Hugur og hönd - 01.06.1986, Síða 40
FROÐLEIKSMOLAR
ÚR GRÓÐURRÍKINU
Fífa. „Ljósið kolunnar lék um Snorra,
lýsti sagnaheim feðra vorra!‘ Ég man
lýsislampann í fjósinu, en olíulampi
og týrur voru þá komnar í bæinn. Fífa
var fyrrum notuð í kveik lýsislampa
og til fyllingar í kodda. Fátcekrakoddi
var hann kallaður, en mjúkur var hann
sannarlega. Oft voru börn látin tína
fífuna. Konur sneru hana milli lófa og
lærs í fífukveiki.
Mýs hjálpa til. Maður, uppalinn í
Skagafirði, sagði Sigríði Halldórs-
dóttur, að sem barn hefði hann hjálp-
að gamalli konu að tína fífuhár. Hún
dreifði fífunni á hlöðugólf og sagði
við börnin: „Nú sjáum við til á morg-
un, hvað verður“. Og það sem skeði
var, að fræin voru horfin, en hárið lá
eftir. Gísli Gestsson safnvörður, sem
var Sunnlendingur, kannaðist einnig
við þetta með mýsnar.
Erlendis hefur verið reynt að kemba
og spinna fífuhár til vefnaðar, ýmist
fífuhárin ein eða blönduð ull eða
baðmull. Þetta getur tekist, en tíðkast
þó ekki, því að fífuhárin vantar styrk
og fjaðurmagn og eru mislöng. En
fallegur glans er á dúk sem fífuhárum
hefur verið blandað í, t.d. með baðm-
ull.
Kotún, einnig kottún, er komið af
nafni baðmullarinnar, cotton. Hér
notað um fræhár, fræull, einkum víði-
tegunda og fífu. Nafnið mun vera all-
gamalt í íslensku.
Njóli. „Vanti þig spólu i vefinn þinn,
vel ég þér njólastrokkinn minn og
laufin í lit á klæðiðí* Allt fram á þessa
öld voru sums staðar í Eyjafirði njóla-
stönglar teknir að hausti, notaðir sem
spólur í vef. Litað var grænt úr njóla-
blöðum og keyta oft höfð með til að
skíra og styrkja litinn. Gamalt nafn á
njólablöðum var fardagakál og var
það haft til matar á vorin — oft fyrsta
grænmetið. Seyði og kvoða úr njóla-
rótum þótti góð við útbrotum og
kláða. Marin njólablöð þóttu græð-
andi.
Garðabrúða. „Kóngur jafnt sem kot-
ungur þig hyllir, kattagleði, taugastill-
ir“. Garðabrúða ber stóra, ilmandi,
ljósrauða blómskúfa og er ræktuð til
skrauts. Jarðstöngull hennar er notað-
ur til lækninga, unnin úr honum
taugaróandi lyf, valeriana dropar og
pillur. Fyrrum var ósamlyndum hjón-
um ráðlagt að láta safa úr garðabrúðu
í vín og drekka það saman. Kettir
sækja í garðabrúðu, nugga sér upp við
hana og liggja jafnvel malandi hjá
henni. Frjókorn garðabrúðu frá sögu-
öld hafa fundist í mýrum í Reykjavík
og víðar. Kannski hefur landnáms-
konan Hallveig Fróðadóttir flutt
garðabrúðu með sér frá Noregi sem
lækningajurt og jafnvel skrautjurt.
Hver veit?
Lokasjóður „er ekki allur þar sem
hann er séðurí' Auk venjulegra róta
vaxa örsmáir rótarþræðir hans inn í
rætur nábúajurta og sjúga þar nær-
ingu. Sjóðurinn, þ. e. aldinið, er flatt
og kringlótt og fræin í því eru einnig
peningalaga, sbr. nafnið peningagras.
Hafa börn þetta fyrir krónur og aura
í búðaleik. I Grasnytjum segir:
„Hæfilegt er að byrja slátt þegar
hringlar í sjóðnum.“
Fífill. „Fífill minnar bernsku blóm,
bros á morgni sólarrjóðum“ Fífill
blómgast snemma og er með fyrstu
blómum. Byrja skyldi slátt þegar
fjúka tók úr biðukollu. Hagnýttur
hefur fífill verið á ýmsan hátt. Blöðin
etin sem salat víða um heim og fífill-
inn ræktaður til þeirra nota, oft skyggt
á blöðin um tíma til að bleikja þau og
draga úr beiskjubragði. Konur á Bret-
landseyjum þvoðu sér úr fífilseyði til
húðfegrunar og drukku það sem melt-
ingarbætandi og þvagörvandi lyf.
Hægt er að gera gott borðvín, svipað
rauðvíni, úr blómunum, eftir að reifa-
blöðin undir fífilkörfunni hafa verið
tekin burt.
Laukaflatir. Villilaukur hefur lengi
vaxið á ylvolgu svæði í túninu í Bæ í
Borgarfirði. Á 11. öld dvaldi í Bæ
enskur trúboðsbiskup, Hróðólfur að
nafni, í nær 20 ár. Villilaukur vex
einnig við jarðyl á Skáney í Borgar-
firði. En þar dvaldi þýskur bartskeri
og skurðlæknir, Lazarus Mattheus-
son, á árunum 1527—1570. Hafa fyrr-
nefndir menn líklega flutt laukinn inn
til lækninga og e.t.v. krydds. Villilauk-
ur hefur einnig fundist á Bessastöð-
um, Skriðu í Hörgárdal og víðar, en
haldist best við í Bæ og á Skáney
vegna jarðyls. Samkvæmt frásögn
Björns Blöndals rithöfundar frá Staf-
holtsey, voru laukarnir taldir heilsu-
samlegir við brjóstveiki. Á söguöld
voru særðir menn stundum látnir eta
lauk til að komast að raun um, hvort
um holsár væri að ræða. Lyktin sagði
til sín. Hinn náskyldi graslaukur er
ræktaður til matar.
40
1.
HUGUR OG HÖND