Hugur og hönd - 2019, Page 31
2019 HUGUR OG HÖND 31
Af sömu ástæðu er ekki ráðlegt að búa til sápur þegar
börn eru nálægt.
Uppskriftin er fyrir 500 g af fitu/olíu og ætti að
rúmast í einslítra mjólkurfernu.
175 g Ólívuolía
175 g Svínafita
150 g Kókosolía
190 g Vatn
68 g Vítissódi
Vigtið olíurnar og setjið í skál eða könnu. Hitið
í vatnsbaði eða í örbylgjuofni í mínútu í senn þar til
harða fitan er bráðnuð. Látið olíuna kólna í 40 gráður.
Vigtið kalt vatn og setjið í stálpott. Setjið stálpott-
inn undir eldhúsviftu og setjið viftuna á fullan styrk.
Forðist að anda að ykkur gufunum sem koma þegar
vítissódinn er hræður út í vatnið.
Mælið vítissódann í gler eða stálílát og sáldrið hægt
út í vatnið. Hrærið rólega í á meðan til að tryggja að
vítissódinn leysist allur upp. Athugið að vatnið verður
sjóðandi heitt þegar vítissódinn leysist upp. Látið lút-
arvatnið kólna í 40 gráður.
Þegar bæði lútarvatnið og olíurnar eru orðnin 40
gráður þá er lútarvatninu hellt út í olíurnar og hrært
stöðugt í. Best er að nota stafblandara til þess. Hrærið
stöðugt í sápuleginum þar til hann fer að þykkna. Þá
er blöndunni hellt í mjólkurfernu eða sílikonmót.
Látið sápuna sitja í 1-2 daga eða þangað til sápan er
orðin eins og harður ostur. Þá er hún losuð úr mótinu
og skorin í hæfilegar sneiðar. Sneiðarnar þarf að
geyma í 6 vikur áður en sápan er nothæf.
Það eru margir möguleikar til að gera sápuna litríka
og láta hana ilma ef vilji er til þess. Það má t.d. prófa
að bæta einni matskeið af ilmkjarnaolíu, t.d. lavender
eða sítrónugrasi, í þessa uppskrift. Ilmkjarnaolíum
þarf að bæta við allra síðast þegar sápulögurinn er
orðinn hæfilega kaldur. Einnig er möguleiki að nota
litaðar olíur til að gera sápurnar litríkari. Til dæmis
gefur Alkanetrót, sem stundum er notuð í jurtalitun,
fallegan fjólubláan lit og súrurætur geta gefið bleikan
lit. Oftast er nóg að nota 50 g af litaðri olíu, en það
fer þó svolítið eftir litarefninu og smekk. Þá má fá í
föndurbúðum kemísk litar- og ilmefni til að prófa sig
áfram með. Sápurnar má svo skreyta til gamans með
þurrkuðum jurtum.