Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 48
HERRAPEYSA
Stœrð: 52.
Yfirvídd: 120 cm.
Sídd: 60 cm.
Efni: „Álafoss-flos“ sem er 90% ull
og 10% angórageitarull (móhár). 500
g af bláu nr 427 og 100 g af dökkbláu
nr 418.
Prjónar: Langir prjónar eða hring-
prjónar nr 3lA og 5.
Prjónfesia: 10x10 cm = 121ykkjurog
36 umferðir í klukkuprjóni.
Klukkuprjón I: Lykkjufjöldi þarf að
vera deilanlegur með 2.
1. umferð: *Slegið upp á prjóninn, 1
lykkja tekin óprjónuð, farið inn í
lykkjuna eins og eigi að bregða hana,
1 slétt*. Endurtekið frá *að*.
2. umferð: *Slegið upp á prjóninn, 1
lykkja óprjónuð, band og lykkja
prjónuð slétt saman*. Endurtekið frá
*að*. Allar umferðir hér eftir prjónað-
ar eins og 2. umferð.
48
Klukkuprjón II: Það er prjónað eins
og klukkuprjón I að öðru leyti en því
að nú eru band og lykkja brugðin
saman. Á mótum klukkuprjóns I og II
víxlast prjónið þannig, að slétt lykkja
kemur upp af brugðinni og öfugt.
Bak: Fitjaðar eru upp með dökkbláu
72 lykkjur á prjóna nr 3'/2. Síðan eru
prjónaðar brugðningar með ljósari
litnum, 1 slétt og 1 brugðin, 19 um-
ferðir. Fyrsta lykkja réttu megin skal
vera brugðin til þess að klukkuprjónið
komi í beinu framhaldi. Eftir brugðn-
ingarnar kemur klukkuprjón I prjón-
að á prjóna nr 5, 47 cm (170 umferðir).
Siðan eru prjónaðar 10 umferðir
klukkuprjón II með dökka litnum.
Fellt er af á öxlum í byrjun hverrar um-
ferðar 9-9-10 lykkjur og síðast 16
lykkjur fyrir hálsmál að aftan.
Framstykki: Fitjað er upp og prjónað-
ar brugðningar eins og á baki. Þegar
komnir eru 29 cm (104 umferðir) af
klukkuprjóni eru 16 miðlykkjur
geymdar á spotta og 28 lykkjur hvor-
um megin prjónaðar áfram með
klukkuprjóni I þar til komnir eru 47
cm frá brugðningum. Næst eru prjón-
aðar með dökka litnum 10 umferðir
(11 umferðir á hægri öxl) af klukku-
prjóni II og síðan fellt af í byrjun um-
ferða 9-9-10 lykkjur.
Kragi: Lykkjurnar 16 eru teknar upp á
prjón nr 5 og prjónaðar brugðningar,
1 slétt, 1 brugðin, með dökka litnum.
I fyrstu umferð er einni lykkju aukið
í við byrjun og enda umferðar Qaðar-
lykkjur) og brugðin lykkja látin
standast á við slétta í klukkuprjóni og
öfugt. Jaðarlykkjur eru prjónaðar
sléttar í öllum umferðum (perlujaðar).
Aukið í einni lykkju innan við jaðar-
lykkju hægra megin á peysunni í 4.
hverri umferð þar til komnar eru 34
lykkjur, þá er prjónað 18 cm beint
stykki (40 umferðir) og síðan tekin úr
ein lykkja innan við sömu jaðarlykkju
í 4. hverri umferð þar til eftir eru 18
lykkjur, fellt af.
Ermar: Fitjaðar eru upp með dökk-
bláu 40 lykkjur og prjónaðar brugðn-
ingar með ljósari litnum, 19 umferðir.
Síðan er prjónað klukkuprjón I með
einni jaðarlykkju hvorum megin. Hér
kemur slétt lykkja í klukkuprjóni í
beinu framhaldi af sléttri lykkju í
brugðningu. Aukið er út innan við
jaðarlykkju báðum megin í 12. hverri
umferð þar til komnar eru 64 lykkjur.
Síðast eru prjónaðar 12 umferðir og
fellt af. Ermin mælist 50 cm með
þrugðningum.
Fragangur: Byrjað er á að sauma sam-
an á öxlum og þess gætt að saumurinn
gefi hæfilega eftir. Lausi endinn á
kraganum er festur við að innanverðu
og skájaðarinn saumaður við háls-
málið. Til þess að fá kragann beinan í
er miðja á kraga næld við miðju háls-
máls að aftan, skáinn saumaður við
hálsmál á framstykki, en beini jaðar-
inn (18 cm) við hálsmál á baki. Þá eru
ermar saumaðar í, 2 lykkjur á ermi við
3 lykkjur á bol, og síðast hliðar og
ermarsaumaðar saman. Ermasaumur
kemur innan við jaðarlykkjur, en á
hliðum er hægt að jaðra prjónið sam-
an án saumfars. Peysan er að lokum
undin úr volgu vatni, löguð til á borði
og látin þorna.
Sigríður Halldórsdóttir
Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason.
HUGUR OG HÖND