Feykir


Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 16

Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 16
2 01 716 Málar bæði á kerti og kort VIÐTAL Fríða Eyjólfsdóttir Handverkskonan Dóra Í hugum margra eru kertaljós ómissandi hluti af jólastemningunni og ekki skemmir nú fyrir að kertin séu fagurlega skreytt og augnayndi. Falleg kerti eru líka tilvalin til gjafa og hvað er þá skemmtilegra en íslensk kerti með íslensku handverki. Listakot Dóru er rekið á bænum Vatnsdalshólum í mynni Vatnsdals. Þar býr listakonan Hólmfríður Dóra Sigurðardóttir ásamt eiginmanni sínum og í stofunni á bænum hefur hún vinnustofu sína þar sem hún málar á kerti og kort og ýmislegt fleira ef tími gefst til. Blaðamaður leit við hjá Dóru í þvi skyni að kynna sér örlítið framleiðsluna hjá henni. Kertin hennar Dóru eru öll hand- máluð fríhendis og hún fæst að mestu við að mála jólamunstur. Hún hefur í mörg ár selt kerti til Jólagarðsins í Eyjafjarðarsveit en nú orðið fást kertin hennar líka í Sjafnarblóminu á Selfossi, Hitt og þetta handverk á Blönduósi og í Litlu jólabúðinni í Reykjavík. Fyrir jólin fer Dóra líka á markaði í nágrenninu og selur vöru sína. Upphafið að kerta- máluninni var að fyrir 25 árum bað kertaverksmiðja, sem starfaði á Borðeyri, hana um að prófa að mála á kerti sem þar voru framleidd. Sú verksmiðja starfar ekki lengur en Dóra segist eingöngu mála á íslensk kerti frá verksmiðjunni Heimaey í Vestmannaeyjum sem séu langbestu kertin þar sem þau brenni jafnt og vel, auk þess sem hún vilji styrkja íslenska framleiðslu. Hún segist setja þau skilyrði ef komið sé með kerti til hennar að þau séu íslensk, nema um sé að ræða ferm- ingarkerti eða eitt- hvað slíkt sem fólk óskar eftir að fá málað á en þá taki hún enga ábyrgð á því hvernig kertin brenna. Dóra notar sérstaka liti sem ekki kviknar í til að mála á kertin og það tók hana langan tíma og mikla rannsóknarvinnu að finna út hvaða málning væri best. Úrvalið af kertunum er mikið og mikill fjöldi mynstra. Dóra segist vera með yfir 40 munstur og mörg þeirra séu útfærð í ýmsum litum, allt eftir því hvernig grunnurinn sé. Hún málar m.a. á aðventukerti, myndir sem tákna hvern sunnudag aðventunnar og lætur fylgja með leiðbeiningar um heiti kertanna og í hvaða röð þau komi. Svo útbýr Jólamarkaður í Árgarði 9. desember. Alls konar dýrindis varningur og handverk til sölu, kaffi og vöfflur með rjóma á 1000 kr. Frítt fyrir 12 ára og yngri. Opið frá kl. 14 - 18. Höfum gaman saman. Kvenfélag Lýtingsstaðahrepps Guðbjörg Elsa tekur við pöntunum á söluborðum í síma 867 7280 eftir kl.16 alla daga, verð fyrir borð, 1500 kr. Sendum starfsfólki og viðskiptavinum nær og fjær okkar bestu jóla- og nýárskveðjur eiginmaðurnn umbúðirnar um kertin. En það eru ekki bara kertin sem Dóra framleiðir. Einnig málar hún kort fyrir ýmis tækifæri og er nýbyrjuð að mála jólakort eftir að verslun á Blönduósi óskaði eftir því. Hún er líka lærður skrautskrifari og tekur að sér að skrifa á kort fyrir fólk og svo útbýr hún líka kort sem pakkaskraut fylgir. Þá hefur Dóra afskaplega gaman af að að mála málverk og hefur m.a. haldið samsýningu með dóttur sinni á Hvolsvelli og er með verk til sýnis á Hótel Selfossi. Hægt er að skoða verkin hennar Dóru á Facebook-síðunni Listakot Dóru. 2 01 7 b b b b b b b b b

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.