Feykir


Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 22

Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 22
2 01 722 4 eggjahvítur 3 dl (250 gr) sykur 7 dl (250 gr) kókosmjöl Rúsínur Auk þess hjúpsúkkulaði. Aðferð: Pískið eggjahvíturnar í potti með gaffli. Blandið sykri, kókosmjöli og rúsín- um saman við. Hrærið í pottinum með trésleif við vægan hita þar til deigið er mjúkt og hangir vel saman. Mótið litla, eða stóra, toppa, og setjið á smurða plötu. Bakið við 175°C í 15- 20 mínútur. Látið kólna vel áður en súkkulaðinu er smurt á. Ragnheiður Ósk Jónsdóttir Ísatvenna Ragnheiðar Toblerone ís 6 eggjarauður 1 bolli púðursykur 2 msk. flórsykur Þeytt vel saman. 1 tsk. vanilludropar 5 dl rjómi, þeyta 100 gr. Toblerone Blandað vel saman með sleif. Bismark ís 6 eggjarauður 6 msk. flórsykur 2 tsk. vanillusykur Þeytt vel saman. 6 dl rjómi, þeyta 4 dl Bismark brjóstsykur, mulinn í matvinnsluvél Blandað vel saman með sleif. Aðferð: Ísinn settur í form eða box og frystur. Uppá- haldsíssósan mín er Mars súkkulaði, brætt með smá rjóma. Hún er best volg. Það eru stelpurnar í Kiwanisklúbbnum Freyju í Skagafirði sem sjá um uppskriftir Jólafeykis að þessu sinni. Klassískar UMSJÓN Páll Friðriksson MYNDIR Óli Arnar Brynjarsson kökur í bland við grafna rjúpu og fram- andi jólaglögg er á boðstólum og að sjálfsögðu ís í eftirrétt. Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvatz Rommkúluterta Marengs: 3 eggjahvítur (ca 120 gr) 100 gr sykur 100 gr púðursykur 1 tsk lyftiduft 50 gr Rice Krispies Aðferð: Þessi uppskrift er fyrir 1 botn sem er ca 24x35 sm. Stífþeytið eggjahvíturnar við sykurinn. Myljið Rice Krispies og blandið því og lyftiduftinu varlega saman við. Þessu er síðan dreift í form (á álpappír) sem er u.þ.b. 24x35 sm eða á plötu (á smjörpappír). Bakist við 140° í 60 mín á blæstri eða við 150° með engum blæstri. Rjómafylling: 750 ml rjómi 2 msk flórsykur 1 msk vanilludropar 1 msk Stroh (valkvætt) Rommkúlukrem: 75 ml rjómi 17 rommkúlur 75 gr rjómasúkkulaði 2 eggjarauður Aðferð: Hitið rjómann, bræðið súkkulaðið og rommkúlurnar út í. Þegar súkkulaðið er alveg bráðnað, takið þá pottinn af og leyfið aðeins að kólna. Bætið síðan eggjarauðunum út í og hrærið vel. Samsetningin: Skerið u.þ.b. sjö rommkúlur og látið vökvann leka á annan marengsbotninn, saxið þær síðan og dreifið yfir. Raðið síðan bananasneiðum (ca 3-4 bananar) á botninn. Dreifið hluta af romm- kúlukreminu yfir og smyrjið síðan rjómanum á. Setjið hinn botninn ofan á og dreifið kreminu yfir. Best er að borða þessa tertu mjög kalda. Birgitte Bærendtsen Lúxus makrontoppar Kiwanisklúbburinn Freyja samanstendur af konum í Skagafirði sem vilja vinna saman að góðum málefnum sem snúa að börnum í nærsamfélaginu og öllum heiminum – í góðum félagsskap með jákvæðni að leiðarljósi. Kjörorð Kiwanis er – Hjálpum börnum heims. Sigríður Káradóttir Möndlugrautur ¾ l mjólk 1 dl hrísgrjón salt vanillusykur 4 dl þeyttur rjómi ½ dl möndluspænir 1 stór mandla Aðferð: Sjóðið saman mjólk og grjón þar til grjónin eru mjúk, hræra mikið í, bæta við salti og vanillusykri í lok suðu og kæla svo grautinn vel. Hræra rjóma og möndlu- spæni saman við grautinn þegar hann er orðin kaldur, setja möndluna ofan í og setja grautinn í fallega skál. Gaman að skreyta grautinn með litríkum ávöxtum. Karamellusósa: 125 gr sykur 2 1/2 dl sjóðandi vatn 1 ltr rjómi Aðferð: Bræða sykur á pönnu við vægan hita og hella svo sjóðandi vatninu rólega samanvið, þegar lögurinn er alveg komin saman og orðin fallega brúnn þarf að kæla hann vel. Hræra svo þeyttum rjómanum saman við sykurlögin og bera fram með möndlugrautnum. Njótið vel! „Þessi grautur er alltaf á borðum hjá mér á aðfangadag og er uppskriftin frá henni Fjólu föðurömmu minni komin. Ég beið allt árið eftir þessum dásemdar graut þegar við stórfjölskyldan komum saman á aðfangadag hjá ömmu og afa (Fjólu og Steindóri) og borðuðum rjúpur og möndlugraut.“ Freyjur standandi frá vinstri: Oddný Ragna Pálmadóttir, Ólöf Sólveig Júlíusdóttir, Steinunn Gunnsteinsdóttir, Margrét Viðarsdóttir, Sigríður Regína Valdimarsdóttir, Anna Karítas Ingvarsdóttir Sighvatz, Birgitte Bærendtsen, Ragnheiður Ósk Jónsdóttir, Sigríður Magnúsdóttir, Aldís Hilmarsdóttir, Herdís Káradóttir. Sitjandi frá vinstri: Sigríður Káradóttir og Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir. Margrét Viðarsdóttir Mömmukossar 125 gr sykur 250 gr sýróp 125 gr smjör 1 egg 500 gr hveiti 2 tsk. matarsódi ½ tsk. engifer 1 tsk. negull 1 tsk. kanill Aðferð: Hitið sykur, sýróp og smjör í potti. Kælið vel og hrærið egginu saman við. Blandið þurrefnum út í. Hnoðið og setjið í kæli yfir nótt. Fletjið deigið frekar þunnt út og stingið út. Bakið við 190°C þar til kökurnar verða millibrúnar eða í um 5-7 mínútur. Krem: 2 bollar flórsykur 1 eggjarauða 3 msk. smjör (mjúkt) 2 msk. rjómi ½ tsk. vanillusykur. Aðferð: Þeytið flórsykri og eggjarauðu saman. Blandið smjöri, rjóma og vanillusykri saman við. Þeytið vel og smyrjið svo á kökurnar og búið til samloku. Kökur að hætti Kiwaniskvenna Bakað, blandað og grafið 2 01 7

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.