Fréttablaðið - 16.04.2020, Síða 29

Fréttablaðið - 16.04.2020, Síða 29
BÍLAR Á dögunum fluttum við fréttir af væntanlegum rafjepp-lingi frá Dacia sem yrði sá ódýrasti á Evrópumarkaði. Nú hafa yfirmenn Dacia staðfest að bíllinn sé á leiðinni og komi í sýningarsali á næsta ári. Bíllinn er byggður á grunni til- raunabílsins Dacia Spring Electric, sem frumsýndur var í mars. Bíllinn er bylting að mati Dacia og mun verða ódýrari en VW-Up rafbíllinn, sem hérlendis kostar 2.990.000 kr. Í raun og veru er um Renault K-ZE að ræða en hann er framleiddur fyrir Kínamarkað og er Dacia-raf bíllinn einfölduð útgáfa hans. Bílinn er lítið stærri en VW-Up en situr hærra og hefur meira jepplingsútlit. Drægi bílsins verður 200 km samkvæmt WLTP-staðlinum. Þótt Dacia hafi ekki gefið upp meira er líklegt að um sama raf búnað sé að ræða og í K-ZE en hann notar 26,8 kWh raf- hlöðu við 44 hestaf la rafmótor sem drífur framöxulinn. Stærri rafmótor gæti þó verið líklegur til að bíllinn verði samkeppnishæfur. Umboðsaðili Dacia á Íslandi er BL og þar á bæ hafa menn ekki fengið miklar upplýsingar um bílinn eins og er. Að sögn Knúts Steins Kára- sonar, merkjastjóra hjá BL, kemur bíllinn þó líklega seinni hluta næsta árs til landsins. Dacia-rafjeppinn kemur á næsta ári Markið var sett h á t t þ e g a r hönnunardeild L e x u s f é k k skipun um að hanna nýjan LC blæjubíl. „Búið til fallegasta blæju- bíl í heimi“ var dagskipunin og það var engin smá áskorun. Lexus vildi um leið halda í stíl fyrirrennarans sem unnið hafði til fjölda hönn- unarverðlauna. Ein aðaláskorun hönnuða LC Coupé var þaklína bílsins, en yfirhönnuður bílsins, Tadao Mori, útskýrir hvers vegna. „Þótt það séu margir blæjubílar til í dag eru fáir þeirra stílhreinir hvort sem toppurinn er uppi eða niðri. Það á sérstaklega við þegar toppurinn er uppi því að undir- bygging blæjunnar býr til ójafnar línur. Þess vegna var markmiðið að ná sömu fallegu línunum og í bíl með hörðum toppi,“ sagði Mori. Grindin falin Lykillinn að hinni fullkomnu þak- línu var staðsetning blæjunnar að aftanverðu sem var höfð eins fram- arlega og hægt var. Sérstök áhersla var lögð á strekkingu mjúka hlutans til að búa til jafnt yfirborð. Til þess þurfti að fela grind blæjunnar inni í henni til þess að hún sæist ekki. Einnig þurfti að setja blæjuna eins neðarlega og hægt var þegar hún fellur niður í bílinn til þess að bíll- inn sé jafn fallegur með blæjuna uppi og niðri. Þrír litir verða í boði á blæjunni, svartur, sandbrúnn eða sjávarblár, auk fjölda lita á bíl og innréttingu. Við látum svo les- endum um að dæma hvernig til tókst. Engar tækniupplýsingar um bílinn hafa verið gefnar út enn sem komið er. Lexus frumsýnir að sögn fallegasta blæjubíl í heimi Lexus-merkið frumsýndi í gær nýja gerð blæjubílsins LC Coupé með það fyrir augum að bjóða upp á fallegasta blæjubíl í heimi, en talsvert var lagt í nýja hönnun blæjunnar. Bíll- inn var frumsýndur í gær á netinu en engar tækniupplýsingar hafa verið gefnar út enn. Þótt ekki sé búið að tilkynna formlega um framleiðslu Polestar 3 hefur yfirhönnuður Polestar látið