Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 2019, Qupperneq 7

Hugur og hönd - 2019, Qupperneq 7
 2019 HUGUR OG HÖND 7 Á safni Viktoríu & Alberts Íslendingar hafa löngum lagt leið sína til Lundúna, ekki síst til að reika um fjölfarnar verslunargötur og kaupa tískuvarning. Á síðustu árum hefur hins vegar brugðið svo við að nokkrir þeirra hafa sýnt glysi miðborgarinnar lítinn áhuga en hafa lagt leið sína í eitt úthverfi borgarinnar, Suður Kensington. Þar er hið mikla safn sem kennt er við Viktoríu og Albert (V&A). Sýningarsali er vert að skoða en áhuginn hefur þó beinst að því að fara í geymslur safnsins og fá að sjá gamla, íslenska faldbúninginn sem þar er. Heim- sókn í geymslur V&A safnsins verður að undirbúa og panta með góðum fyrirvara. Gestir þurfa að mæta á tilskildum tíma og skrá sig í móttöku. Þeim er síðan fylgt inn í einn sal geymsluhússins þar sem eru miklir skápar með veggjum. Búningurinn og allt hans skraut liggur umvafinn silkipappír í stórum skúffum í einum skápnum. Safnvörður leggur búningahlutana á borð í salnum og gestir mega berja búninginn augum, taka af honum myndir án leifturljósa en ekkert snerta. Safnvörður einn, hanskaklæddur, snertir góssið. Myndir sínar má gesturinn ekki birta opinberlega. Þegar ég stóð klökk yfir faldbúningnum haustið 2013 sagði ég starfsmönnum í salnum það sem ég vissi um sögu hans. Ég var þá beðin um að endurtaka hana fyrir bekk af meistaranemum í safnafræðum sem voru í húsinu. Kennari þeirra hafði á orði að þetta fólk væri að undirbúa störf í söfnum Bretlands þar sem væru hlutir víðs vegar að úr heiminum. Mikil- vægt væri að starfsmenn safna áttuðu sig á að munir í þeirra vörslu gætu verið einstakir og skipt verulegu máli fyrir aðrar þjóðir, væru oft mikilvægir hlekkir í menningarsögu þeirra, þótt breska safnafólkið gerði sér það ekki ljóst. Líklega hefur kennaranum fundist það ágæt lexía fyrir nemendur sína að horfa á mig segja frá íslenska búningnum svo hrærða og hrifna að tárin runnu niður kinnarnar! Starfsfólk V&A vissi að búningurinn væri óendanlega merkilegur og mikil- vægur en þannig hafði það ekki alltaf verið. Búningurinn fluttur utan, Elsa finnur hann Sá sem flutti búninginn og allt sem honum fylgdi til Englands árið 1809 hét William Jackson Hooker (1785-1865).1 Ólíkur flestum öðrum sem til landsins komu til landkönnunar á þessum tíma þá var Hooker ekki ríkur glaumgosi að leita ævintýra heldur hafði hann unnið sig upp til virðingar innan breska vísinda- samfélagsins vegna hæfileika sinna. Forseti Vísinda- félagsins var sir Joseph Banks. Hann hafði mikinn áhuga á Íslandi eftir ferð þangað árið 1772 og hvatti og studdi Hooker til Íslandsferðar. Hooker kom til Faldbúningurinn fagri og koffrið sem honum fylgdi H ö f u n d u r : Sigrún Helgadótt ir - L j ó s m y n d i r : S já myndaskrá
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.