Hugur og hönd


Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 15

Hugur og hönd - 01.06.1986, Blaðsíða 15
ull frá 18. öld benda einnig til, að þá hafi mislitt fé verið mun algengara en á 20. öldinni. Hér á landi var mótuð sú stefna í sauðfjárkynbótum á fyrsta áratug 20. aldarinnar, að leggja bæri áherslu á hvítt fé, sem væri gult á haus og fótum, en forðast allt mislitt fé. Stefna þessi kom erlendis frá og hafði lengi verið við lýði þar. Hún hefur haft veruleg áhrif bæði hér og erlendis í þá átt að fækka mislitu fé, en fjölga hvítu. Þess vegna er ekki hægt að nota litahlutföll í íslenska fénu í dag til að rekja uppruna fjárins. Hins vegar geta einstakir litaerfðavísar gefið bendingu um skyldleika kynja, eftir því hvort þeir koma fyrir í kynj- unum eða ekki. íslenska féð er af norður-evrópska, hyrnda stuttrófufénu. Þess vegna þarf ekki að leita út fyrir stuttrófukyn nágrannalandanna, þegar leita skal uppruna íslenska fjárins. Það afbrigði stuttrófufjárins, sem líkist íslenska fénu í flestum ytri ein- kennum, er norska stuttrófuféð, sem ýmist er kallað spælsau (dindilsauður) eða gammelnorsk sau á norsku. í báð- um þessum fjárkynjum koma fyrir hyrndir hrútar og hyrndar ær og koll- óttir eða örðóttir hrútar og kollóttar ær. í báðum fjárkynjunum koma fyrir litirnir botnótt og golsótt, og íslenska gerðin af gráum lit finnst í þeim báð- um. Mórautt litarefni finnst í báðum fjárkynjum, og svartur og mórauður litur kemur fyrir í þeim báðum. Þessi samanburður gefur sterklega til kynna, að íslenska féð sé að megin- stofni ættað frá Noregi. Allmargar heimildir eru til um inn- flutning á fé til íslands síðustu þrjár aldirnar. Sauðfjársjúkdómar hafa borist til landsins með innflutta fénu í mörgum tilvikum og niðurskurður á hinu sýkta fé til að útrýma pestunum hefur um leið útrýmt innflutta fénu. Til eru nokkur dæmi þess, að fé hafi verið flutt inn, án þess að sjúkdómar hafi borist með því, en áhrif þess inn- flutnings á íslenska fjárstofninn hafa verið lítil. Sérkenni á íslenskri ull Ull og gærur hafa verið íslending- um mikilvæg hráefni allt frá land- námi. Vöruvaðmál mun hafa verið lögleg- ur gjaldmiðill allt frá landnámsöld og það virðist hafa verið aðalverðmælir- inn frá 11. öld. Sett voru nákvæm ákvæði um gerð þess. Einnig voru lambaskinn verslunarvara á þessum tíma og klippingar af geldingum. Enn eru ull og gærur mikilvæg hrá- efni fyrir útflutningsiðnað okkar, þó að vörur úr þeim séu ekki lengur verð- mælir. Helstu sérkenni íslensku ullarinnar eru þau, að hún skiptist annars vegar í langt og fremur gróft tog, sem oft er gljáandi, og hins vegar í fremur stutt, mjög fínt, mjúkt, létt og fjaðrandi þel. Gerð íslensku ullarinnar virðist í stórum dráttum vera hin sama nú og var um landnám, þ.e. þel, tog og hær- ur. Má dæma það af fornleifum. Brúða úr ullarbandi frá 9. öld, sem fannst í Osebergskipinu í Noregi, er úr ull af þessari gerð og sömuleiðis fatn- aður úr ull frá því um 1300, sem fannst við uppgröft úr kirkjugarðinum í Herjólfsnesi á Grænlandi. Tóvinnukonur á 9. öld hafa kunnað að taka ofan af ull, því að í myndvefn- aði í Osebergskipinu var ullarþráður, sem, að því er virtist, var úr hreinu þeli. íslendingar hafa nauðþekkt eðli ull- ar og skinna meðan unnið var úr öllu heima. Það sýnir fróðlegur orðalisti um ull frá tímum heimilisiðnaðarins. Halldóra Bjarnadóttir telur meðal annars upp eftirfarandi orð í bók sinni: Vefnaður d íslenskum heimil- um: „Reyfi, vorull, haustull, þel, tog, hærur, lintog, línhært tog, star- hært tog, þelbólgin ull, hrísin ull, tása, kemba, fylling, upptíningur, ullarhnat, illhærur, undirkemba, garðaló og öfugsnoðí' Það var eðlilegt að íslenska þjóðin þekkti ullina náið því að hún var uppi- staða í fatnaði þjóðarinnar á umliðn- um öldum. Áætlað hefur verið að þurft hafi 5 kg af þveginni ull á ári til að klæða hvern heimilismann. Þá hefur einnig verið áætlað, að á 18. öld hafi 11000 manns á íslandi eða 22% þjóðarinnar verið bundnir við tóvinnu 7 mánuði á ári. Þekking manna á gærum hefur vafalaust verið veruleg, meðan allar gærur voru rakaðar, ullin notuð í tó- vinnu og bjórinn í ýmiss konar skinn- fatnað. Heimilisiðnaður úr skinnum náði aftur á móti aldrei sama stigi listfengis eins og tóvinnan. Hins vegar kunni fólk að verka skinn með ýmsu móti og þekkti vel kosti og galla á skinnum. Þannig er orðið tvískinnungur gamalt í málinu og haft um það fyrirbæri þeg- ar hrútsgæra flagnar í lög. íslendingar marka fé sitt á eyrum og helga sér kind með lögskráðu marki. Fjármörk eru til í ýmsum löndum Evrópu, en hvergi notuð á eins afger- andi hátt til að helga eignarrétt eins og hér á landi. Það er athyglisvert, að fjármörk hafa verið algeng á Hjaltlandi og í Orkneyjum allt fram á þessa öld. Við samanburð á mörkum þar og á íslandi kemur í Ijós, að mörg markanöfn á þessum skosku eyjum eru hin sömu og á íslandi. Þess ber að minnast, að Norðmenn áttu mikil ítök á þessum eyjum fyrir og um landnám á íslandi og þeir réðu fyrir Hjaltlandi í mörg hundruð ár. Markanöfnin sem eru eins á íslandi og Hjaltlandi sýna, að bæði eiga rót sína að rekja til sameiginlegrar marka- hefðar. Þar með er ljóst, að sauðfjármenn- ingu þá, sem landnámsmenn fluttu með sér til nýrra heimkynna, má rekja aftur í gráa forneskju löngu fyrir fund íslands. Stefán Aðalsteinsson Heimildir Ástæða er til að vísa í tvær ritgerðir um hliðstætt efni því, sem hér er tekið saman, en í báðum þeim ritgerðum er að finna all- ítarlegar heimildaskrár. Fytri greinin er: „Uppruni íslenskra húsdýra", sem birtist í Eldur er í norðri, afmælisriti til heiðurs Sigurði Þórarinssyni sjötugum (Sögu- félagið, 1982). Síðari greinin er erindi sem birtist í ritinu Ráðunautafundur Btínaðar- félags Islands og Rannsóknastofnunar landbúnaðarins 1986. 1. Sauðfé í rétt. Ljósmynd: Björgvin Pálsson. HUGUR OG HÖND 15
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Hugur og hönd

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.