Fréttablaðið - 18.04.2020, Page 16
Reglubreytingar sparkspekinga
Nú þegar allur fótbolti er stopp er gott að líta yfir regluverkið og athuga hvort breytinga sé þörf á reglunum í þessari fögru íþrótt.
Fréttablaðið fór á stúfana og fékk nokkra góða sparkspekinga til að rýna í reglurnar og leggja til nauðsynlegar breytingar á þeim.
Hjörvar Hafliðason
sparkspekingur
Ég myndi afnema markspyrnuna.
Þegar andstæðingur setur boltann
af tur f y r ir endamörk my ndi
mark vörður þá taka boltann
upp eins og við þekkjum úr
handboltanum til dæmis og þyrfti
að losa sig við hann á innan við sex
sekúndum. Því margir markmenn
eru góðir í, og ég var það sjálfur, að
gefa sér um mínútu í markspyrnu.
Stilla boltanum upp, græja einhvern
hól, græja þetta og gera hitt. Svo er
aldrei byrjað að spjalda þá fyrr en
seint í síðari hálf leik. Ég held að
þetta yrði fótboltanum til heilla.
Ásta Eir Árnadóttir
landsliðskona í fótbolta
Ég væri til í að hætta með upp
bótartíma. Gera þetta frekar eins
og þeir í bandaríska háskólabolt
anum. Þegar 10 sekúndur eru eftir
af leiknum þá hefst niðurtalning
í kallkerfinu. Margt getur gerst
á þessum 10 sekúndum og mikil
dramatík og spenna myndast, sér
staklega ef leikurinn er jafn. Tala nú
ekki um ef liðið þitt skorar á síðustu
sekúndunum. Það er veisla.
Tómas Þór Þórðarson
ritstjóri Enska boltans á Símanum
Ég varð svolítinn skotinn í þeirri
hugmynd um daginn sem ég las
um að það mætti rekja boltann
úr hor ni. Það my ndi aðeins
breyta dýnamíkinni í kringum
hornspyrnu og halda mönnum á
tánum. Það þarf ekki alltaf að gera
40 sekúndna hlé á leiknum og bíða
eftir að turnarnir mæti. Þetta yrði
ekki allt jafn fyrirsjáanlegt.
Baldur Sigurðsson
leikmaður FH og verkfræðingur
Það eru tvær breytingar sem eru
mér ofarlega í huga. Annars vegar
að fá gullmark í framlengingu aft ur
inn. Úrslitaleikurinn á milli Frakka
og Ítalíu á EM 2000 situr enn í minn
ingunni sem einn skemmti legasti
úrslitaleikur sem ég hef séð. Það er
eitthvað heillandi við það að næsta
mark tryggi sigur þegar komið er í
fram lengingu. Svo þarf að fara að
taka miklu harðar á leikaraskap hins
vegar. Komi í ljós að lið hafi hagnast
á leik araskap á að setja viðkomandi
leikmann í minnst 3 leikja bann.
Linda Þórðardóttir
í barna- og unglingaráði FH
Taka í burtu heimavallarregluna í
framlengingu í útsláttarleikjum.
Orri Freyr Rúnarsson
umsjónarmaður Sportrásarinnar
á Rás 2
Þar sem þetta er mitt eina tækifæri
til að hafa varanleg áhrif á íþróttina
ákvað ég að hugsa stórt. Fæstum
finnst skemmtilegt að horfa á leiki
sem enda 00, það er auðvitað hægt
að dást að öguðum varnarleik og
öf lugri taktík þjálfara en f lestir
kjósa frekar fjöruga markaleiki.
Þess vegna hef ég ákveðið að fram
vegis megi markmenn ekki nota
hendur ef staðan er 00 og komið
fram í uppbótartíma. Þetta myndi
leiða til þess að drepleiðinlegir
leikir myndu allavegana fá alvöru
endasprett.
Stefán Árni Pálsson
blaðamaður á Vísi
Byrjum á því að leyfa mönnum að
rífa sig á kassann eftir mark. Það er
gjörsamlega óþolandi að menn fái
gult spjald fyrir að sýna smá ástríðu.
Svo ef ég á að vera mjög drastískur
þá væri ég bara til hætta bara með
jafntefli. Framlengja og vító, alltaf.
Dómarar eru regluverðir hins fagra leiks. Það getur reynt á þá, enda sumar reglur fótboltans flóknar. Fáar reglubreytingar hafa orðið á leiknum undanfarin ár. MYND/GETTY
1 8 . A P R Í L 2 0 2 0 L A U G A R D A G U R16 S P O R T ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð
SPORT