Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2019, Page 48

Hugur og hönd - 2019, Page 48
48 HUGUR OG HÖND 2019 Tafla 1. Sýnishorn af aðfangaskráningu (sjá má bókfræðileg flokkunarnúmer fremst, þá aðfanga- númer (1287 til 1294), höfundar og loks titlar með útgáfurári, blaðsíðum o.fl.): Í þessu litla sýnishorni má sjá nokkur áhugaverð rit sem flokkast í þrjá efnisflokka (746.4222 = Macramé eða hnýtingar, 746.0463 = Filt (flóki) eða handbækur um filtvinnu og loks 709 = Listasaga). Eitt ritið hefur rauða merkingu sem skýrir sig sjálf. Þegar horft er á þetta einfalda form skráningar er ekki nema eðlilegt að spurt sé hvort ekki ætti að skrá safnkostinn inn í Gegni, landskerfi bókasafna. Það hefur vissulega verið rætt og kostnaðarhliðin athuguð. Í ljós kom að safnið flokkast sem lítið safn (með 1300 titla) og eiga slík bókasöfn kost á lægra árgjaldi en stóru söfnin. Ýmsar hliðar eru á því að tengjast landskerfinu, eins og sú að fá úthlutað ein- kvæmum strikamerkjum fyrir safnið og vegna þeirra þarf sérstakan prentara sem prentar þau út á litla límmiða til þess að líma á hvert rit, svo dæmi sé tekið um faglegar kröfur sem taka verður tillit til. Í þessu sambandi er vert að nefna aðra hlið á skrán- ingu safnsins. Safnanefnd hefur sent tilboð til Háskóla Íslands um að bjóða nemanda eða nemendum í upplýs- ingafræði (áður bókasafns- og upplýsingafræði) til að taka að sér að vinna námsverkefni við safnið. Þar er um marga möguleika að ræða við bæði bækurnar og tímaritin. Framtíðin mun leiða í ljós hvaða leið verður farin og hvenær, en núna er full ástæða til að fagna því að fyrir liggur listi yfir safnefnið. Flokkun og röðun handbókasafnsins Eftir því sem aðfangalistinn lengdist var hafist handa við að flokka safnefnið í bókfræðilega efnisflokka. Til þess var notað flokkunarkerfi Deweys (Dewey Decimal Classification), en það er staðlað númerakerfi sem notað er í bókasöfnum um allan heim. Ekkert minna dugar fyrir handbókasafn HFÍ. Til hægðar- auka við flokkunina var hægt að fletta upp í Gegni til að finna flokksnúmer fyrir sameiginlega titla, sem reyndust allmargir. Þó þurfti að leita fanga víðar og jafnvel þurfti að frumflokka fjölda rita. Efnisflokkun getur verið snúið verkefni en eitt megin markmið flokkunarinnar er að rit sama efnis raðist saman. Til þess að geta raðað flokkuðu bókasafni upp þarf tákn eða merkingu á hvert rit til nota við röðunina. Til þess eru notaðir svokallaðir kjalmiðar, sem gegna því hlutverki, en þeir eru festir neðst á hvern kjöl. Kjal- miðarnir sýna flokkunarnúmerið og þrjá fyrstu stafi í nafni höfundar eða titli eftir því sem við á. Röðun eftir íslenskum nöfnum lýtur íslenskum nafnavenjum en erlendum nöfnum er raðað eftir eftirnöfnum. Í mörgum söfnum er valið að einfalda flokkunina því sum flokkunarnúmerin geta orðið mjög löng og þess vegna eru þau stytt (helst þannig að það komi ekki að sök). Sama má segja um efnisflokka sem mjög Flokk. Aðf. Höf. Titill (ártal, blaðsíðutal o.fl.) 746.4222 1287 Smith, Karol Macramé for today’s beginner. 1978 (23 s) 746.4222 1288 Houk, Pam Macramé a merry Christmas. 1979 (22 s)  JÓLA 746.0463 1289 McGavock, Deborah, CL Feltmaking. 2003 (96 s) 746.0463 1290 Aspelund, Liv Ull på nytt: Genbruk av ull. 2002 (71 s) 746.0463 1291x2 (Japanskar) Handmade felt. (Kennslubækur á japönsku). 1999, 2001 (79, 86 s) 746.0463 1292 Galle, Eva & Kari Olsen Form i ull. Toving på nye måter. 2004, 5. útg. (64 s) 746.0463 1293 Buch, Charlotte Arberjdshæfte til beklædningsfilt. 1999 (29 s) 709 1294 Broby-Johansen, Rudolf Heimslist - heimalist (Þýð. Björn Th. Björnsson). 1977 (200 s) Tafla 1

x

Hugur og hönd

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.