Feykir


Feykir - 29.11.2017, Síða 4

Feykir - 29.11.2017, Síða 4
2 01 74 Botn: 3 eggjahvítur (við stofuhita) 1 dl sukrin melis 70 g möndlumjöl AÐFERÐ: Eggjahvíta, sukrin og stevia þeytt saman þar til það er orðið stíft. Möndlumjöli er bætt varlega saman við og blandað með sleif. Sett á bökunarpappír með skeið eða í sprautupoka og sprautað. Það verða u.þ.b. 20 kökur úr þessari uppskrift og þær stækka ekki í ofninum. Sett í ofn sem er 130° heitur (ekki með blæstri) og bakað í 40 mínútur. Krem: 1 dl sukrin melis 3 eggjarauður 100 g mjúkt smjör 2 tsk kakó 2 tsk instant kaffi AÐFERÐ: Öllu blandað vel saman. Kremið er sett á kökurnar þegar þær eru orðnar kaldar. Gott er að nota skeið og gera "fjall" úr kreminu. Kökurnar settar í frysti og svo þegar kremið er orðið vel kalt er þeim bara dýft ofan í bráðið súkkulaði. Uppskriftir án sykurs og hveitis UMSJÓN Fríða Eyjólfsdóttir Leitað í smiðju hjá Dísukökum Sá tími sem nú fer í hönd einkennist hjá mörgum af neyslu, ekki hvað síst í mat og drykk. Í fjölmiðlum birtast alls kyns uppskriftir og úr bakaraofnum margra heimila streyma smákökusortirnar á færibandi auk margvíslegra hnallþóra. En það mega alls ekki allir borða sykur eða hveiti, sem oftast nær er gnægð af í þessu fína bakkelsi, og þar að auki er til margt fólk sem bara alls ekki kærir sig um það. Hafdís Priscilla Magnúsdóttir er ein af þeim sem aldrei notar sykur né hveiti í bakstur og hefur ekki gert það í nokkur ár. Ástæðuna segir hún vera þá að í tengdafjölskyldu hennar er sykurýki 2 og fannst henni skemmtilegt að geta boðið upp á eftirrétti fyrir þá einstaklinga þegar þau komu í matarboð. Einnig segist hún hafa fundið það sjálf að það að taka út hveiti og sykur hafði góð áhrif á vefjagigtina sem hún sjálf er með. Hafdís notar Sukrin vörur í bakstur en þær hafa hvorki áhrif á tannheilsu né hækka blóðsykurinn. Sukrin inniheldur engin kolvetni sem líkaminn getur tekið í sig og hentar því fólki fullkomlega sem er með sykursýki eða vill fylgja lágkolvetna mataræði. Sukrin er 100% náttúruleg vara, án aukaefna, sem byggð er á sykuralkóhólanum erythritol. Erythritol kemur t.d. fyrir náttúrulega í perum, melónum og sveppum. „Það getur verið erfitt að breyta uppskriftum í hveiti og sykurlaust en þar sem ég hef gaman að prófa mig áfram í eldhúsinu finnst mér það skemmtileg áskorun. Sumar uppskriftir eru þannig að auðvelt er að skipta þessu út fyrir annað hráefni sem hentar betur en það á ekki alltaf við.” segir Hafdís en hún gaf út uppskriftabókina Dísukökur sem innihélt 100 uppskriftir árið 2014 auk þess að hafa gefið út rafrænar uppskriftabækur. Auk þess heldur hún úti vefsíðunni disukokur.is og samnefndri Facebook-síðu. Hér á eftir fylgja tvær smákökuuppskriftir frá Hafdísi. 60g mjúkt smjör 1 dl sukrin melis 1 egg 150g kókosmjöl AÐFERÐ: Egg, sukrin melis og steviu dropar þeytt vel saman í skál. Smjöri bætt við og þeytt vel saman við. Kókosmjöli bætt við og varlega blandað með sleif. Búið til litla toppa (gerði mína aðeins of stóra, fékk 15 stk) og gott að kreista vökvann aðeins úr. Setjið á bökunarpappír og í 175° heitan ofn í u.þ.b. 15 mínútur. Gott er að láta þær kólna á smá eldhúspappír. Það er mjög gott að bræða súkkulaði og setja á botninn eða toppinn á kökunum en ég var orðin súkkulaðilaus, aldrei þessu vant. Hátíð í bæ Aðventutónleikar 1 . desember Höfðaborg Hofsósi kl. 20:30 og 2. desember Miðgarði Varmahlíð kl. 20:30 SÉRSTAKUR GESTUR: Pálmi Gunnarsson FRAM KOMA: Ragnhildur Sigurlaug Guttormsdóttir, Matthildur Ingimarsdóttir, Lydía Einarsdóttir, Rannveig Sigrún Stefánsdóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir Ólafur Atli Sindrason les jólasögu HLJÓMSVEIT KVÖLDSINS SKIPA: Stéfán R. Gíslason, Einar Þorvaldsson, Margeir Friðriksson, Jóhann Friðriksson og Vilhjálmur Ingi Sigurðarson HLJÓÐ: Fúsi Ben. KYNNIR: Ólafur Atli Sindrason Miðapantanir í síma 899 9480 Miðaverð kr: 3.500 Sönglögin kynna N Ý PR EN T eh f / 1 12 01 7 SÓKNARÁÆTLUN NORÐURL ANDS VESTRA Skagfirskt tónlistarfólk syngur og leikur jólalög Kókostoppar Sörur

x

Feykir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.