Hugur og hönd - 01.06.1986, Page 10
er gott að spreyta sig á honum við og
við. Ég kem þá endurnærður aftur að
skartgripasmíðinni á eftir. Ef lengi er
fengist við það sama getur manni
fundist eins og maður sé kominn í
bönd en þau losna þegar þannig er
skipt um verkefni. Tilbreytingin getur
jafnvel opnað nýjar leiðir“ Jón Snorri
hefur líka mjög gaman af að vinna
ýmsa nytjahluti eins og skálar og slíkt
og telur það ekki síður tilheyra verk-
efnum gullsmiðs en annarra listiðnað-
arframleiðenda. Hann hefur m.a.
skapað mjög sérstæða hluti sem ef til
vill mundu geta talist hvort sem væri
skálar eða skúlptúr. Sumir eru með
vefnaðaráferð, aðrir að hluta til úr
gleri. í enn öðrum tilvikum hefur Jón
Snorri notað skinn eða roð með
málminum.
Upphafið
Fyrirtæki eins og gullsmíðaverk-
stæði Jens verður ekki til á einum
degi. Ekki á einu ári heldur. Fyrst í
stað vann Jens Guðjónsson hjá Guð-
laugi Magnússyni á Laugavegi. Eftir
námið í Kaupmannahöfn þurfti hann
að vinna fyrir sér með skrifstofustörf-
um og var á skrifstofu verðlagsstjóra í
fjögur ár. Samhliða því starfi smíðaði
hann heima og rak litla verslun á
Laugavegi. Honum buðust á þessum
arum til kaups pressa og ýmis tæki
önnur til gullsmiða. Hann þurfti þá að
verða sér úti um vinnustofuhúsnæði
og hafði uppi á leiguhúsnæði í kjallar-
anum í Suðurveri. Þá fór heldur að
rofa til. Jens var þó ekki tilbúinn að
starfa sjálfstætt enn. Hann vann um
tveggja ára skeið hjá Ragnari Jónssyni
að smiði skartgripa úr gulli og silfri.
Sjálfur telur hann þennan tíma upp-
haf blómaskeiðsins hjá sér, þar sem
þarna var alltaf nóg til af efni og hann
fékk að vinna frjálst. „Hér fór að
skapast minn eigin stíllý segir hann,
„þó fyrst dálítið blandaður þeim
danska. Ragnar keypti af mér það sem
ég smíðaði og það var selt í skartgripa-
verslun Jóns Sigmundssonar. Og nú
fyrst var ég tilbúinn að byrja sjálf-
stætt“
Jens setti þó ekki upp eigin verslun
strax. Smíðisgripir hans voru til sölu í
verslununum íslenskum heimilisiðn-
aði og Rammagerðinni. Afkoman
batnaði til muna er Jens hóf eiginn
verslunarrekstur að Laugavegi 60 og
aðstaðan sömuleiðis er verkstæðið
flutti úr kjallaranum i Suðurveri upp
á aðra hæð þar.
10
8.
9.
HUGUR OG HÖND