hafa eftir sér að hann verði byggður á Precept-tilrauna- bílnum. Sá bíll er væntanlegur á markað árið 2021 sagði hann meðal annars í viðtali við Autocar. Að sögn Max Missoni, yf ir- hönnuðar Polestar er útlitið það sem búast má við í framtíðinni hjá merkinu. „Næsti bíll okkar verður rafdrifinn sportjeppi, Polestar 3, og hann mun nota sumt af þeirri hönn- un sem þegar hefur sést í Precept,“ sagði Missoni. Polestar 3 kemur í kjölfar Polestar 1 og 2 sem eru báðir sportlegir fólksbílar. Missoni segir enn fremur að innréttingarnar verði lágstemmdar og meiri áhersla lögð á hreinleika og einfaldleika. Þar á hann meðal annars við að stjórn- takkar víki fyrir snertiskjáum. Bíllinn verður hærri á fjöðrun en núverandi Polestar-bílar og mun Polestar 3 keppa við bíla eins og Jagua I-Pace og Tesla Model X. Polestar 3 fær jepplingslag Fjárfestirinn Lawrence Stroll er mættur í framvarðasveit Aston Martin og var meðal annars sá sem afhjúpaði V12 Speedster sport- bílinn á dögunum. Autocar tók við- tal við Andy Palmer, forstjóra Aston Martin, á dögunum um framtíð merkisins, þar sem margt athyglis- vert kom fram. Meðal þess sem Palmer sagði var að tími væri kominn til að gera merkið að breskum Ferrari. „Við viljum sjá kaupendur bíla okkar með í að útbúa bílana eins og þeir vilja, og bíða svo eftir að bíllinn komi í þeirra hendur.“ Lawrence Stroll þekkir þetta viðskiptamódel mjög vel enda hefur hann verið umboðsmaður Ferrari í Kanada í mörg ár. Palmer talaði líka um samband merkisins við Formúlu 1. Hann sagði meðal annars að samband Aston Martin við Red Bull myndi halda áfram á þessu ári og Aston Martin myndi áfram vera styrktaraðili Red Bull út árið. „Red Bull hefur komið að hönnun Valkyrie-ofurbílsins og mun gera það áfram. Þar fyrir utan erum við að þróa samband okkar við Racing Point liðið og það er undir okkur komið hvernig við nýtum það til fullnustu,“ sagði Palmer enn frem- ur. Loks sagði Palmer að áherslan á næstu árum yrði á bílana með vél- ina fyrir miðju, og að koma þyrfti tvinnútgáfum með V6-vélinni á markað sem fyrst, til að merkið myndi standast mengunarreglu- gerðir. Aston Martin og framtíðin Lawrence Stroll er hér til vinstri að afhjúpa Speedster-sportbílinn. Polestar 3 verður með svipuðu lagi og Jagúar I-Pace sem er jepp- lingslag með lágum prófíl. Dacia-rafbíllinn verður litlu stærri en VW Up en með hærri veghæð og meira jepplingslagi. Drægið verður 200 kílómetrar samkvæmt WLTP-staðlinum. Markmiðið með Lexus LC Coupe var að búa til blæjubíl sem væri jafn fallegur með blæjuna uppi eða niðri, og því þurfti að losna við ójafnar línur. Eins og sjá má eru línurnar í stoðgrind blæjunnar vart sjáanlegar. BÍLLINN ER BYLTING AÐ MATI DACIA OG MUN VERÐA ÓDÝRARI EN VW UP RAFBÍLLINN, SEM HÉRLENDIS KOSTAR 2.990.000 KR. EIN AÐALÁSKORUN HÖNNUÐA LC COUPE VAR ÞAKLÍNA BÍLSINS OG NÁ FRAM SÖMU LÍNUM OG Í BÍL MEÐ HÖRÐUM TOPPI. Njáll Gunnlaugsson njall@frettabladid.is M E N N I N G ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21F I M M T U D A G U R 1 6 . A P R Í L 2 0 2 0

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.