Fréttablaðið - 11.03.2020, Blaðsíða 13
Fólk er kynningarblað sem býður auglýsendum
að kynna vörur og þjónustu í formi viðtala og
umfjallana. Í blaðinu er einnig hefðbundið rit-
stjórnarefni. Blaðið fylgir Fréttablaðinu daglega.
Umsjónarmenn efnis: Elín Albertsdóttir, elin@frettabladid.is, s. 550 5761 | Hjördís Erna
Þorgeirsdóttir | hjordiserna@frettabladid.is s. 550 5767 | Oddur Freyr Þorsteinsson, oddurfreyr@
frettabladid.is s. 550 57686 | Sandra Guðrún Guðmundsdóttir, sandragudrun@frettabladid.is, s.
550 5762 | Þórdís Lilja Gunnarsdóttir, thordisg@frettabladid.is, s. 550 5768
Útgefandi:
Torg ehf
Ábyrgðarmaður:
Jóhanna Helga Viðarsdóttir
Sölumenn: Arnar Magnússon, arnarm@frettabladid.is, s. 550 5652, Atli
Bergmann, atli@frettabladid.is, s. 550 5657, Jón Ívar Vilhelmsson, jonivar@
frettabladid.is, s. 550 5654, Jóhann Waage, johannwaage@frettabladid.is,
s. 550 5656, Ruth Bergsdóttir, ruth@frettabladid.is, s. 694 4103,
Undanfarna daga hefur orðið sprenging í heimsendingu á matvöru í Nettó og við
finnum að fólk hefur fækkað
ferðum sínum í búðirnar en fyllir
stærri körfurnar í hverri ferð. Það
er gríðarleg ásókn í vefverslunina
og í gær var okkar stærsti dagur frá
upphafi, og sá stærsti þar á undan
var í fyrradag,“ segir Gunnar Egill
Sigurðsson, framkvæmdastjóri
verslunarsviðs Samkaupa.
Hann mældi áður aðsókn í
vefverslun og heimsendingar
þjónustu Nettó í mánuðum en nú
mælist hún í vikum og dögum.
„Þetta er bæði vegna kóróna
veirunnar en líka vegna aukinnar
tilhneigingar til netverslunar
í þjóðfélaginu. Fólki er ráðlagt
að forðast mannmergð og taka
óþarfa áhættu og beina verslun
sinni frekar í gegnum vefverslanir
og heimsendingar. Því höfum við
sprengt allt utan af okkur á liðnum
dögum, okkur vantar enn fleiri
bílstjóra í heimsendingarnar og
Aha bætti við fjórum nýjum bílum
í síðustu viku en þau kaup eru
þegar sprungin,“ upplýsir Gunnar
Egill.
Allt keyrt út á rafbílum
Þegar kemur að heimsendingu
matvara er Nettó í samstarfi við
markaðstorgið Aha.
„Lykill að góðum árangri í
heimsendingum er skilvirkni. Því
ákváðum við strax í upphafi að
efna til samstarfs við Aha því við
vildum úthýsa þeim þætti starf
seminnar frá rekstri vefverslunar.
Umhverfisvernd er sömuleiðis
leiðarljós okkar í heimsendingum
og því eru allar sendingar frá
Nettó keyrðar út á raf bílum Aha,“
segir Gunnar Egill, en í raf bílaflota
Aha eru nú alls tuttugu bílar og tíu
hleðslustöðvar.
Vefverslun og heimsendingar
þjónusta Nettó var opnuð haustið
2017 og var strax tekið fagnandi
hjá neytendum. Nú þegar er keyrt
með vörur heim á öllu höfuð
borgarsvæðinu, Suðurnesjum og
Akureyri og í skoðun eru nýjar
leiðir í dreif býlinu, til dæmis í
Eyjafirði og á Suðurlandi.
„Við finnum fyrir vaxandi
eftirspurn eftir heimsendingu
hjá íbúum í dreifðari byggðum
landsins en líka hjá aðilum í
ferðaþjónustu sem vilja nýta sér
þjónustu okkar frekar en stærri
birgja í nærsamfélaginu,“ upplýsir
Gunnar Egill.
Sparnaður í alla staði
Heimsendingarþjónusta Nettó er
einkar hagstæð fyrir viðskipta
vini.
„Ef keyptar eru vörur fyrir 15
þúsund krónur eða meira kostar
ekkert að fá vörurnar sendar heim,
og aðeins 1.490 krónur ef keypt
er fyrir lægri upphæð. Reynslan
sýnir að hver viðskiptavinur fer að
meðaltali þrisvar í viku í matvöru
verslun en séu vikuinnkaupin gerð
í vefverslun Nettó sparast bæði
akstur, tími og fyrirhöfn ásamt því
sem innkaupin verða umhverfis
vænni og heimsendingin frí,“
útskýrir Gunnar Egill.
Hann segir skýr merki um að
þessi neysluhegðun sé að breytast
hjá landsmönnum.
