Hugur og hönd - 01.06.1986, Qupperneq 31
HANDOFNIR HÖKLAR
1.
Ymsir hafa fengist við vefnað
og þá helst konur nú á síðari
tímum. Þær bregða sér á nám-
skeið margar hverjar til þess að læra
tæknina, sem er margslungin og gefur
ótal möguleika, eins og þeir vita gerst
sem kynnst hafa. Og ekki hafa allar
kjark til að takast á við stór viðfangs-
efni. Því er fróðlegt þegar fréttist af
einhverjum sem er stórhuga í verk-
efnavali og tekst að ljúka ætlunarverki
sínu.
Elín Jónsdóttir, kennari á Akureyri,
hefur nýlega lokið við vefnað og frá-
gang tveggja hökla og stólna sem hún
óf handa sonum sinum. Yngri sonur
hennar, sr. Jón Helgi Þórarinsson,
prestur í Dalvíkurprestakalli, var um
það bil að ljúka guðfræðinámi þegar
Elínu hugkvæmdist að vefa hökla
handa þeim þræðrum. Eldri sonur-
inn, sr. Pétur Þórarinsson, er prestur i
Möðruvallaprestakalli í Hörgárdal.
Elín hefur fengist við handavinnu-
kennslu á Sólborg á Akureyri i 14 ár,
og þegar hún hóf starf sitt þar var
henni m.a. falin kennsla í vefnaði.
Hún fór þá á fyrsta vefnaðarnám-
skeiðið, og hefur farið á mörg nám-
skeið síðan. Handavinnukennararétt-
indi fékk Elín árið 1983 eftir nám við
Kennaraháskólann og um svipað leyti
ákvað hún að vefa höklana. Henni
þótti afar spennandi að gera þá á
þennan hátt, þar eð hún væri þá að
búa til efnið sjálf um leið og þeir
mynduðust að öðru leyti. Elín hafði
aldrei áður fengist við jafn-erfitt verk-
efni. Því leitaði hún ráða hjá vönum
vefjarlistakonum og þá fyrst Ólöfu
Þórhallsdóttur, sem var fyrsti kennari
hennar í greininni. Ólöf leiðbeindi
henni við verkið, en hún fékk einnig
góð ráð hjá Guðrúnu Vigfúsdóttur á
ísafirði og Sigríði Jóhannsdóttur í
Reykjavík, sem báðar eru vanar
höklavefnaði. Við frágang á höklun-
um naut hún leiðsagnar Ingunnar
Björnsdóttur, kennara við Verk-
menntaskólann.
Elín notaði sænskan hör 16/2 í
uppistöðuna en ívaf er islenskt kamb-
garn og DMC bómullargarn, önnur
hver umferð kambgarn og hin bómull-
argarn. Munstur er krossbrugðið
(handbrugðið) með rauðu og hvítu
DMC bómullargarni og gullþræði.
Munstur að framan er hvítur kross, en
gyllt rönd meðfram. Neðan við hann
lóðréttar, hvítar rendur, sömuleiðis
bryddaðar gylltri rönd. Að aftan er
rauður kross, sundurtekinn, með
stafnum P, sem er bókstafurinn R á
grísku. Krossinn stendur einnig fyrir
stafinn X , en X og P eru upphafsstaf-
ir Krists, KR, á grísku. Einnig að aftan
eru hvítar, gullbryddaðar rendur neð-
antil á höklunum, en við stafatáknið
rauða eru gylltar rendur, óreglulegar.
Randamunstrið er hannað af Elínu
sjálfri, en táknið er gert eftir erlendri
fyrirmynd. Sr. Jón Helgi valdi það og
lét stækka. Stólurnar, sem höklunum
fylgja, eru með rauðum krossi og
gylltri rönd í kring.
Verkið vann Elín í Verkmenntaskól-
anum á Akureyri (áður Húsmæðra-
skólanum), og sat við vefinn fjórar til
sex klukkustundir dag hvern. Vefnaði
og frágangi höklanna og stólnanna
lauk hún á fjórum og hálfum mánuði,
fyrri hluta ársins 1986. Og ekki verður
annað sagt en að vel hafi tekist til.
Vinnubrögð eru afar vönduð og hökl-
arnir sérlega fallegir og stílhreinir.
Rúna Gísladóttir
1. Ljósmynd: Sverrir Haraldsson.
2. Ljósmynd: Páll A. Pálsson.
HUGUR OG HÖND
31