Feykir


Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 21

Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 21
212 01 7 N Ý PR EN T eh f. Hátíð um áramót Tónleikar okkar verða í Menningarhúsinu Miðgarði föstudaginn 29. desember næstkomandi kl. 20:30 Miðaverð kr.4.000 Forsala aðgöngumiða í Blóma- og gjafabúðinni á Sauðárkróki og í KS Varmahlíð Karlakórinn Heimir Karlakórinn Heimir óskar Skagfirðingum og öðrum velunnurum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári með þökkum fyrir stuðning liðinna ára Fjölbreyt t og skemm tileg efnisskrá að vanda ! www.heimir.is Óskar Valmar Stebbi Tom Biggi SÓKNARÁÆTLUN NORÐURLANDS VESTRA RÚNA – ÖRLAGASAGA eftir Sigmund Erni Rúnarsson Bók Sigmundar Ernis Rúnarssonar, Rúna örlagasaga, segir frá sigrum Rúnu Einarsdóttur sem ólst upp í fásinni og náttúrufegurð í Svínadal í Húnavatnssýslu, eins og segir í kynningu. Rúna náði hæstu hæðum glæsilífs en líka dýpstu dölum tilverunnar. Hér segir ekki einungis frá sigrum Rúnu heldur líka konunni á bak við glansmyndina, einsemd hennar og sorgum, konunni sem á tímabili fannst eins og öll sund væru lokuð. Íslenskar ævisögur eru sígildar í jólapakkann Bókaútgáfur tengdar Norðurlandi vetra LEIÐIN FRÁ LANGANESI SUÐUR Í HÖF OG HEIM AFTUR eftir Sölva Sveinsson Eins og sagt er frá annars staðar í Jólablaðinu þá gefur Króksarinn, Sölvi Sveinsson, út tvær bækur fyrir þessi jól og er sagt frá bókinni Gleymdur og geymdur orðaforði á bls. 9. Síðari bókina, Leiðin frá Langanesi suður í höf og heim aftur, skráði Sölvi. Hún fjallar um viðburðaríka ævi Jóns Eggertssonar sem fæddist og ólst upp á Þórshöfn en starfaði víða, m.a. á norsku tankskipi. Heim kominn settist Jón að í Borgarnesi og rak þar efnalaug og verslun um árabil. SVAR SOFFÍU eftir Soffíu Tolstaju og Leó Tolstoj Lafleur útgáfan á Sauðárkróki stendur fyrir útgáfa tveggja bóka fyrir þessi jól. Annars vegar er um smásögur að ræða og hins vegar þýðingar. Smásögurnar fjalla að nokkrum hluta um eða gerast í handanheimum, sem fólk hefur mikinn áhuga á. Benedikt Lafleur segir að sú sem skrifi smásögurnar, Ingibjörg Elsa Elsa Björnsdóttir, eigi einnig stóran hluta í bókinni Svar Soffíu. Benedikt segir að þar sé um bókmenntavið- burð að ræða þar sem bókin innihaldi þrjár nóvellur; tvær eftir Soffíu Tolstaju, eiginkonu Leó Tolstoj, sem lágu í þagnargildi í 100 ár, og síðan Kreutzer sónötu Leós. „Ekki var ætlast til þess að konur skrifuðu mikið á þessum tíma og ekki mátti skyggja á Leó Tolstoj, sem er einn mesti skáldajöfur allra tíma,“ segir Benedikt. „Mér finnst þessar sögur Soffíu alveg vera í sama klassa og hjá eiginmanninum, og jafnvel betri. Það eru þvílík gæði á þessum sögum. Tildrög þessara sagna er Kreutzer sónata Leos Tolstoj. Hún var mjög umdeild og bönnuð í Rússlandi í upphafi en konan hans, Soffía, fór á fund ráðamanna til að freista þess að fá bann- inu aflétt,“ segir Benedikt. Það tókst og banninu var svo aflétt með þeim skilmálum að hún yrði gefin út í stórri heildarútgáfu sem enginn hefði efni á að kaupa. „Þeim skjátlaðist hrapalega því bókin seldist vel og varð vinsæl en um leið umdeild,“ segir Benedikt. „Ég vil endilega reyna að vekja athygli á þessu með tilliti til allra þeirra mála sem eru að koma upp núna, kynferðislega áreitni. Þetta er akkúrat það sem Leó tekur á í bók sinni og svo Soffía sem skrifar sögur sem svar við Kreutzer sónötu eiginmannsins. Þess vegna heitir bókin Svar Soffíu.“ Sögur Soffíu í sama klassa og hjá eiginmanninum Lafleur-útgáfan

x

Feykir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Feykir
https://timarit.is/publication/1151

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.