Hugur og hönd - 2019, Page 16
16 HUGUR OG HÖND 2019
og leysa sundur arkirnar hverja
frá annarri. Síðan er sorfið í kjöl-
inn fyrir kappaböndum. Bækurnar
eru vanalega saumaðar í saumstól.
Á saumstólinn eru strekkt kappa-
bönd sem arkirnar eru saumaðar
við. Þá er bókin límborin í kjölinn,
skorin og rúnnuð svo komi fal-
legur bogi á kjölinn. Þá er bókin
falsbarin sem svarar þykktinni
á hliðarpappanum sem fellur í
falsinn. Að því búnu er gengið frá
hliðarspjöldum og kjölkragi settur
á til skrauts. Vandaður kjölkragi
er búinn til úr skinni eða saum-
aður við kjölinn með silkiþráðum.
Kraftpappír er límdur í kjölinn
til að styrkja bandið og halda
rúnningunni í réttum skorðum.
Utan á bókina kemur síðan bók-
bandsskinn sem nær vanalega inn
á spöldin. Þá er spjaldpappír sem
fer vel við skinnið og saurblöðin
límd á hliðarnar. Þegar falslisti og
saurblöð hafa verið límd niður er
bandi lokið. Þá tekur við skreyting
og gylling bókarinnar. Línur
eða annað mynstur er gyllt með
fílettum og gyllingarstimplum, en
letri raðað upp í leturtöng.
Það krefst mikillar natni að
binda inn bók með öllum þeim efn-
iskosti og tilbrigðum sem notuð
eru við að skreyta bókina. Sem
dæmi tekur um 6-8 klukkustundir
að binda inn eina bók, en getur
tekið allt upp í viku. Það tók Sigur-
þór til dæmis rúma viku að binda
inn Guðbrandsbiblíu í samskonar
band og var gert upphaflega, með
spenslum og látúnshornum.
Heimildir:
Ingi Rúnar Eðvarðsson; Prent eflir mennt. Hið
íslenska bókmenntafélag. Reykjavík 1994.
Sigurþór Sigurðsson; Drög að sögu bókbands á
Íslandi. Tekið saman árin 1999-200l.
Sigurþór Sigurðsson; Munnleg heimild febrúar
2019.
Prentarinn, tímarit.is, 24. árgangur 2004.
Handverk á heimsmælikvarða.
Morgunblaðið. Fjórar tilraunir áður en
hugmyndin var mótuð. 14. September 2003.
Morgunblaðið; Vinnur að bók um bókband og
bókbindara. 21. september 2018.
Morgunblaðið; Útlitið er málið en ekki
innihaldið. 21. september 2018.