Fréttablaðið - 11.03.2020, Side 11

Fréttablaðið - 11.03.2020, Side 11
Aðalfundur Símans hf. verður haldinn fimmtudaginn 12. mars 2020 kl. 16:00 að Nauthól við Nauthólsvík Ítarlegri upplýsingar um efni fundarins, þar á meðal skjöl og tillögur sem lögð verða fyrir fundinn, eru aðgengilegar á vefsíðu félagsins siminn.is/umsimann/fundir 1. Skýrsla stjórnar um starfsemi félagsins á liðnu starfsári. 2. Staðfesting ársreiknings samstæðu og móðurfélags og tekin ákvörðun um hvernig fara skuli með hagnað eða tap félagsins á reikningsárinu. 3. Ákvörðun um greiðslu arðs. 4. Tillögur til breytinga á samþykktum félagsins í tengslum við skipun nefndarmanna í tilnefningarnefnd og breyting á starfsreglum tilnefningarnefndar. 5. Kosning einstaklinga í tilnefningarnefnd. 6. Kosning stjórnar félagsins. 7. Kosning löggilts endurskoðanda eða endurskoðunarstofu. 8. Ákvörðun um þóknun til stjórnar- manna félagsins fyrir störf þeirra sem og þóknun nefndarmanna í undirnefndum og í tilnefningarnefnd. 9. Tillaga stjórnar um starfskjarastefnu félagsins. 10. Tillaga um lækkun á hlutafé og breytingu á samþykktum félagsins. 11. Tillaga um að heimila félaginu kaup á eigin hlutabréfum skv. 55. gr. hlutafélagalaga. 12. Önnur mál. Tillaga um breytingar á samþykktum félagsins varða greinar 10.12, 11.2 og 11.4, en allar breytingarnar lúta að því að gera breytingar á skipan tilnefningarnefndar þannig að allir þrír nefndarmenn verði kjörnir á hluthafafundi. Þá er lögð til sú breyting að stjórn tilnefni aðila í nefndina þegar boðað er til aðalfundar og að hluthafar geti komið með tilnefningar eigi síðar en sjö dögum fyrir aðalfund. Enn fremur er lögð til breyting á grein 4.1 vegna lækkunar á hlutafé félagsins. Þá er lögð til breyting á viðauka við samþykktir sem tengjast heimild til kaupa á eigin hlutum félagsins. Stjórn Símans hf. Dagskrá 1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I Ð V I K U D A G U R10 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð SPORT FÓTBOLTI Íslenska kvennalands- liðið kvaddi æf ingabúðirnar á Spáni með 1-0 sigri á Úkraínu í gær. Ísland vann því tvo leiki af þremur á æfingamótinu sem var hluti af und- irbúningi liðsins fyrir næstu leiki í undankeppni EM. Eina mark leiks- ins kom eftir snarpa sókn þar sem Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir stýrði fyrirgjöf Fanndísar Friðriksdóttur í netið. Líkt og í fyrri leikjum móts- ins fjaraði undan sóknarleiknum þegar líða tók á leikinn. Þetta var tíunda mark Gunnhild- ar fyrir landsliðið og hennar fyrsta í tæp tvö ár. Með því varð Gunn- hildur þrettánda konan sem nær að skora tíu mörk fyrir A-landsliðið og deilir 12.-13. sæti á markalistanum með Katrínu Ómarsdóttur. „Spilamennska liðsins á mótinu var kaf laskipt. Það jákvæða er að við vinnum tvo leiki, höldum hreinu í þeim báðum, þar fengu leikmenn fyrstu leiki sína og aðrar fengu mikilvægar mínútur eftir of langt hlé frá landsleikjum,“ sagði Jón Þór Hauksson, þjálfari kvenna- landsliðsins, um spilamennsku liðsins á mótinu. Aðspurður sagði þjálfarinn til- finninguna blendna eftir mótið og tók undir að það væri margt sem betur mætti fara. „Að sama skapi er það rétt að við vorum ekki að skora nægilega mikið og ekki að skapa nógu mörg færi. Spilamennska liðsins í gær var sú besta á mótinu en eins og í fyrri leikjunum vantaði oft lykilsending- una til að komast í færi. Það skrifast kannski á skort á leikformi, bæði eru lykilleikmenn búnir að vera að glíma við meiðsli og margar á undir- búningstímabili. Á þessum árstíma vantar oft aðeins upp á leikformið hjá okkur og það dró verulega af okkur undir lok leikjanna.