Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2019, Side 26

Hugur og hönd - 2019, Side 26
26 HUGUR OG HÖND 2019 Áhrif og fyrstu hugmyndir Hildur María Hansdóttir er fædd árið 1952 og er með vinnustofu í Kaupvangsstræti á Akureyri. Hildur hóf að hekla mottur um 1980, þá til heimilis að Aðalstræti 10 á Akureyri. Húsið var byggt árið 1902 af verslunarmönnunum og bræðrunum Sigvalda og Jóhannesi Þorsteinssonum sem ráku þar versl- unina Berlín. Enn í dag er húsið nefnt því nafni. Í íbúðinni hvar Hildur bjó var langur gangur á milli eldhúss og stofu og hún hefur orð á því að þarna hafi fyrst kviknað hugmyndin að því að hekla dregil. Hún var einnig minnug heimsóknar á heimili þeirra Carls og Karinar Larson í bænum Sundborn í Dölunum í Svíþjóð. Sú ríka hefð skandinavísks heimilisiðnaðar sem er áberandi í safni þeirra hjóna í Sundborn vakti áhuga Hildar. „Líklega datt mér fyrst í hug að hekla dregil þegar ég horfði á timburgólfið í Aðalstræti 10. Þarna fór að kvikna hugmynd að heklaðri mottu í bláum litaskala. Einnig var minningin um heimsóknina í safn Carls og Karinar þá ofarlega í huga mér.“ Mörg þeirra verka sem Hildur hefur gert hafa orðið til út frá einstökum upplifunum og ýmsum fyrirbærum í náttúrunni sem vekja hughrif og kalla fram þörf til að raða saman litum. „Bláir litatónar eru heillandi og nefnast þá verkin Kvöldlokkur, Nátt- bláa, og Næturfjóla.“ Hugann fanga ýmis kennileiti í náttúrunni eins og Grundarreitur, Hjáleið, Nafir, Fjöru- borð og Fjaran. Þá hættir blái liturinn e.t.v. að vera ríkjandi og verkin fá annan litaskala, til að mynda ýmsa jarðliti. Í fyrstu ætlaði Hildur motturnar á gólf en síðar urðu til verk á borð við Malbik, Júpiter og Lágheiði sem eru fremur hugsuð fyrir veggi en gólf. Réttur litur og áferð Undirbúningur að gerð verkanna hefst með því að Hildur safnar og velur hin ýmsu efni og plögg á fatamörkuðum Rauða krossins og Hjálpræðishersins, Hertex, á Akureyri. Í fyrirrúmi er að finna réttu litina sem hæfa í þá mynd sem höfð er í huga. Hildur þarf að hafa myndefnið, litinn og áferðina í huga þegar hún velur efni í verkin. Undantekningalaust velur Hildur efni úr bómull, viscos eða Að mála með heklunál H ö f u n d u r te xta o g l j ó s m y n d a : Guðmundur Ármann Sigurjónsson H i l d u r l e i t a r a ð ré t t a l i t n u m . M y n d i r á h æ g r i s í ð u : M y n d 1. H l u t i ve rk s i n s , A n d a l ú s í a 9 5 x 15 8 s m . M y n d 2 . F j a ra n 6 0 x 4 6 3 s m . M y n d 3 . L á g h e i ð i 7 0 x 210 s m .

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.