Hugur og hönd - 2019, Side 59
2019 HUGUR OG HÖND 59
ýmist ólívugrænir eða brúnir með járnfesti. Tin og
krómsölt þykja óæskileg efni því þau eru þungmálmar
og geta verið hættuleg heilsu manna og eru lítið notuð
nú til dags. Það má þó nefna að tinfestir gefur skæra
og tæra liti, en fer frekar illa með ull. Krómfestir
mýkir ullina og gerir gula og rauða liti sterkari.
Skriflegar heimildir eru til um notkun festis frá
því á fyrstu öld eftir Krist, en rannsóknir á textíl
frá brons- og járnöld benda til þess að menn hafi
löngu fyrir þann tíma kunnað að nýta sér eiginleika
málmsalta til að festa lit.7 Auðvelt hefur verið að
fá járn úr mýrarrauða og vitað er að þannig lituðu
íslenskar konur svartan lit snemma á 19. öld.8 Einnig
er nokkuð víst að menn fengu koparsölt með því að
nota bronspotta við litunina og járn úr járnpottum. Þá
er ekki útilokað að menn hafi leyst málma upp í ediki
til notkunar við litun.9
Í norður Evrópu er vitað að litunarjafni var notaður
á víkingaöld sem festir, en hann inniheldur tiltölu-
lega hátt hlutfall af alún. Fundist hafa leifar af litun-
arjafna í Jórvík á Englandi frá víkingatíma, en jurtin
vex ekki þar, svo nokkuð víst er að hún hefur verið
flutt þangað til að nota í litun.10
Mikilvægasta jurtin
Án nokkurs vafa er jurtin Reseda luteola ein þriggja
mikilvægustu litunarjurta sem ræktaðar voru í
Evrópu fyrr á öldum. Hinar eru Isatis tinctoria fyrir
bláan lit og Rubia tinctorium fyrir rauðan lit. Jurtin
gefur skýran gulan lit sem er mjög fastur. Helsta lit-
arefnið í henni er luteolin sem tilheyrir flokki flavóna
og er eitt albesta gula litarefnið. Nokkur önnur lit-
arefni eins og apigenín er einnig í jurtinni, enda eru
litarefnin oftast fjölmörg í hverri jurt.
Jurtina er auðvelt að rækta, jafnvel á Íslandi. Hún
er tvíær, þannig að hún blómstrar á öðru ári. Fræum
er dreifsáð í mold og hulið með þunnu lagi af mold í
apríl til maí. Fræplönturnar eru prikklaðar þegar
alvöru lauf eru orðin 3-4 og plöntuna má rækta í potti
í 6-8 vikur áður en gróðursett er úti. Plönturnar eru
G a r n l i t a ð ú r L i t k o l l i . E f s t e r ga r n s e m e k k i h e f u r ve r i ð m e ð h ö n d l a ð m e ð f e s t i . Þ a r f y r i r n e ð a n e r ga r n s e m h e f u r ve r i ð m e ð -
h ö n d l a ð m e ð a l ú n i o g s í ð a n l i t a ð . Næ s t e r u p r u f a a f ga r n i s e m va r m e ð h ö n d l a ð m e ð ra b b a r b a ra f e s t i . Þ v í n æ s t e r u p r u f u r s e m
h e f u r ve r i ð b re y t t m e ð j á r n i o g k o p a r. S í ð u s t u t v æ r p r u f u r n a r e r u m e ð h ö n d l a ð a r m e ð s ý r u o g s a l m í a k i .