Feykir


Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 34

Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 34
2 01 734 Aðalsteinn múrari steinlistamaður Í bílskúrnum að Víðihlíð 35 á Sauðárkróki hefur Aðalsteinn J. Maríusson, múrari, komið sér upp góðri aðstöðu til að sinna áhugamáli sínu, steiniðju. Í hillum er mikið úrval smíðagripa, slípaðra steina og tilsniðinna glerflaskna. „Ég þorði ekki að kalla mig steinsmið þó ég sé múrari, ég kalla þetta steiniðju,“ sagði Aðalsteinn þegar Feykir leit við hjá honum einn góðviðrisdag og forvitnaðist um hvað hann bardúsar í bílskúrnum. Þegar í skúrinn er komið blasir við manni fjölbreytileg steinaflóra, ýmist slípaðir steinar sem standa sér eða hafa verið sniðnir með ákveðið hlutverk í huga. Aðalsteinn sýnir blaðamanni hvern gripinn af öðrum, úr íslensku grjóti, undirstöður fyrir borðfána, platta og hnífa svo eitthvað sé nefnt. Einnig hefur hann smíðað undir- stöður fyrir smíðagripi bróður síns sem er gullsmiður í Reykjavík. Hann segist lítið tína af steinum núorðið nema í fjörunni við Krókinn og við Höfða á Höfðaströnd en þangað fer hann mikið. Þar, segir hann, er mikið blágrýti og skemmtilegt grjót. Úr Gönguskarðsánni hafa komið fínir steinar m.a. jaspisar, og segir Aðalsteinn þá vera VIÐTAL Páll Friðriksson nokkuð frábrugðna jaspisum að austan, annar litur í þeim og áferð. Þá fær Aðalsteinn mikið af grjóti sem fólk lætur hann hafa. Og það eru ekki einungis íslenskir steinar sem Aðalsteinn fær því vinur hans einn kom færandi hendi með kassa af norskum steinum. „Ég á mikið af grjóti að austan. Það var einn gamall vinur minn, Geir Hólm, safnavörður, sem hætti með sína steinavinnslu og gaf mér restina af safninu sínu, jaspisa, ópala o.fl.,“ segir Aðalsteinn sem fékk fleira en grjótið frá vini sínum. „Það eru tíu ár síðan ég byrjaði á þessu. Geir hafði engan tíma til að sinna steinunum svo ég keypti af honum verkfærin og hann lét mig hafa steinalagerinn smátt og smátt.“ Hnífar steinaldar- mannanna Mikið er um skrautsteina fyrir austan en Aðalsteinn segir að það sé gríðarlegt úrval af fallegum steinum Aðalsteinn er listasteinsmiður. Hér heldur hann á hnífum steinaldarmannanna. MYNDIR: PF Þar sem fjörugrjótið verður að listmunum Þvottahúsið Perlan Hvammstanga Þvotta- og ræstingarþjónusta. Tökum að okkur heildarlausnir með þrif, þvott og línleigu fyrir gistingu. Þökkum viðskiptin á árinu og gleðileg jól. Óskum öllum landsmönnum nær og fjær gleðilegra jóla og farsældar á nýju ári. Þökkum viðskiptin á árinu sem er að líða. Selma & Tómas HÓTEL TINDASTÓLL - MIKLIGARÐUR info@arctichotels.is / www.arctichotels.is Sími 453 5002 / 453 6880 í Skagafirði. Hann telur að færri fari að leita að grjóti í Skagafirði en fyrir austan. Segir hann mikið um fallegt grjót í Tindastólnum. Margt skemmtilegt er að skoða hjá Aðalsteini og forláta hnífur vekur áhuga blaðamanns. „Þetta er búr- hnífurinn hans Fredda Flint- stone. Ég hef verið að búa til, að gamni mínu, bréfahnífa steinaldarmannanna. Fólk hefur gaman af að eiga þetta. Þessi er hins vegar hnífurinn hans Barneys,“ segir Aðalsteinn og sýnir annan listagrip gerðan úr steini. Vínflöskur breytast í nytjahluti Fleiri gripi tekur hann fram úr hillunum m.a. franska skútu, þó ekki í fullri stærð. Og á henni stendur áhafnarmeðlimur sem kannar dýpið. „Hér er gestaþraut,“ segir Aðalsteinn og réttir fram slípaðan stein rétt eins og um demant væri að ræða, „og spurningin er hvað eru margir fletir á honum. Ég var í viku að slípa þennan stein og ætlaði nánast aldrei að verða ánægður. Þessi er frá Skagaströnd og lítur út eins og Spákonufellið sjálft. Ætli ég verði ekki að gefa hann aftur þangað. Kannski set ég á hann fánastöng, hann er tilvalinn í það.“ Það er fleira en grjótið sem Aðalsteinn vinnur með. Fallegir glermunir bera vott um það. Hann hlær og segir að ef hann eignist góðar flöskur þá taki hann þær í sundur og búi til ýmislegt skemmtilegt eins og blómavasa, skálar og staup. Hann segir gæðin felast í þykkt glersins. „Þetta er nú ekki sölu- vara, ég gef þetta frekar. Mér finnst gaman að eiga við gler, það er gott að vinna það og er ágætt með öðru,“ segir hann. Stærstu steinarnir sem eru í smiðju Aðalsteins eru ekki ætlaðir sem hilluskraut. Þeir eru ætlaðir sem legsteinar en nokkra svoleiðis gripi hefur Aðalstein unnið. „Ég hef gert fyrir fjölskylduna, eiginlega bara fyrir mitt fólk. Í gamla daga voru settir krossar úr tré á leiðin sem endast mátulega mikið en steinarnir með koparplötu endast endalaust. Þeir hafa þó grafið letur fyrir mig í legsteinagerðinni á Ólafsfirði en koparinn fæ ég í málmsteypunni Hellu. Þeir sem eru áhugasamir um verk Aðalsteins geta heimsótt hann í bílskúrinn hvenær sem er því Aðalsteinn segir að allir séu velkomnir alltaf. Þar er hægt að kaupa af honum listaverkin hans en einnig er mögulegt að fá hann til að vinna grjót fyrir sig eftir pöntun. „Já, fólk getur komið með stein og ég get athugað hvað hægt er að gera,“ segir Aðalsteinn í lokin.Nettir leg- og minningarsteinar. Ýmislegt útbýr Aðalsteinn úr gömlum vínflöskum.

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.