Hugur og hönd - 2019, Blaðsíða 66
66 HUGUR OG HÖND 2019
Uppskrift 2
Seinni uppskriftin er að veggteppi eða rúmá-
breiðu sem hægt er að vefa úr Einbandi (tvöföldu),
kambgarni, sænskri eða norskri ull sem er tvinnuð og
hefur u.þ.b. 2500–6000 m/kg. Lítið sést í uppistöðuna
en hún er þó ekki hulin. Mögulegt er að fá einbandið
tvinnað sérstaklega fyrir sig hjá Ístex en það er snúð-
hart og hentar því betur í uppistöðu fyrir veggstykki
en rúmábreiðu. Einnig er hægt að nota tvinnað band
frá Uppspuna.
Tækni: Íslenskt glit á 4 sköft og 3 skammel.
Stærð: Breidd á veggstykki og rúmábreiðu er 120 cm
en lengdin getur verið mismunandi.
Uppistaða: Eingirni frá Ístex, 5000 m/kg.
Ívaf: Sama og í uppistöðunni.
Skeið: 45/10, tveir þræðir í hafald og tveir þræðir í
tönn, 9 þr/cm.
Breidd í skeið: 126 cm en gert er ráð fyrir að voðin
rýrni um 5–7% þegar hún er ofin.
Þráðafjöldi: 126 x 9 = 1134 + 4 = 1138 þræðir.
Glitsporin eru þá 113,8 en þar sem tvö fyrstu og tvö
seinustu höföldin eru þrædd með fjórum þráðum
þá verða sporin 113 ef dregið er inn samkvæmt
bindimunstri 1 D. Ef dregið er inn í höföld samkvæmt
bindimunstri 1 A eða E þá eru glitsporin 141. Teppið
verður fínlegra í munstri ef notaðir eru færri þræðir
í hverju glitspori.
Fyrirdragafjöldi á cm: 9–12 þræðir, spólaðir tvö-
falt. Um 3 glitumferðir/cm liggja ofan á einskeft-
grunninum en vel þarf að gefa upp í og slá þannig
að lítið sjáist í uppistöðuna. Ýmist eru höfð 2 eða 3
einskeftufyrirdrög á milli glitumferða hér, allt eftir
smekk.
Slöngulengd: Eitt veggteppi hér er 185 cm. Gera
þarf ráð fyrir 7 cm köntum í byrjun og enda, og 75 cm
í framhnýtingar og afvikur: 185 + 14 + 75 = 274 cm
eða 2,74 metrar. Þetta er mjög ríflegt í veggteppið
og þar sem verið er að vefa eitt veggteppi þá má taka
kantana af afganginum sem verður eftir í vefstólnum
og sleppa þeim í útreikningum. Ef vefa á fleiri vegg-
teppi þá þarf ekki að bæta 75 cm nema einu sinni við
uppistöðuna: (185 x 2) + 14 + 14 + 75= 459 cm eða 4,60
metrar. Rúmábreiða þarf að vera 2,10 á lengd og því
þarf að taka tillit til þess í útreikningum ef vefa á
rúmábreiðu.
Efnisþörf í slöngu fyrir eitt veggteppi:
1138 x 2,74 = 3118 metrar eða um 620 gr. af Einbandi.
Þegar byrjað er að vefa veggteppið þá er fyrst ofinn
7–10 cm kantur á einskeftuskammelum. Í fyrstu
glitsporaumferðinni þarf að setja allar sporasam-
stæður í fyrstu munsturlínu niður eins og lýst er hér
í umfjöllun um söðuláklæðin gömlu. Þegar munstrið
hefur verið ofið er endað á því að gera 7–10 cm kant
eins og í byrjun.
Það kann að líta út fyrir að vera seinlegt að vefa
íslenskt glit en það er frekar fljótlegt þegar vefarinn
hefur náð aðferðinni til hlítar og óhætt er að hvetja
vefara og nemendur í vefnaði til að spreyta sig á
þessari fornu aðferð okkar Íslendinga við að vefa
munstur í veggmyndir eða nytjahluti.
Þessi uppskrift er úr bókinni ,,Listin að vefa“ sem
kemur út á þessu ári og er eftir höfund uppskriftar-
innar.