Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 61
2019 HUGUR OG HÖND 61
Kristín Þorsteinsdóttir gaf árið 1942 út lítið kver
"Jurtalitun, forsagnir" að áeggjan Laufeyjar Vil-
hjálmsdóttur sem veitti skrifstofunni "Íslensk ull"
forstöðu, en Laufey var umboðsaðili fyrir Íslenska
ull og Kristín litaði mikið fyrir hana.12 Kristín bætti
við eftirfarandi plöntum í sína litunarbók, allar þurfa
þær festi:
Sóleyjar - Ljósgulur og ekki sérlega fastur litur.
Krækiberjalyng - Gulbrúnir litir.
Ranfang - Sterkur gulur litur.
Spánskur kerfill - Myrrhis odorata: Hreingulur litur.
Árið 1944 kom svo út þriðja kverið um jurtalitun eftir
Matthildi Halldórsdóttur. Þar bætast við þessar jurtir
sem þurfa allar festi, nema etv. rót af Holtasóley:
Gulvíðir – Lauf tekið á haustin til að fá gulbrúnan lit.
Rjúpnalauf/Holtasóley – Gulur til dökkbrúnn úr
laufi og rót.
Snarrótarpuntur – Ljósgrænn úr blómunum
ferskum.
Hvítsmári – Skærgulur litur úr blómunum.13
Almennt má segja að jurtir sem lita skal úr séu
soðnar í eina klukkustund, blóm þó skemur. Jurtin
er síuð frá og litlögurinn látinn kólna. Þá er bandið,
sem áður hefur verið soðið í festi, látið í litlöginn og
hitað rólega upp í 70-80°C. Gott er að það taki a.m.k.
klukkutíma að koma hitanum upp því annars er
hætta á því að ullin þæfist. Ullin er soðin við 70-80°C
í eina klukkustund til að fá góðan og fastan lit og er
þá ýmist tekin upp úr litunarleginum eða látin kólna
í pottinum. Oft verður liturinn dekkri ef það er gert.
Að lokinni þessari hraðferð yfir íslenskar litun-
arjurtir er við hæfi að hvetja áhugasama til fara út
og tína jurtir til litunar. Efni eins og alún, kopar- og
járnsölt má fá í verslun Heimilisiðnaðarfélagsins í
Nethylnum.
Að lokum er rétt að hvetja jurtalitara til að safna
jurtum á ábyrgan hátt og forðast að nota skófir
vegna þess hve hægt þær vaxa og eru margar hverjar
fágætar. Nóg er af algengum plöntum sem nota má
við jurtalitun, bæði sem vaxta villtar í íslenskri nátt-
úru og einnig í görðum.
Tilvísanir
1. Samanta and Konar 2011, 32.
2. https://www.ncbi.nlm.nih.gov/pmc/articles/PMC5465813/
3. The Art and Craft of Natural Dyeing, Liles 2010.
4. Useful Herbs Of Planet Earth, M. Daniel, India 2013.
5. Analysis and biological activities of anthocyanins. Kong, Chia, Goh et al.
2003.
6. Natural Dyes, D. Cardon 2007.
7. Dyes in Early Northern Europe, M. Douglass 2014.
8. A summer in Iceland, MacKenzie 1815.
9. Dyes in Early Northern Europe, M. Douglass 2014.
10. Dyes in Early Northern Europe, M. Douglass 2014.
11. Þórdís Stefánsdótir – fylgirit II. árgangs tímaritsins 19. júní, endur-
prent ódagsett.
12. Jurtalitun, forsagnir, Kristín Þorsteinsdóttir, endurprent. 2001.
13. Um jurtalitun Matthildur Halldórsdóttir. endurprent. 1999.
14. Natural Dyes, D. Cardon 2007.