Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 11
11.
Samstarf og samstaða
Jens er djarfur í framleiðslu sinni og
óhræddur við að reyna nýjar leiðir.
Hvort sem um er að ræða gerð nytja-
hluta, skarts eða skúlptúra er hann í
stöðugri þróun, forvitnilegri þróun.
Nú síðast er hann farinn að blanda
málmum, láta t.d. tvær tegundir renna
saman í sama fleti, eins og silfur og lá-
tún eða silfur og kopar. „Þetta er mjög
skemmtilegt og gefur ýmsa mögu-
leikaþ segir Jens. „Hansína byrjaði á
því að nota tvenns konar málma hlið
við hlið og þá hugkvæmdist mér þetta.
Skrýtið að engum skuli hafa dottið
þetta í hug áður. “ Nú gera þau þetta öll
jöfnum höndum á verkstæðinu og má
sjá eftir þau marga fallega gripi þar
sem fletirnir skipta litum.
Hjá Jens er unnið af elju og áhuga
og sífellt koma fram nýjar hugmyndir
sem unnið er úr eftir þvi sem tíminn
leyfir. Stórir hlutir, smáir hlutir, allt er
vandað og hönnun frumleg. Jón
Snorri segir frá því að á verkstæðinu
ræði þau allar hugmyndir, ráðleggi
hvert öðru sitt á hvað, en leysi verkefn-
in eftir eigin höfði er til framkvæmd-
anna kemur. Jens hafi alltaf haft afar
hvetjandi áhrif á þau hin og ýtt undir
hugmyndir þeirra. Og þetta á við hvort
sem í hlut eiga skartgripasmíð eða
skúlptúrgerð. Þessi hvatning og já-
kvætt samstarf ásamt góðum viðtök-
um viðskiptavina hefur orðið til þess
að auka fjölbreytni í smíðum. Einnig
er þaðan sprottin dirfskan til að vinna
með ný efni og gera tilraunir fram og
aftur.
Gömlu aðferðirnar voru helst að
steypa, sísilera, grafa og svo víravirki.
„En ég hafði ekki áhuga á víravirkiþ
segir Jens. „Margir gullsmiðir létu
myndskera teikna fyrir sig munstur,
sem þeir notuðu í steypumót. Algengt
var að steypa marga samskonar hluti,
því að flest var myndskreytt eins og
skeiðar og slíkt. En ég hafði takmark-
aðan áhuga á þessu líka, þó að ég gæti
teiknað min munstur sjálfur. Mig
langaði að vinna eitthvað eftir eigin
innblæstri. I náminu varð allt að vera
eins og spegill, það var klassisk hefð,
þannig hafði verið unnið gegnum ald-
irnar. En „dellumakari“ býr sér til
nýja hefð“ Jens hlær og heldur áfram:
„Þó er þekkingin á gömlu aðferðun-
um og venjunum nauðsynleg undir-
staða og ég bý að árunum í Kaup-
mannahöfn, þar sem mestur náms-
tíminn fór í að læra hefðbundnar að-
ferðirí* Gamli stíllinn hæfði ekki Jens
og samherjum hans, en segja má að
elstu verkfærin fari sérlega vel í hönd-
um þeirra, þvi að þau nota mikið ham-
ar og klippur. Þau hafa tileinkað sér
frumstæðar aðferðir og menn kunna
vel að meta árangurinn.
Meðbyr
Þátttaka þeirra þremenninga í sýn-
ingum er umtalsverð. Gripir eftir þau
hafa verið valdir á alþjóðlegar sýning-
ar, eins og Scandinavia today, sýningu
í New York 1984, þar sem Jens átti
verk; Form Island, sem er umfangs-
mesta sýning á íslenskum listiðnaði til
þessa og fyrst sett upp í Listiðnaðar-
safninu í Helsinki í apríl 1984. Á hana
voru valin verk eftir þau öll þrjú, og
sýningin var sett upp á þremur stöðum
öðrum í Finnlandi. Því næst fór hún
til Árósa í Danmörku, Borás í Sví-
þjóð, í mars 1985 var hún í Osló og hér
í Norræna húsinu í október sama ár.
Hansína hefur tekið þátt í nokkrum
samsýningum öðrum, t.d. UM, sýn-
ingu ungra myndlistarmanna á Kjar-
valsstöðum 1983. Jens og Jón Snorri
tóku þátt í nokkrum sýningum í Dan-
mörku árin 1981 og ’82; báðir áttu
verk á Sýningu Félags gullsmiða í List-
munahúsinu í Reykjavík 1982; einnig
áttu báðir verk á Hönnun ’82 á Kjar-
valsstöðum og á Kirkjulistarsýningu á
Kjarvalsstöðum 1983, og er þá aðeins
nefndur hluti sýninga þeirra.
Öll segja þau frá því, listasmiðirnir,
að stundum hafi þau orðið að taka
mið af tískunni, en hafi þó aldrei lagt
sig mikið eftir henni. Fyrst og fremst
hafi þau gert það sem þau sjálf hefur
langað til og jafnvel að einhverju leyti
skapað tísku svo að aðrir hafa fylgt í
fótspor þeirra. „Við improviserum eig-
inlega,“ segir Jens, „eða með öðrum
orðum: við vinnum eftir því sem and-
inn blæs okkur inní‘ Og þau komast
upp með það, það er meira en margur
annar listamaðurinn hefur getað. Að
auki er gróska í fyrirtækinu, sem er
uppörvandi fyrir þremenningana og
áhugaverð fyrir okkur hin sem fylgj-
umst með.
Rúna Gísladóttir
8. Silfurskál með íslenskum steini eftir
Jón Snorra.
9. Skúlptúr úr silfri á grágrýtisstöpli eftir
Jón Snorra.
10. Jón Snorri Sigurðsson að störfum á
verkstæðinu.
11. Jens Guðjónsson á verkstæði sínu.
Ljósmyndir:
Magnús Hjörleifsson nr 1,5, 8,9,11 og 12.
Guðmundur Ingólfsson nr 2, 3, 6, 7 og 10.
Guðrún Tryggvadóttir nr 4.
HUGUR OG HÖND
11