Hugur og hönd


Hugur og hönd - 2019, Síða 57

Hugur og hönd - 2019, Síða 57
 2019 HUGUR OG HÖND 57 Einnig voru uppsettir vefstólar fyrir utan kennslu- stofurnar þannig að allir sem vildu gátu prófað að vefa þegar stund gafst. Eitt af aðalmarkmiðum með þessum fyrstu hand- verksbúðum var að ungt fólk kenndi ungu fólki. Af þeim sökum voru flestir kennararnir sjálfir ungir en miðað var við að þeir væru undir þrítugu. Auður Björt Skúladóttir hönnuður og höfundur bókarinnar Lopapeysuprjón var fulltrúi Íslands og kenndi hún undirstöðuatriðin í lopapeysuprjóni á tveggja daga námskeiðinu. Auk þess var hún með stutt námskeið í kaðlaprjóni þar sem hún kenndi prjón sem er eins á báðum hliðum. Það iðaði allt af lífi og gleði í skólahúsunum í Jessheim þessa fallegu ágústdaga. Ungmennin lærðu nýjar aðferðir og tækni og eignuðst nýja vini. Verkstæðin voru full af einbeittum og vinnusömum ungmennum sem bjuggu til ótrúlega margt fallegt og spennandi, og miðluðu þekkingu sinni. Allt skipulag og utanumhald af hendi Norðmanna var til fyrirmyndar, maturinn var góður og allt gert til þess að mæta ólíkum þörfum allra þátttakanda. Íslensku ungmennin á vegum Heimilisiðnaðarfélags Íslands voru á allan hátt til fyrirmyndar og unnu hörðum höndum á sínum vinnustofum við það að læra nýja tækni og aðferðir. Gaman er að segja frá því að í framhaldi af ferðinni ákvað hópurinn að hittast mánaðarlega yfir vetrar- tímann undir yfirskriftinni; Ungt fólk í handverki. Á meðal þess sem boðið hefur verið upp á er kennsla í íslenskum krosssaumi, undirstöðuatriði í hekli, fyrirlestur um prjónahönnun o.fl. auk þess sem nýir eintaklingar hafa verið boðnir velkomnir í hópinn. Í s l e n s k i h ó p u r i n n á s a m t A u ð i B j ö r t S k ú l a d ó t t u r k e n n a ra í p r j ó n i o g R a g n h e i ð i Va l ge r ð i S i g t r yg g s d ó t t u r f a ra r s t j ó ra . Ve l v i ð ra ð i t i l ú t i k e n n s l u e n h é r e r u n e m e n d u r á n á m s k e i ð i í k a ð l a p r j ó n i . No k k r i r í s l e n s k u þ á t t t a k e n d a n n a m e ð a f ra k s t u r v i n n u s t o f u í s p j a l d ve f n a ð i h j á e i s t n e s k u m k e n n a ra .

x

Hugur og hönd

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hugur og hönd
https://timarit.is/publication/1414

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.