Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 2

Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 2
Ég leyfi mér að trúa því, þótt skilaboðin hafi verið mjög óskýr miðað við tilefnið, að stjórnvöld bregðist við með öðrum hætti en var gert hér í niðursveiflunni eftir hrun. Ragnar Þór Ingófsson, formaður VR Veður Norðaustan 13-23 m/s, hvassast NV-til. Talsverð snjókoma N- og A-lands fram á kvöld en áfram þurrt að mestu SV-vert. Dregur úr vindi og ofankomu annað kvöld og kólnar. SJÁ SÍÐU 16 Styrkja varnirnar Á dögunum vann vaskur hópur að því að styrkja móttökuvarnir þar sem Magni, hinn nýi dráttarbátur Faxaf lóahafna, leggur að bryggju í Reykja- víkurhöfn. Magni var smíðaður í Hi Phong í Víetnam og var siglt heim nýlega, en þaðan er ríf lega tíu þúsund sjómílna sigling. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON Faxafeni 11 • Sími 534 0534 Finndu okkur á Fermingarskraut í úrvali! ■ Myndaveggir ■ Nammibarir ■ Kortakassar ■ Servíettur ■ Borðrenningar ■ Blöðrur (fyrir loft/helíum) ■ Blöðrubogar/lengjur/hringir (fyrir loft) ■ Súkkulaðiegg í þemalitum veislunnar ■ Kerti ■ Og margt fleira ■ Veggborðar þar sem hægt er að raða bókstöfum saman í hvaða orð sem er, t.d. nafn fermingarbarns, „Ferming“, „Myndaveggur”, „Kort”, „Nammibar” Vöruúrvalið er að finna á facebook síðu Partýbúðarinnar KJARAMÁL Efling samdi við Reykja­ víkurborg í fyrrinótt og lauk þar með rúmlega þriggja vikna verk­ falli sem náði til um 1.850 borgar­ starfsmanna. Í samningnum felst hækkun á lágmarkslaunum sem er umfram hækkanir í svokölluðum Lífskjarasamningi sem gerður var í fyrra. Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR, segir of snemmt að segja til um hvort samningur Eflingar hafi áhrif á Lífskjarasamninginn sem VR á aðild að. „En nú er enn mikilvægara að við náum að vinna að öðrum mark­ miðum samningsins með stjórn­ völdum,“ segir Ragnar. Hann nefnir þar hlutdeildarlán, bann við 40 ára verðtryggðum jafngreiðslulánum og leiguvernd. Á þessu verði Alþingi að taka á vorþinginu ef samningar eigi almennt að halda í haust. Hlutdeildarlánin snúast að sögn Ragnars um það að ungt fólk og þeir sem komu illa út úr hruninu og hafa ekki fengið fyrirgreiðslu fái greiða leið inn á húsnæðismarkaðinn. Samtök atvinnulífsins leggi sömu­ leiðis áherslu á þetta. „Þessi úrræði munu veita mjög mikilvæga innspýtingu í bygg­ ingariðnaðinn. Sá eftirspurnar­ hópur sem mun myndast mun ein­ göngu beinast að nýju eða nýlegu húsnæði þannig að það eru nánast engar líkur á það hafi neikvæð áhrif á fasteignaverð,“ segir formaður VR. Þetta verði hvati fyrir verktaka að byggja hagkvæmt húsnæði og ekki dýrt húsnæði sem sé ekki að seljast í dag í miðbæ Reykjavíkur. Aðspurður kveður Ragnar það ekki hlutverk VR hafa áhyggjur af þeim fjölda nýrra íbúða sem nú standa óseldar. „Ég get ekki leyst vanda fjárfesta sem veðjuðu á rán­ dýrar lúxusíbúðir. Ég vænti þess að verðið á því húsnæði muni þrýstast eitthvað niður – sem ég held að sé bara nauðsynlegt,“ segir formaður­ inn. Ekki sé eftirspurn eftir slíku húsnæði í dag. „Það er búið að liggja fyrir í mörg ár að braskarar eru ekki að byggja það sem markaðurinn er að kalla eftir. Við erum ekki að skera mark­ aðinn úr snörunni með þessum nýju úrræðum heldur erum við að kalla eftir að búa til eftirspurnar­ hlið þannig að byggingaiðnaðurinn