Hugur og hönd - 2019, Síða 30
30 HUGUR OG HÖND 2019
hreinan vítissóda sem getur brennt, eins og áður
sagði. Kúnstin við sápugerð er því að geta reiknað út
á einfaldan hátt hversu mikið þarf af lút á móti fit-
unni sem notuð er, en það fer eftir gerð fitunnar. Nú
á tímum er þetta leyst með einföldum reiknivélum á
netinu og ætti að vera á færi flestra að leysa úr því.
Hægt er að nota margskonar fitu og olíu til sápu-
gerðar, bæði jurtaolíur og dýrafitu. Í nútíma sápugerð
er oftast notuð blanda af jurtaolíum og dýrafitu þar
sem gætt er að ólíkum eiginleikum hráefnisins. Til
dæmis er kókosolía notuð til þess að fá löður, en ólífu-
olía til þess að fá húðvæna sápu. Til eru sápur sem
eru einungis gerðar úr einni tegund af fitu, t.d. eru
Marseille og Aleppo sápur (kenndar við staðina þar
sem þær eru búnar til) báðar gerðar úr ólívuolíu einni
og eru eftirsóttar. Ef ólívuólía er ein notuð við sápu-
gerð þarf að geyma hana nokkuð lengi áður en hún
er nothæf, því hún verður mjög lin og endingarlítil ef
hún er of ung.
Greinarhöfundur hefur gert sápur um margra ára
skeið og þykir algerlega ómissandi að eiga heima-
gerðar sápur á baðinu, bæði til handþvottar, baðferða
og hárþvotta.
Sáðugerð er frekar einföld og hér er einföld upp-
skrift að sápu sem hægt er að spreyta sig á. Þess má
geta að Heimilisiðnaðarfélagið hefur haldið námskeið
í sápugerð sem hafa notið mikilla vinsælda.
Einföld sápa
Notið gúmmíhanska og hlífðargleraugu við sápu-
gerðina. Vítissódi er mjög ætandi efni og á alls ekki
að koma á bera húð. Sama gildir um ferskan sápulög
þegar honum er hellt í mótið eða mjólkurfernuna.
Látið hann alls ekki komast í snertingu við bera húð.
Hér á landi og víðar var afgangsfitu frá matargerð
jafnan safnað saman, hún hreinsuð og nýtt til sápu-
gerðar. Óhreinindi þau sem sitja eftir á steikarfatinu
eru vatnsleysanleg og því er auðvelt að nýta sér þá
eiginleika fitu að fljóta á vatni. Fitan er einfaldlega
sett í skál, vatni hellt yfir og allt saman brætt. Auð-
velt er að nota örbylgjuofn til þess. Gott er að hræra
áður en skálin er sett í ísskáp. Þegar vökvinn kólnar
storknar fitan og liggur ofan á óhreinu vatninu. Þá er
fitan tekin ofan af, vatninu hellt og allt ferlið endur-
tekið. Þetta er gert eins oft og þurfa þykir. Fitan er
fullhreinsuð þegar hún er laus við lit og lykt.
Sumir kynnu að velta fyrir sé hvers vegna nokkur
maður vilji standa í þessu amstri og er því fljótsvarað.
Svínafita er fyrirtakshráefni í sápu og sjaldan á
boðsstólum hreinsuð. Greinarhöfundur safnar því
saman þeirri afgangsfitu sem til fellur, sérstaklega
svínafitu, hreinsar hana og notar í sápur. Fitan geym-
ist mjög lengi í ísskáp án þess að þrána.