Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2019, Page 47

Hugur og hönd - 2019, Page 47
 2019 HUGUR OG HÖND 47 útlánsspjaldið úr henni, skráir nafn sitt á það og setur það í öskjuna. Þegar hann skilar ritinu aftur þarf hann aðeins að setja það í skilabakkann (alls ekki í hilluna því að útlánsspjaldið þarf að fara aftur í ritið, annars er það áfram skráð í útlán á lánþegann). Aðeins Safnanefndarmenn setja spjöldin aftur í bækurnar og skrá um leið útlánin í útlánabók. Útlánstíminn er eftir þörfum eða á meðan námskeiðin standa yfir. Almennir félagsmenn geta fengið að skoða safnefnið á staðnum en ekki tekið að láni. Það merkir að handbókasafnið er lokað safn, það er ekki opið til almennra útlána. Gestkomandi geta þó fengið að skoða safnefnið eftir aðstæðum. Bæði formaður og afgreiðslumaður í verslun eiga oft annríkt við sín störf og þurfa notendur því að taka tillit til þess. Skráning handbókasafnsins Þegar hafist var handa við að skrá safnkostinn, sem áður hafði verið raðað í hillur eftir efni (t.d. prjóna- og heklbækur saman o.s.frv.), var gengið á hilluröðina og byrjað á því að líma vasa aftast í hvert rit og setja í hann útlánsspjald. Eftir því sem það verk vannst var tekið til við að merkja hvert rit með aðfanganúmeri (hlaupandi tala, 1, 2, 3 o.s.frv.). Þá var komið að því að skrá hvert rit og var ákveðið að gera það í rafræna ritvinnsluskrá (í Word-skjal). Nokkrir nauðsynlegir skráningarþættir voru skráðir: Aðfanganúmer, höf- undur, titill, útgáfuár og blaðsíðufjöldi, miðað er við eina línu fyrir hvern titil. Nokkur skráningaratriði til viðbótar fylgja með eftir þörfum eins og númer bindis, númer útgáfu og svo var jólaefni gefið lita- merki (rauðlitað). Svona skráning er kölluð skemmri skráning, þá eru aðeins skráðar helstu upplýsingar um hvert rit til aðgreiningar frá öðrum. Þannig skrán- ing er að sjálfsögðu ekki endanleg en hún getur gefið ýmsar upplýsingar eins og meðfylgjandi dæmi sýna.

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.