þurfi ekki að pakka saman eins og hann gerði 2009 og iðnaðarmanna­ stéttin nánast f lutti úr landi eins og hún lagði sig,“ segir Ragnar. Aðspurður um útspil ríkisstjórn­ arinnar í gær vegna áhrifa kóróna­ veirunnar á efnahagslífið segir Ragnar þau hafa verið mjög óljós. „En ég leyfi mér að trúa því, þótt skilaboðin hafi verið mjög óskýr miðað við tilefnið, að stjórnvöld bregðist við með öðrum hætti en var gert hér í niðursveiflunni eftir hrun,“ segir formaður VR. gar@frettabladid.is Eflingarsamingur fellir vart Lífskjarasamning Formaður VR segir óljóst hvort nýr samningur Eflingar og Reykjavíkurborgar hafi áhrif á Lífskjarasamninginn. Mikilvægast sé að Alþingi gangi frá efndum um húsnæðislán og fleiri úrræði svo Lífskjarasamningurinn falli ekki í haust. „Braskarar eru ekki að byggja það sem markaðurinn er að kalla eftir,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson, formaður VR. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI REYK JANES Síðustu sólarhringa hefur dregið verulega úr skjálfta­ virkni við fjallið Þorbjörn við Grindavík. „Það mælist enn talsvert af minni skjálftum en samanborið við fyrri vikur hefur dregið úr virkn­ inni. Að sama skapi hefur ekki mælst frekara landris undanfarna daga,“ segir Einar Gestsson, náttúruvár­ sérfræðingur á Veðurstofu Íslands. Á vef Veðurstofunnar kemur fram að líklegasta skýringin sé sú að kvikuinnflæði á svæðið sé lokið í bili. Óvissustig er þó enn í gildi á svæðinu en fundað verður um stöðu mála næstkomandi fimmtu­ dag. – bþ Kvikuinnflæði er lokið í bili Fjallið Þorbjörn við Grindavík. KJARAMÁL Ef ling og Reykjavíkur­ borg skrifuðu undir kjarasamning í gær eftir mánaðar verkfall. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, segir niðurstöðuna sigur og viður­ kenningu á að leiðréttingar var þörf fyrir verst setta hópinn. Leiðréttingin er gerð með töflubreytingum og sér­ stöku álagi. „Allir sáu að viðræðurnar gengu illa en það var þetta langa verkfall sem skilaði árangri,“ segir Sólveig. Aðspurð um hvort verkfallið væri farið að reyna á fólk segir hún svo vissulega vera. „En það sem gerði þetta á endanum svo ótrúlega skemmtilegt, gefandi og merkilegt var að samninganefndin var samstíga, og að sjá baráttuanda trúnaðarmanna sem við hittum á hverjum morgni og andinn á baráttufundum. Meira að segja eftir að þetta dróst á langinn og þrýstingur um að semja jókst.“ Samkvæmt samningunum hækka byrjunarlaun um 112 þúsund krónur á samningstímanum og sérgreiðslan 15 þúsund í lægstu f lokkunum. Þá náðist stytting vinnuvikunnar og fleiri kjarabætur fram. Sólveig telur að aðrir nýundirrit­ aðir samningar og tilmæli sóttvarna­ teymis hafi haft áhrif, sér í lagi samn­ ingur Eflingar við ríkið. Sumir hafa gert athugasemd við að Eflingarfólk noti orðið sigur í kjaradeilunni. „Það er fáránlegt að kalla niðurstöðuna eitthvað annað en sigur fyrir okkur. Lengst af var okkur aðeins boðin 90 þúsund króna hækkun, sem við hefð­ um borgað sjálf með yfirvinnunni, og aðeins væga styttingu vinnuviku,“ segir hún. – khg Segir verkfallið hafa skilað sínu Það er fáránlegt að kalla niðurstöðuna eitthvað annað en sigur fyrir okkur. Sólveig Anna Jónsdóttir, for- maður Eflingar 1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R2 F R É T T I R ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.