Hugur og hönd

Ataaseq assigiiaat ilaat

Hugur og hönd - 2019, Qupperneq 20

Hugur og hönd - 2019, Qupperneq 20
20 HUGUR OG HÖND 2019 gliti sem ofið er annars staðar á Norðurlöndunum, að því leyti að það er ofið með réttuna upp.5 Glitvefnaður er nokkuð líkur erlendri aðferð í vefnaði sem heitir dukagång á sænsku og brocaded on the counted thread á ensku en munsturbandinu er brugðið um uppistöðuþráðinn á ólíkan hátt. Útkoman er ekki eins en það lík að auðvelt er að rugla þeim saman. Munurinn er sá að þegar glitað var í vefstaðnum, og síðan einnig í vefstóli hér á landi, þá sneri rétthverfan að þeim sem óf, en við dukagång-vefnað snýr hún niður, eða frá vefaranum. Til eru nokkur bindimunstur fyrir glitvefnað og eru þau byggð upp eftir því hversu margir þræðir eru hafðir í hverju glitspori eða rúðu. Í gömlum söðuláklæðum er yfirleitt sjötti hver þráður glitþráður og talið er að þannig hafi glitið verið ofið í gömlu kljá- steinavefstöðunum og í láréttum vefstólum þegar þeir komu hingað um miðja 18. öld. Að vefa söðuláklæði Þegar söðuláklæði með íslensku gliti er ofið í kljásteinavefstað þarf tvö vefsköft eða hafaldasköft, einskeftuskaft og glitskaft sem er hnýtt eftir því hversu margir þræðir eiga að vera í glitsporinu. Sigríður Halldórsdóttir segir að eðlilegast hafi verið að hnýta höföld fyrir glitskaftið af þráðum sem liggja fyrir framan skilfjöl,6 eins og sjá má á mynd 6. Ýmist er hægt að hnýta glitþráðinn sem fjórða, fimmta eða sjötta hvern þráð og er þá hnýtt á glitskaftið samkvæmt því. Algengt var að hafa fimmta eða sjötta hvern þráð sem glitþráð en á mynd 6 er fjórði hver þráður hafður glitþráður. Togþráður sá sem notaður var í uppistöðu á söðuláklæðunum á 18. og 19. öld var mun fínni en sá verksmiðjuspunni þráður sem nú er framleiddur hjá Ístex (áður Gefjun og Álafoss). Því eru hafðir mun færri þræðir á sentimetra í glitvefnaði nú en áður fyrr, sem gerir það að verkum að færri þræðir eru í hverju glitspori, ella verður munstrið of stórgert. Sagt hefur verið að söðulá- klæðin hafi verið ofin án uppdrátta, munstrið orðið til jafnóðum. Alveg er hugsanlegt að svo hafi verið í einhverjum tilfellum og jafnvel í upphafi, en sama munstur á mörgum áklæðum bendir þó til að uppdrættir hafi verið til og gengið milli manna.7 Algengustu munstur á söðuláklæðunum eru tveir sam- hverfa jurtapottar, sinn í hvorum enda, með stílfærðum stórgerðum blómamunstrum sem minna á akantus og túlipana, með rósum inn að miðju. Á jöðrum og köntum eru gjarnan tvær til þrjár gerðir af bekkjum og upphafsstafir og ártal eru ýmist þvert yfir miðju eða meðfram brúnum skammhlið- anna. Munstrin eru reitamunstur, byggð upp á ferhyrndum sporum og unnin á rúðustrikaðar arkir eða pappír og hafa munstrin varðveist í handritum í svo kölluðum sjóna- bókum og sjónablöðum. Þekkt eru tíu sjónabókahandrit og eru þau frá seinni hluta 18. aldar og fyrri hluta 19. aldar, að undanskildu einu frá 17. öld.8 Sjónabókahand- ritin sýna rúðumunstur fyrir útsaum, vef, prjón og annað hand- verk. Sjónabók Jóns Einarssonar frá Skaftafelli (Þjms. Þ&ÞTh 116) er einna merkust vegna fjölda margbreytilegra munstra en hún er frá ofanverðri 18. öld.9 Aðeins er þó tiltekið eitt munstur sem er sagt fyrir glitvefnað. Samkvæmt samantekt á öllum 10 sjónabóka- handritum sem til eru hér, eru rúðumunstur með jurtapottum í öllum nema einu, því elsta sem er frá 17. öld.10 Áttablaðarós, bekkja- M y n d 5 : F i m m a l ge n g u s t u b i n d i m u n s t u r s e m n ot u ð h a f a ve r i ð t i l a ð ve f a í s l e n s k t g l i t . Ö l l b i n d i m u n s t r i n , n e m a B , e r u o f i n á f j ö g u r s k ö f t o g þ r j ú s k a m m e l . B i n d i m u n s t u r B , C o g D vo r u þ e k k t á 18 . o g 19 . ö l d i n n i e n b i n d i m u n s t u r A o g E e r u þ e k k t a r i á 2 0 . ö l d . Þ a ð ge t u r re y n s t e r f i t t a ð g re i n a á m i l l i g l i t s a u m s o g g l i t ve f n a ð a r, e n þ e ga r ve l e r a ð g á ð m á s j á a ð þ a r s e m t ve i r l i t i r m æ t a s t í o f n u m gl i t s p o r u m þ á ve f a s t l i t i r n i r h ve r i n n í a n n a n á l i t a s a m s k e y t u m ( v i n s t r i ) , e n í g l i t s a u m i e r u s p o r i n a ð s k i l i n ( h æ g r i ) .
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68

x

Hugur og hönd

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.