Hugur og hönd - 2019, Qupperneq 46
46 HUGUR OG HÖND 2019
H ö f u n d u r te xta o g l j ó s m y n d a : Þórunn Erla Sighvats
Handbókasafn
Heimil is iðnaðarfélags Ís lands
Inngangur
Menningar- og hugsjónafélag eins og Heimilisiðnað-
arfélag Íslands, hefur eignast smátt og smátt ýmsa
muni, gripi eða heimildir til afnota á sínu langa
æviskeiði. Sem ríflega aldargamalt félag hefur það í
gegnum tíðina notið þess að félagsmenn og ekki síst
fjölmargir velunnarar hafa verið örlátir og gefið gjafir
og lagt fram eitt og annað til þess að efla starfsemina.
Nefna má alls konar bækur, tímarit, blöð, uppskriftir,
úrklippur, prufur, sýnishorn, ljósmyndir og jafnvel
heilu skólaverkefnin í upprunalegu formi.
Félagið hefur til langs tíma lagt metnað sinn í að
sýna þessari ræktarsemi virðingu og haldið til haga
gjöfum og öðrum heimildum sem nýtast og geta stutt
við starfsemina með beinum eða óbeinum hætti. Þar á
meðal eru fjölmargar gjafir í formi bóka- og tímarita,
bæði nýjar eða nýlegar heimildir og ekki síður eldra
efni sem fólk vill gefa lengri lífdaga og bjarga þannig
oft á tíðum verðmætum sem annars færu forgörðum.
Félagið hefur einnig keypt inn handbækur eftir
föngum og ekki má gleyma að nefna útgáfustarfsemi
sem fastan lið í félagsstarfinu.
Megin ástæðan fyrir þessari samantekt um hand-
bókasafnið er sú að á árinu 2018 náðist sá áfangi að
skrá allt handbókasafnið í aðfangalista. Þá sá fyrir
endann á nokkurra ára verkefni sem Safnanefnd
félagsins hafði unnið að í íhlaupavinnu. Í ljós kom að
safnið inniheldur um 1500 titla og jafnframt var því
markmiði náð að vita um og kynnast innihaldi þess.
Það er því full ástæða til að fagna þessum tímamótum
og birta samantekt um handbókasafnið í fyrsta sinn.
Í greininni verður safnið skoðað út frá nokkrum
sjónarhornum og aðeins drepið á sérstöðu þess. Hand-
bókasafninu má skipta í handbækur og tímarit, en í
þessari grein verður aðeins fjallað um bækurnar.
Handbókasafnið - fyrir hverja?
Umönnun handbóka- og tímaritasafnsins er í höndum
Safnanefndar félagsins. Skal nefndin annast safnið
þar sem það er staðsett í húsnæði félagsins, halda
utan um safnkostinn, útlán úr safninu, viðgerðir,
móttöku safnefnis og annað sem því við kemur
(samkvæmt erindisbréfi frá 2016 og starfslýsingu
nefndarinnar). Vegna þess að nefndarmenn eru ekki
stöðugt til staðar við bókahillurnar í húsnæði félags-
ins við Nethyl, þá er þörf á aðstoð frá þeim sem þar
eru til staðar á afgreiðslutíma, þeim sem afgreiða
í versluninni og jafnvel formanni félagsins sem á
sína starfsstöð við hlið safnins. Handbókasafnið er
staðsett við millivegg á milli verslunar og skrifstofu
félagsins sem auðveldar mjög alla umgengni og þjón-
ustu við notendur.
Fyrirkomulag útlána úr safninu er hugsað þannig
að kennarar og leiðbeinendur á námskeiðum geta
afgreitt sig sjálfir (það kallast sjálfbeini). Í einni bóka-
hillunni er askja fyrir útlánaspjöldin og svo skilabakki
til að skila bókum í. Lánþeginn velur sér bók, tekur