„Með því að versla á netinu er
hægt að spara sér 20 kílómetra
akstur á viku og fá heimsending
una fría. Sá skilningur er að verða
æ útbreiddari, f lestir vilja versla
á sem umhverfisvænastan máta
og við sjáum fólk nota netið í æ
meiri mæli til að gera stórinnkaup
en svo stekkur það eina eða tvær
ferðir í búðina til að kaupa eitt
hvað smálegt sem vantar. Í fram
tíðinni mun því fólk gera stórar
pantanir fyrir heimilið einu sinni
í viku og verslunarhúsnæði mun
dragast saman.“
Aðgerðir vegna kórónaveiru
Nettó hefur gert aðgerðaáætlanir
vegna Covid19 þegar kemur að
öllu ferli heimsendingarþjónust
unnar.
„Það á við um starfsfólkið sem
tínir til pantanirnar og bílstjórana
sem sækja pantanir og fara með
heim til viðskiptavina. Því eru
allar sendingar Nettó orðnar
snerti lausar og við afhendum
engar vörur beint í hendur við
skiptavina heldur skiljum þær
eftir fyrir utan á umsömdum tíma.
Þá erum við með sóttvarna áætlun
í búðunum og bílum Aha, þrífum
og sótthreinsum alla álagsfleti,
körfur og innkaupakerrur á
fjögurra tíma fresti og bílarnir eru
sótthreinsaðir á milli sendinga.
Við tókum ákvörðun um að
setja bílstjórana ekki í hættu við
að afhenda vörurnar sjálfir og
fólk skrifar einfaldlega í athuga
semdum við innkaupin á netinu:
Ég er í sóttkví. Vinsamlegast skiljið
vörurnar eftir fyrir utan,“ útskýrir
Gunnar Egill.
Er jákvæður að eðlisfari
„Ég held, þegar upp er staðið,
að kórónaveiran muni breyta
neysluhegðun landsmanna.
Margir eru vanir því að kaupa sér
fatnað, skó og raftæki á netinu en
matarkaup eru aðeins f lóknari
og þarf þrjú til fimm skipti til að
verða vanur netkúnni. Á síðustu
tveimur vikum hafa þúsundir
viðskiptavina gert matarinn
kaupin í vefverslun Nettó og það
eru miklar líkur á að þeir hætti
ekki að gera innkaup sín á netinu
þegar faraldurinn gengur yfir.
Fyrsti þröskuldurinn er kannski
erfiður en ekki sá næsti og eftir
fimm pantanir verður leikur einn
að panta stóra sendingu,“ segir
Gunnar Egill.
Hægt er líka
að sækja vörur
sem pantaðar
eru í vefverslun
Nettó í læsta
skápa í verslun
Nettó í Mjódd.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIG-
TRYGGUR ARI
Starfsfólk Nettó leggur alúð við að tína til gæða vörur sem viðskiptavinir Nettó hafa pantað á netinu og býr það til heimsendingar. FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
Það tekur þrjú til fimm skipti að komast upp á lagið með að panta á netinu.
Ég held að kóróna
veiran muni
breyta neysluhegðun
landsmanna. Á undan
förnum tveimur vikum
hafa þúsundir gert
matarinnkaup í vef
verslun Nettó og miklar
líkur á að þeir hætti því
ekki þegar faraldurinn
gengur yfir.
Framhald af forsíðu ➛
Nú sem fyrr þurfi að passa upp
á gæði og þjónustuupplifun við
skiptavina á netinu.
„Fólk er óðum að tileinka sér
matarinnkaup á netinu og við
fáum mörg skemmtileg ummæli
í athugasemdum vefverslunar
Nettó, eins og: „Hvar hefur þú
verið allt mitt líf?“ og „Ég trúi því
ekki hvað þetta er auðvelt og hve
gæðin eru góð!“.“
Framtíðin er spennandi
Slagorð Nettó er: „Lægra verð.
Léttari innkaup.“
„Okkar hugmyndafræði er
að létta fólki lífið. Verðið er jafn
lágt og áður og ef maður hugsar
út í sparnaðinn með því að fara
bara einu sinni til tvisvar í viku í
búðina er maður strax búinn að
spara sér hálftíma á viku. Það gerir
tvær klukkustundir á mánuði og
heilan sólarhring á ári sem annars
færi í búðaráp. Á þessu græða allir;
umhverfið, neytandinn og fjöl
skyldan, við eyðum ekki dýrmæt
um tíma í að sækja okkur aðföng,
við gerum auðveld vikuinnkaup
á netinu, fáum matinn sendan
frían heim og eignumst f leiri
gæðastundir í lífinu og með okkar
nánustu,“ segir Gunnar Egill.
Hann horfir líka til framtíðar
„Nú þegar erum við með raf bíla
í heimsendingarþjónustu Nettó
en hvað svo? Menn tala um sjálf
virkar sendingar með róbótum og
drónum og í fyrrasumar gerðum
við tilraunir með heimsendingu
með dróna. Margir hlæja þegar
talað er um þetta en samt er þetta
raunveruleikinn og alls engin Mat
rixumræða úr fjarlægri framtíð.
Nú þegar eru til róbótar sem fara
með heimsendingar og sjálf
keyrandi Teslur og því ekki að láta
þær keyra matinn heim? Verkefni
framtíðarinnar eru spennandi
og hvernig skyldi hún verða eftir
fimm ár? Ég efast um að þá verði
100 bílar frá Domino’s eða Nettó á
ferðinni en hver lausnin verður er
enn ómögulegt að segja.“
Heimsendingarþjónusta og vef-
verslun Nettó er á netto.is.
2 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 1 . M A R S 2 0 2 0 M I ÐV I KU DAG U R