Feykir


Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 25

Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 25
252 01 7 Rannveig Aðalbjörg Hjartar- dóttir er fædd og uppalin á Sauðárkróki, dóttir Helgu Hauksdóttur og Hjartar Sævars Hjartarsonar. Hvað skólagöngu varðar þá lauk Rannveig grunnskólanum á Sauðárkróki og útskrifaðist sem stúdent frá Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra. „Ég byrjaði svo kennaranám við Kennara- háskóla Íslands en lauk því ekki á sínum tíma en það er eitt af verkefnunum á framtíðar- listanum,“ segir Rannveig og brosir. „En annars er ég hvað stoltust af að vera elst í stórum systkinahópi og að eiga sjálf fjögur frábær börn, þau Arnar Finnboga 12 ára, Erlu Rán 9 ára, Sigríði Emmu 4 og hálfs og Helgu Mist tæplega 8 mánaða.“ Magnús er sonur Sigríðar Magnúsdóttur og Elíasar Guðmundssonar, fæddur og uppalinn á Stóru-Ásgeirsá, þar sem þau Rannveig búa ásamt börnum og búpeningi. „Ég fæddist að vísu á Heilbrigðis- stofnuninni á Hvammstanga en annars hef ég að mestu verið hér á Stóru-Ásgeirsá. Bjó reyndar í tvö ár í Hafnafirði og lauk þar samningi í húsasmíði en var fljótur að pakka niður og selja íbúðina sem ég hafði keypt og bruna aftur í sveitina, sama dag og samningnum lauk,“ segir Magnús. Eftirminnilegur Magnús Rannveig rifjar það upp þegar hún sá Magnús fyrst Finnst notalegast að vera heima á aðfangadag VIÐTAL Páll Friðriksson Bændurnir Magnús og Rannveig á Stóru-Ásgeirsá teknir tali Brátt gengur í hönd einn mikilvægasti tími sauðfjárbænda þar sem hrútum er hleypt í ærnar og mikilvægt er, upp á afkomu búsins að gera, að vel takist til. Feykir hafði samband við unga bændur, þau Rannveigu Aðalbjörgu Hjartardóttur og Magnús Ásgeir Magnússon á Stóru- Ásgeirsá í Húnaþingi og ræddi um lífið og tilveruna í aðdraganda jóla. í sumarbúðum á Hólum í Hjaltadal. „Við vorum örugglega 10 eða 11 ára og hann var þar mættur með gítarinn sinn og söng einsöng af mikilli innlifun fyrir okkur á hverri kvöldvöku,“ segir Rannveig og glottir. „Svo æfði ég og spilaði körfubolta með strákunum einn vetur, í kringum 12-13 ára. Þá kepptum við iðulega við Kormák, sem er liðið sem Magnús æfði og spilaði með á sama tíma. Við vorum jafnvel samferða þeim í sömu rútu á törneringar. Í fámenni sem fjölmenni er erfitt að verða ekki var við Magnús svo ég man einnig vel eftir honum úr þessum ferðum.“ Eitthvað hefur minna far- ið fyrir Rannveigu þar sem Magnús man bara alls ekki eftir henni frá þessum tíma. „Við stunduðum bæði nám við Fjölbrautaskóla Norðurlands vestra og þar man ég fyrst eftir að hafa séð hana,“ rifjar Magnús upp. „En það var ekki fyrr en á Fákaflugi á Vindheimamelum árið 2010 sem við hittumst fyrir alvöru og fórum að tala saman.“ Það var svo ári síðar að Rannveig flytur frá Sauðárkróki að Stóru-Ásgeirsá með Arnar Finnboga og Erlu Rán eða í júlí 2011 en Magnús hafði frá árinu 2008 verið bóndi er hann tók við búinu af foreldrum sínum eftir að hafa lokið búfræðinámi á Hvanneyri. Þau Magnús og Rannveig eru að mestu með sauðfé og hross en mjólkurkýr voru á bænum áður en Magnús tók við. Höfðu foreldrar hans breytt fjósinu í glæsilegt hesthús. „Árið 2006 keypti ég mínar fyrstu kindur, tvo hrúta og þrjátíu gimbrar. Og þegar ég tók við árið 2008 keypti ég fjóra hrúta og 80 gimbrar til viðbótar. En þegar ég tók þau inn kom í ljós að gimbrarnar voru einungis 79 þar sem ein þeirra var tvítóla og gat því hvorki kallast gimbur né hrútur,“ segir Magnús og bætir við brosandi að hún, eða það, hefði örugglega kosið að kalla sig „gimtur“ eða eitthvað álíka. „Sauðfénu fór svo fjölgandi en nú höfum við fækkað því aðeins, eins og staðan er í sauðfjárræktinni í dag þá er eina vitið, í okkar stöðu allavega, að hafa bara gaman af þessu. Við erum til dæmis að fjölga litadýrðinni í húsunum og höfum gaman af,“ segir Magnús sem vinnur núna að mestu heima við enda nóg að gera. Annars vinnur hann öðru hvoru utan búsins við smíðastörf og rúning. Rannveig er sem stendur í fæðingarorlofi frá Grunnskóla Húnaþings vestra en áður vann hún hjá Farskólanum þar til hún fór í fæðingarorlof í byrjun árs 2013. Þá um sumarið opnuðu þau Magnús hestaleigu. „Um haustið kaupum við nokkrar geitur og sumarið 2014 opnum við „petting farm“, þ.e. opnuðum bæinn okkar fyrir þeim sem vilja heimsækja húsdýrin í sveitinni sinni og komast í snertingu við þau. Á íslensku höfum við kallað það húsdýragarð,“ útskýrir Rannveig. „Á bænum erum við með sauðfé, hesta, geitur, hænur, endur, kanínu, hunda og

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.