Fréttablaðið


Fréttablaðið - 11.03.2020, Qupperneq 9

Fréttablaðið - 11.03.2020, Qupperneq 9
Frá degi til dags Halldór ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir RITSTJÓRI: Jón Þórisson jon@frettabladid.is, FRÉTTASTJÓRAR: Ari Brynjólfsson arib@frettabladid.is, Garðar Örn Úlfarsson gar@frettabladid.is MARKAÐURINN: Hörður Ægisson hordur@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ.IS: Kristjón Kormákur Guðjónsson kristjon@frettabladid.is. Fréttablaðið kemur út í 80.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslun um á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. ISSN 1670-3871 FRÉTTABLAÐIÐ Kalkofnsvegur 2, 101 Reykjavík Sími: 550 5000, ritstjorn@frettabladid.is HELGARBLAÐ: Björk Eiðsdóttir bjork@frettabladid.is MENNING: Kolbrún Bergþórsdóttir kolbrunb@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Anton Brink anton@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Sæmundur Freyr Árnason sfa@frettabladid.is Hvorki er unnið að uppbygg- ingu trausts hjá ríkis- stjórn eða Alþingi. Landsréttur er í tilvistar- kreppu og Hæstiréttur í sóttkví. Um þriðjung- ur þeirra sem greiða af náms lánum skuldar meira meira en sex millj- ónir króna og um fimmt- ungur meira en átta milljónir. Aðalheiður Ámundadóttir adalheidur @frettabladid.is Þórunn Sveinbjarnard. formaður BHM Segja má að fólk sem leggur fyrir sig langskólanám fórni dýrmætum árum á vinnumarkaði samanbor-ið við þau sem byrja fyrr að vinna. Háskólanemar hafa almennt ekki tekjur né ávinna sér lífeyrisréttindi meðan á námi stendur og þurfa flestir að taka námslán til að fjármagna framfærslu sína. Eftir að námi lýkur þarf fólk svo að greiða um fjögur prósent af launum sínum í afborganir af lánunum. Þetta getur verið þung byrði á sama tíma og fólk er að fóta sig á vinnumarkaði, stofna fjölskyldu og koma sér þaki yfir höfuðið. BHM hefur lengi barist fyrir því að dregið verði úr endurgreiðslubyrði námslána og að eftirstöðvar slíkra lána falli niður þegar lífeyristökualdri er náð eða greitt hefur verið af láni í 40 ár. Eins og staðan er nú eru námslán ótímabundin og fyrnast ekki. Í viðhorfskönnun sem BHM lét nýlega gera meðal félagsmanna aðildarfélaga sögðust 40 prósent svarenda sem skulda námslán finna mikið fyrir greiðslubyrðinni eða telja hana verulega íþyngjandi fyrir heimilið. Tæp- lega helmingur sagðist finna nokkuð fyrir henni og um eitt prósent sagðist ekki ráða við að greiða af náms- lánum sínum. Einungis 12 prósent sögðust finna lítið fyrir greiðslubyrðinni. Niðurstöðurnar undirstrika enn frekar mikilvægi þess að stjórnvöld komi til móts við greiðendur námslána með ráðstöfunum til að minnka greiðslubyrði þeirra. Rétt er að minna á tillögur sem starfshópur á vegum forsætisráðherra skilaði á síðasta ári. Þær fela m.a. í sér að endurgreiðsluhlutfall námslána, þ.e. það hlutfall af launum sem lánþegi greiðir í afborg- anir, verði lækkað og vextirnir sömuleiðis. BHM treystir að þessum tillögum verði hrint í framkvæmd hið fyrsta. Í áðurnefndri könnun kom einnig fram að stór hluti lántakenda skuldar háar fjárhæðir. Um þriðjungur þeirra sem greiða af námslánum skuldar meira meira en sex milljónir króna og um fimmtungur meira en átta milljónir. Þetta þýðir að margir núverandi lántakendur munu ekki ná að greiða upp námslán sín áður en þeir ná lífeyristökualdri. Mikilvægt er að reglum verði breytt þannig að eftirstöðvar falli niður ef lántaki hefur ekki náð að greiða upp lán sín þegar starfsævi hans eða hennar lýkur. Greiðslubyrðin er of þung Lopapeysum fækkar Loksins er Handprjónasam- bandið búið að fá viður- kennt hvað telst vera íslensk lopapeysa. Ullin þarf að vera af íslenskri sauðkind, hand- prjónuð á Íslandi, úr nýull og prjónuð í hring án sauma en má vera opin eða heil. Nú þegar þetta liggur fyrir er ljóst að íslenskum lopapeysum hefur stórfækkað í landinu, því margar þeirra sem áður