“ Á sama tíma var stúlknalandslið ið í U19 að gera gott mót og vann Ítalíu, Þýskaland og Sviss á æfinga- móti á Spáni. Jón Þór tók undir að það væri gleðiefni að sjá þessi úrslit. „Við náðum að sjá tvo leiki hjá þeim ásamt því að hitta hópinn og funda með þeim. Það er ljóst að við eigum gríðarlega efnilega leikmenn sem eru að vaxa, dafna og þroskast sem leikmenn í þessum U-19 verk- efnum. Framtíðin ætti að vera mjög björt hjá okkur.“ – kpt Margt sem má betur fara Jón Þór ásamt Hlín og fyrirliðanum Söru Björk. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR Við vorum ekki að skora nægilega mikið og ekki að skapa nógu mörg færi. Jón Þór Hauksson FÓTBOLTI „Rúmenar ætla að fjöl- menna þó einhverjir séu búnir að af bóka sig. Eins og staðan er mun þó nokkur fjöldi koma því það er svakalega mikill áhugi fyrir leikn- um í landinu. Ég hef fundið fyrir því,“ segir Jafet Ólafsson, ræðis- maður Rúmeníu hér á landi. Jafet er eðlilega í miklu sam- skiptum við þá Rúmena sem áætla komu sína til landsins vegna lands- leiks Íslands og Rúmeníu sem settur er á þann 26. mars, verði ekki komið á samkomubann og hann leikinn fyrir luktum dyrum. Jafet segir að áhuginn á leiknum sé mikill í Rúm- eníu. „Ísland er mjög þekkt í Rúm- eníu vegna þess hvað við erum góð í handbolta. Rúmenar urðu þrisvar heimsmeistarar í handbolta og áttu mjög sterkt landslið. Það fylgdust allir Rúmenar með EM 2016 þegar við unnum Englendinga og héldu með okkur,“ segir hann léttur. Frekar fá tilfelli af COVID-19 hafa fundist í Rúmeníu en engu að síður hafa yfirvöld ákveðið að loka öllum skólum til 22. mars og fótboltaleikir verða spilaðir fyrir luktum dyrum. Jafet segir að staðan breytist ört og þeir sem hann hefur verið í sam- skiptum við ætla að taka stöðuna þegar nær dregur leik. „Það eru engin takmörk á komu rúmenskra stuðningsmanna til landsins eins og er. Ég hef fengið mörg símtöl, meðal annars frá fólki sem var að spyrjast fyrir um hvernig staðan væri hér á landi varðandi þessa veiru.“ Jafet, sem þekkir vel til íþrótta eftir veru sína í hinum ýmsu stjórn- um, en hann gegnir nú forseta- embætti Bridgesambands Íslands og bauð sig fram til formanns KSÍ árið 2007, segir að Ísland ætti vinna þennan leik. „Rúmenar eru að endurreisa landsliðið og eiga sína vonarstjörnu í Hagi. Þeim hefur gengið vel með yngri landsliðin sín en Ísland er með sterkara lið og á góðum degi eigum við að vinna þá.“ Á blaðamannafundi almanna- varnadeildar Ríkislögreglustjóra var Víðir Reynisson spurður út í leikinn og hvort hann yrði leik- inn fyrir luktum dyrum. „Það er ómögulegt að segja. Rúmenía er ekki skilgreint áhættusvæði og eins og staðan er þá getur fólk frá Rúm- eníu ferðast til Íslands.“ Víðir benti þó á að ef samkomu- bann yrði sett á hér á landi félli leikurinn svo sannarlega undir þá skilgreiningu enda löngu uppselt og um 10 þúsund manns munu þá streyma í Laugardalinn. Á samráðsfundi á mánudag, sem Víðir og Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir héldu með fulltrúum Íþrótta- og Ólympíusambands Íslands og fulltrúum sérsambanda innan ÍSÍ, kom fram að áhorfendum væri áfram óhætt að mæta á íþrótta- leiki hér á landi. benediktboas@frettabladid.is Stuðningsmenn Rúmena hætta við Jafet Ólafsson, ræðismaður Rúmeníu hér á landi, segir að nokkrir stuðningsmenn landsliðsins hafi afbókað ferð sína til Íslands vegna COVID-19. Rúmenía er ekki skilgreint hættusvæði og allir Rúmenar velkomnir, segir Víðir Reynisson yfirlögregluþjónn. Fjölmargar þjóðir hafa bannað áhorfendur á fótboltaleikjum að undanförnu, meðal annars Rúmenar. Hér á landi er þó ekkert slíkt við lýði og vonandi fá 10 þúsund manns að syngja í Laugardalnum 26. mars. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.