Hugur og hönd - 01.06.1986, Page 32
Mftfitlfttlflitltffltttt
! t ff f u f m m i m i i m f u
ÞRETTÁN
HEIÐURSMENN
Gömlu íslensku jólasveinarnir voru
víst aldrei jafn-skrautbúnir og þessir
þrettán og svo hógværir voru þeir,
þrátt fyrir prettina, að ekki vildu þeir
„ónáða allir í senn“. Vonandi verður
„ónæðið“ af jólasveinum Herborgar
aðeins í því fólgið að vekja löngun til
að vefa þá, ásamt jólaköttum í greni-
skógi með bragandi norðurljósum og
skínandi jólastjörnu yfir.
32
Stœrð: 31.5 X 70 cm.
Vend: Sléttur rósabandavefnaður.
Uppistaða: Hvítt bómullargarn nr 8/4
eða 12/6.
Ivaf: Kambgarn nr 10/3 frá Gefjun.
Skeið: 30/10, 1 þráður í hafaldi, 1
þráður í tönn.
Breidd í skeið: 34,3 cm.
Þráðafjöldi: 103.
Slöngulengd: I einn renning þarf um
1,3 m.
í sléttum rósaþandavefnaði, sem er
laus þinding, myndast löng laus þönd
á ranghverfu og getur hann því orðið
mjög þykkur og efnismikill, ef fast er
slegið. í þessum vef er gert ráð fyrir að
ekki sé slegið fastara en svo að 3 fyrir-
drög á hverjum þræði (3x4 fyrirdrög
i hverja rúðuröð) fylli sem svarar fern-
ingi, lA cm á kant.
Notaður er venjulegur rósabanda-
inndráttur á 4 sköft og eitt skaft bund-
ið í hvert skammel auk einskeftu-
skammela. Ómunstraðir hlutar eru
ofnir í einskeftu. Aðalreglan í munst-
urvefnaðinum er sú að fyrir hverja lá-
rétta rúðuröð er stigið þrisvar sinnum
með beinu stigi á munsturskammelin
fjögur og litir teknir í sömu röð og þeir
koma í rúðuröðinni frá hægri til
vinstri, sjá 1. stigdæmi. Ýmsar undan-
tekningar og tilbrigði koma þó fyrir,
t.d. ef sami litur á að koma á 1. og 3.
skammel eða 2. og 4. má stíga þau
skammel samtímis (eða einskeftu-
skammel) fyrir eitt fyrirdrag í stað
tveggja, 2. stigdæmi. Á kattarrófunni
neðst þarf að „svindla“ svolítið til
þess að hver fái sína rófu. Það er gert
með þvi að láta svarta ívafið fara undir
þræðina vinstra megin við rófurnar og
vefa síðan með hvítu á 4. skammeli og
láta það aðeins liggja ofan á þessum
þráðum, en ekki þeggja megin við róf-
urnar eins og á að vera í næstu rúðu-
röð, sjá 3. stigmunstur.
í augu katta er litum raðað í rúðu A,
svart, svart, gult, en fyrir augu karla
koma litir í rúðu A, bleikt, blátt,
bleikt. Munnur í rúðu M er á sama
hátt ofinn með einu rauðu fyrirdragi á
1. skammeli. I trefil, rúður R, er ofið
til skiptis með gulu og bláu, sjá 4. stig-
munstur. 5. stigmunstur sýnir hvernig
litir raðast í rúðu H til að fá bogalínu
á andlit. Jólastjörnu er brugðið í með
gulu, um 2 cm fyrir ofan 9. hvítu
„stjörnu“ frá hægri.
Kögur er hnýtt á 2 og 2 þræði að
neðan, haft um 5 cm langt. Að ofan er
uppistaðan einnig hnýtt að. Voðin er
strekkt með títuprjónum á mjúka
plötu (plast eða tex) og rakt stykki lagt
yfir og látið þorna. Síðast er saumuð
um 2 cm breið rás að ofan fyrir prik að
hengja renninginn á.
Hönnun: Herborg Sigtryggsdóttir
Ljósmynd: Kristján Pétur Guðnason.
HUGUR OG HÖND