Fréttablaðið - 16.04.2020, Page 22

Fréttablaðið - 16.04.2020, Page 22
Hjördís Erna Þorgeirsdóttir hjordiserna@frettabladid.is Til eru dæmi um stígvél af þessu tagi á málverkum frá miðöldum en líkt og með hælaskó, voru lærahá stígvél upp- haflega fyrst og fremst hönnuð fyrir karlmenn. Riddarar, sjó- ræningjar og skyttur eru meðal þeirra sem sagðir voru klæðast slíkum stígvélum en þau þóttu til að mynda afar hentug á hest- baki og í stríði þar sem þau veittu aukna vernd. Það kemur því kannski ýmsum á óvart að lærahá stígvél voru raunar lengi vel talin afar karlmannleg. Reiðstígvél ná enn þann dag í dag oft upp að eða yfir hné, þó hið síðarnefnda sé nú sjaldgæfara. Talið er að orðið „bootleg“ sem notað er yfir ýmsan ólöglegan varning eigi uppruna sinn að rekja til karlmanna á öldum áður sem földu vínflöskur í stígvélunum sem þeir klæddust. Ný og erótísk tenging Á 19. öld fóru konur að sjást í læraháum stígvélum í leikhúsi þar sem þær léku gjarnan unga drengi og er talið að erótíska tengingin hafi sprottið þaðan. Út frá því og yfir Viktoríutímabilið urðu reimuð lærahá leðurstígvél vinsæl meðal kvenna og þá ekki síst vændiskvenna en stígvélin höfð- uðu til dæmis mjög til karlmanna með fótablæti. Stígvélin þykja enn samofin hugmyndum um kynþokka og blæti en svokallaðar „dómínur“ (e. dominatrix) klæðast þeim gjarnan. Þá muna margir Fáguð og lokkandi Lærahá stígvél hafa löngum þótt afar erótísk en í seinni tíð hafa þau þó orðið æ algengari og njóta mikilla vinsælda eins og sjá má á myndum. Camila Cabillo er glæsileg í svörtum lærastígvélum. NORDICPHOTOS/AFP Seiðandi Miley Cyrus í silfurlituðum lærastígvélum. NORDICPHOTOS/AFP Michelle Obama klæðist hér gullfallegum og glitrandi lærastígvélum frá Balenciaga en skórnir kostuðu heila 3.900 dollara. NORDICPHOTOS/AFP Taylor Swift er einstaklega leggjalöng og klæðist oft læraháum stígvélum. Hérna er hún í silfurlituðum stígvélum í stíl við silfurlitaðan kjól. MYND/GETTY Ariana Grande á sviði í hvítum læraháum stígvélum. MYND/GETTY eftir Juliu Roberts í kvikmyndinni Pretty Woman þar sem hún lék vændiskonu sem klæddist læra- háum stígvélum. Stígvélin urðu svo aftur vinsæl upp úr sjöunda áratugnum og voru þau þá oft, og eru enn, notuð við stutta kjóla og pils. Á níunda ára- tugnum urðu þau svo aftur vinsæl þegar tónlistarkonan Madonna skartaði þeim bæði í myndbönd- um og á tónleikum. Lærahá stígvél hafa svo verið áberandi undan- farin ár og eru meðal annars vin- sæl meðal tónlistarkvenna á borð við Taylor Swift, Camila Cabelo, Ariana Grande og Miley Cyrus. Almennar vinsældir stígvélanna eru raunar orðnar svo miklar að sjálf Michelle Obama, hefur meira að segja dregið slík yfir hné sér. Sjón er sögu ríkari. 6 KYNNINGARBLAÐ FÓLK 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0 F I M MT U DAG U R

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.