintak en sá sem er fjöldaframleiddur. Og margir kunna vel að meta listrænt gildi þeirra muna sem framleiddir eru á verkstæði Jens. Það þróar handverkið ef kaupendur vilja listrænt gildi og persónulegan stíl. Þetta sjónarmið viðskiptavina hefur gert Jens og samherjum hans kleift að starfa á handverksgrundvelli og jafnframt þroskað þremenningana í listiðn sinni. Margir fylgjast grannt með því sem gerist á verkstæði Jens, því að þar hjakka menn ekki í sama farinu ár eftir ár. Þar á sér stað viss þróun og framför og breytingar eru stöðugar í hugmyndum og framkvæmdum. Erlendir ferðamenn eru tíðir gestir í verslunum Jens og sumir koma við í hvert skipti sem þeir gista landið. Einsdæmi Hinir eljusömu gullsmiðir munu vera brautryðjendur að mörgu leyti hér á landi. Þeir bjóða eingöngu til sölu eigin handsmíðaða muni, eigið handverk af ýmsu tagi úr gulli, silfri, stáli, eir, kopar og látúni með ívafi úr gleri, skinni og íslenskum steinum. Tilraunir hafa þau öll gert af ýmsu tagi, svo sem að setja saman málmteg- undir á mismunandi vegu. Ovenju mikil fjölbreytni er í smíði þremenninganna. Þau fást við gerð skartgripa af ýmsu tagi, smíði nytja- hluta eins og skeiða, pappirshnífa, bókmerkja, kertastjaka og jafnvel blómavasa, útbúa skreytingar á biblí- ur auk þess sem þau gera skúlptúra ýmiskonar. Telja þau íslenska við- skiptavini eiga mikinn þátt í því hve breitt verkefnasvið þeirra er orðið, þar sem þeir séu svo opnir fyrir nýjungum. Þau hafi því gert tilraunir fram og aftur og árangurinn verið sýndur í verslunum þeirra og jafnframt á sýn- ingum hér á landi og víða erlendis. Flest verkefni sín vinna þau að eigin frumkvæði, en oft er þó leitað til þeirra um smíð á einhverju ákveðnu sem viðskiptavinirnir hafa í huga eða panta sérstaklega. Hansína Jensdóttir er þeirra yngst, fædd 1954. Hún nam gullsmíði hjá föður sínum, stund- aði nám við Myndlista- og handíða- skólann í 2 ár og síðan lagði hún stund á höggmyndagerð við Myndlistaskól- ann í Reykjavík. Um tveggja ára skeið var hún nemandi í höggmyndadeild við listaskóla SAIT í Calgary í Kanada. Hansína er félagi í Myndhöggvara- félaginu og hefur vinnuaðstöðu á Korpúlfsstöðum ásamt fleiri félags- mönnum. Hún skapar þar mjög áhugaverð skúlptúrverk úr pappa, tré, járni, áli og kopar, stór verk sem hún vinnur að standandi í stiga og lítil verk sem hún mótar við vinnuborð sitt. Hún segir frá því að hún máli flesta skúlptúra sína, hvort sem þeir séu úr málmi eða öðrum efnum. Innan skamms mun hún sýna verk sín á Kjarvalsstöðum, svo að vinnudagur- inn er langur um þessar mundir, enda er Hansína líka að störfum á verk- stæðinu við Stigahlíð. Hansína bættist síðast í hópinn á 1. Armband og næla úr silfri og kopar eftir Hansínu. 2. Silfurskeið eftir Hansínu. Skírnargjöf frá afa og ömmu. 3. Hansína Jensdóttir vinnur hér að stóru myndverki úr málmi og gifsi á verkstæði sínu að Korpúlfsstöðum. HUGUR OG HÖND 7
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.