Hugur og hönd - 2019, Page 54
54 HUGUR OG HÖND 2019
allt land frá árinu 2011. Að leyfa fólki að finna hversu
mikil vinna og nákvæmni fer í þetta er nauðsynlegt til
að varðveita þetta fallega handbragð."
„Ég hef mikið verið að koma víravirkinu í almenna
notkun, að það sé ekki bara einskorðað við þjóðbún-
inginn. Víravirkið býður upp á margar útfærslur en
það er samt flókið þegar farið er í svona verkefni að
gera það rétt og vel. Það má ekki afskræma þetta fal-
lega handbragð og það þarf því að gera það þannig að
gamlir sem ungir séu sáttir og mér til mikillar ánægju
hafa komið gullsmiðir til mín sem hafa hrósað mér
fyrir notkun mína á víravirkinu.“
„Fyrsta sem ég gerði voru uglurnar sem urðu
gríðarlega vinsælar, núna er ég með kríur og fleiri
fugla á leiðinni. Sparikjólarnir hafa vakið mikla
lukku en það eru hringar sem ég sérsmíða á hvern og
einn giftingahring og er þeim smellt yfir hringinn til
að gera hann sparilegri. Reyndar er allt sem ég smíða
litað af víravirkinu. Flestar línurnar mínar eru útfrá
þessari aðferð, ljósberarnir og blómin mín blíð þar
mest áberandi. Ég er að komast aftur á fullt í smíðinni
núna eftir barneignir. Það hlæja margir þegar þeir
komast að því að ég stofnaði fyrirtækið 2015, eignað-
ist mitt fyrsta barn 2016 og næsta 2017 og núna er ég
að fara að hlúa að fyrirtækinu aftur þar sem börnin
eru komin í leikskóla. Það er margt á döfinni hjá mér
og ég hlakka mikið til komandi ára. Ég sérhæfi mig að
sjálfsögðu líka í þjóðbúningarskarti, bæði víravirki
og kortnsettu og ég er líka byrjuð að steypa millur.
Einnig geri ég við og smíða ef það vantar inn í gamalt
búningasilfur. Ætli markmiðið sé ekki að koma víra-
virkinu í almenna notkun, að það hætti að vera „fyrir
ömmur“ og verði frekar eitthvað klassískt sem fólk
sækist í að vera með."
K r í a . U gl a .
S p a r i k j ó l l .G u l l b rá .