Feykir


Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 6

Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 6
2 01 76 Ólína Sif (fyrir miðju) ásamt vinkonum sínum, Bryndísi Rut og Helgu Þórs, en þær flugu út og hittu Ólínu í San Fransisco. MYNDIR ÚR EINKASAFNI Upplifunin af amerísku háskólalífi ótrúlega skemmtileg Að þessu sinni er það Ólína Sif Einarsdóttir sem segir okkur frá degi í lífi brottfluttra. Ólína Sif er Króksari, dóttir Einars Gíslasonar og Helgu Dóru Lúðvíksdóttur, en hún er nú á öðru ári í grafískri hönnun við Missouri State University og býr í borginni Springfield. Lesendur ættu að kannast við Ólínu því hún var fyrir stuttu í viðtali í Feyki vegna afreka sinna með knattspyrnu- liði Missouri State sem náði glæstum árangri í vetur. „Missouri-ríki er rétt austan við miðjupunkt meginlands Bandaríkj- anna og telst vera 18. fjölmennasta fylkið. Springfield er þriðja stærsta borg ríkisins með um 170 þúsund íbúa og telst því vera 150. fjölmennasta borg Bandaríkjanna. Hitastigið er að meðal- tali um 20°C í Springfield og ríkis- skordýrið telst vera hunangsflugan. Nafn Missouri kemur frá ættflokki svokallaðra Missouri-indíána en Missouri þýðir í raun bær hinna stóru ( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is Ólína Sif Einarsdóttir / Króksari sem spilar knattspyrnu í Missouri USA Hvenær og hvernig kom það til að þú fórst til viðkomandi lands? Ég fór út í ágúst 2016. Ég hafði áður verið í sambandi við Soccer and Education USA sem hjálpuðu mér að komast í samband við Rob Brewer þjálfara sem bauð mér skólastyrk fyrir að koma og spila fótbolta fyrir kvennalið Missouri State Bears. Hvernig myndir þú lýsa venjulegum degi hjá þér? Ég vakna klukkan sjö flesta morgna og fer í morgunmat. Konan í ommelettu-stöðinni í mötuneytinu þekkir pöntunina mína sem eru tvö “over medium” egg. Síðan hjóla ég oftast í tíma, flestir áfangarnir í grafískri hönnun eru kenndir downtown svo það tekur mig u.þ.b. tíu mínútur að hjóla þangað. Ég er oftast í tímum frá átta til hádegis. Eftir hádegismat fer ég á lyft- ingaæfingu og síðan á fótboltaæfingu. Ég er oftast búin á æfingu um fjögur eða fimm leytið og restin af deginum fer í heimanám eða að hanga með liðs- félögum / herbergisfélögum. Hver er hápunktur dagsins? Ætli það sé Hversu lengi ertu í kjörbúðina frá heimili þínu? Er svona 5 mínútur að hjóla Hvað færðu þér í staðinn fyrir eina með öllu? Chick-fil-a er hættulega gott! Hvað kostar mjólkurlítrinn? $0.90 (ca 95kr) Hver er skrítnasti maturinn? Biscuits and gravy er skrítnasti (og versti) morgunmatur sem ég hef smakkað! Hvert ferðu til að gera vel við þig? Chick-fil-a, Buffalo Wild Wings eða í mall-ið. 5 á 15 sekúndum kanóa. Meðal þekktustu orginala Missouri má nefna Harry Truman fyrrum forseta, Mark Twain, Walt Disney og tónlistarmennina Chuck Berry og Nelly.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.