Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2019, Side 41

Hugur og hönd - 2019, Side 41
 2019 HUGUR OG HÖND 41 Dagana 4.-5. mars síðastliðinn var árlegur formanna- fundur Norrænna heimilisiðnaðarfélaga (Nordens husflidsforbund) haldinn í Reykjavík. Til fundarins komu fulltrúar frá Svíþjóð, Danmörku, Eistlandi, Noregi, Finnlandi og Færeyjum auk Íslands. Samstarf þessara landa á sér langa hefð en samtökin voru stofnuð í Stokkhólmi árið 1927. Tilgangur árlegra formannafunda er að bera saman bækur, miðla af reynslu og skiptast á hugmyndum. Fulltrúi hvers lands flytur stutta ársskýrslu og greinir frá því sem efst er á baugi og sameiginleg hagsmunamál eru rædd. Það er meðbyr með starfsemi heimilisiðnað- arfélaga um þessar mundir enda fer mikilvægi hand- verks ótvírætt vaxandi. Kemur þar einkum tvennt til, jákvæð áhrif þess að stunda handverk á andlega og þar með líkamlega heilsu og sú vaxandi krafa að minnka neyslu og horfa til vandaðrar handgerðar vöru fremur en ódýrs fjöldaframleidds varnings með tilheyrandi neikvæðum umhverfisáhrifum. Mikill kraftur er í samstarfinu og full ástæða til að horfa bjartsýnn fram á veginn. Stefnt er að Norrænum handverksbúðum fyrir ungmenni í Danmörku sumarið 2020 og framhald verður á norrænni handverksviku í byrjun september undir yfirskriftinni „Nordic Craft Week“. Hvert land leggur til vettlingauppskrift sem deilt verður á sameiginlegri fésbókarsíðu og verða uppskriftirnar til frjálsrar notkunar fyrir félögin t.d. til birtingar í tímaritum eða til námskeiðahalds. Undanfarin ár hafa formannafundirnir takmarkast við stífa fundardagskrá. Að þessu sinni var brugðið út af vananum því fundargestir óskuðu eftir að skipulögð yrði dagsferð, enda sumir gestanna að koma til Íslands í fyrsta sinn. Það varð úr að eftir fundinn seinni daginn var farið á Þingvelli og smáspunaverksmiðjan Upp- spuni og ullarsetrið Þingborg heimsótt. Ferðin var vel heppnuð, gestunum gafst tækifæri til að sjá landið auk þess sem samveran gaf ómetanlegt tækifæri til að spjalla en þá fæðast oft bestu hugmyndirnar. Norrænt samstarf af því tagi sem hér er rakið er öllum félögunum mikilvægt, ekki síst fámennu félagi eins og Heimilisiðnaðarfélagi Íslands. H ö f u n d u r : Margrét Valdimarsdótt ir - L j ó s m y n d : Oddný Krist jánsdótt ir Samtök Norrænna heimilisiðnaðarfélaga H ó p u r i n n v i ð h ú s n æ ð i H F Í í Ne t h yl . F rá v i n s t r i M a rg re t h a H e r m a n s e n o g G u n n b j ø rg D a n i e l s e n f rá Fæ re y j u m , L ot t e H e l l e f rá D a n m ö rk u , M i n n a H y y t i ä i n e n f rá F i n n l a n d i , L i i n a Ve s k i m ä g i - I l i s t e f rá E i s t l a n d i , S o l ve i g G r i n d e r f rá No re g i , A ge n t a C a r l s o n f rá S v í þ j ó ð , I n ge - L i s e A n d e r s e n f rá D a n m ö rk u , K i k k a J e l i s e j e f f f rá F i n n l a n d i , L i i s B u rk f rá E i s t l a n d i o g M a rg ré t Va l d i m a r s d ó t t i r.

x

Hugur og hönd

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.