töldust íslenskar eru það ekki lengur því þær voru prjón- aðar erlendis, og ekki í hring. Enn er óljóst hvort peysa sem prjónuð er af íslenskum höndum en á erlendri grund telst íslensk. Úr því þarf að skera sem fyrst. Fínafólksveiran Það er mildi að afstýra tókst áformum um að kenna Covid- 19 við Wuhan og Ítalíu, hér á Íslandi allavega, þótt verst þokkuðu þjóðarleiðtogar heims keppist enn við að sverja hana af sjálfum sér. Fólkið á götunni hefur fyrir löngu fundið veirunni nafn. Það kennir hana við fína fólkið sem hefur ráð á að skreppa á skíði í Ölpunum í miðju skamm- deginu. Þótt verkfallsaðgerðum Sólveigu Önnu hafi verið kennt um útbreiðslu veirunnar er staðreyndin sú að hún er mest á heldrimannaheimilum landsins. kristinnhaukur@frettabladid.is ára Á morgun er eitt ár síðan Mannréttinda-dómstóll Evrópu kvað upp dóm í Lands-réttarmálinu. Við vitum enn ekki hvaða áhrif niðurstaðan hefur fyrir dóms-kerfið. Við bíðum endanlegrar niður-stöðu frá yfirdeild dómsins. Áhrif þeirrar biðar eru öllum ljós. Fjölmargir bíða í óvissu um endanlega úrlausn sinna mála. Þriðjungur dómara við Landsrétt er með tíma- bundna skipun og dómstóllinn á mörkum þess að upp- fylla skilyrði um sjálfstæðan og óháðan dómstól. Að auki gekk hann svo lengi á skertum mannafla að málin hafa hrannast upp. Ríkisstjórnin óskaði eftir endurskoðun yfirdeildar með vísan til mikilsverðra hagsmuna en þeir hagsmunir eru óljósir í augum flestra borgara landsins. Það er langsótt að telja dómarastöður og valdsvið ráðherra til mannréttinda á pari við réttindi sakaðra manna og enn lengra sótt að það sé göfugt hlutverk íslenskra stjórn- valda að styðja dómstólafúsk í Póllandi og Ungverja- landi. Yfirlýsingar valdhafa hafa litlu bætt við traustið á þessari vegferð. Ráðherrar í sömu ríkisstjórn hafa ýmist ítrekað mikilvægi þess að ríkið virði dóma MDE eða lýst því yfir að Ísland sé ekki bundið af niðurstöðum hans. Landsmenn verða að umbera niðurstöður kosninga. Alþingi er misvel skipað og af því leiða misgóðar ríkis- stjórnir. Lýðræðið er illskást, eins og Churchill sagði. Til mótvægis við hið pólitíska vald gerir stjórnskip- unin hins vegar ráð fyrir að borgararnir geti reitt sig á stöðugt dómsvald sem haggast ekki þótt misvitrir taki við pólitískum stjórnartaumum; sjálfstæðu dómsvaldi sem er útvörður réttinda borgaranna og stendur eins og klettur þótt ríkisstjórnir komi og fari. En Mannréttindadómstóllinn hefur ekki látið sitja við skipun Landsréttar, því ofan í þá óvissu eru stjórn- völd gerð afturreka með uppgjör hrunsins í hverju málinu á eftir öðru. Og enn fleiri endurupptökubeiðnir refsidóma hrannast upp sem bætast við halann sem Landsréttarmálið skapaði. Og þar sem ríkisstjórnin hættir að rækta óvissu taka dómstólarnir við. Hæstiréttur hefur þegar vísað endur- upptöku eins máls frá dómi, þrátt fyrir niðurstöðu MDE um brot á banni við tvöfaldri refsimeðferð. Frá- vísunarkröfur í tveimur málum um vanhæfi dómara bíða meðferðar. Í húfi er raunveruleg þýðing aðildar að Mannréttindadómstólnum fyrir borgarana. Undirbúningur nýs millidómsstigs tók áratug. Mark- miðið var aukin mannréttindavernd og réttlát máls- meðferð í samræmi við Mannréttindasáttmála Evrópu. En borgarar landsins fá ekki lausn sinna mála í kjölfar sigurs í Strassborg. Meginreglur um skipun dómsvalds- ins riða á brauðfótum og samsæriskenningar grassera. Traust á dómstólum fer minnkandi, og var ekki af miklu af taka. Af hálfu valdhafa stígur enginn fram til að slá á óvissuna. Hvorki virðist unnið að uppbyggingu trausts hjá ríkisstjórn eða sökudólgnum Alþingi, né af hálfu dómstólanna sjálfra nema síður sé. Landsréttur er í tilvistarkreppu og Hæstiréttur í sóttkví. Ár í óvissu 1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R8 S K O Ð U N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SKOÐUN

x

Fréttablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.