Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 6
2 01 76
Ólína Sif (fyrir miðju) ásamt vinkonum sínum, Bryndísi Rut og Helgu Þórs, en þær flugu út og hittu Ólínu
í San Fransisco. MYNDIR ÚR EINKASAFNI
Upplifunin af amerísku
háskólalífi ótrúlega
skemmtileg
Að þessu sinni er það Ólína Sif
Einarsdóttir sem segir okkur frá degi í
lífi brottfluttra. Ólína Sif er Króksari,
dóttir Einars Gíslasonar og Helgu Dóru
Lúðvíksdóttur, en hún er nú á öðru ári í
grafískri hönnun við Missouri State
University og býr í borginni Springfield.
Lesendur ættu að kannast við Ólínu því
hún var fyrir stuttu í viðtali í Feyki
vegna afreka sinna með knattspyrnu-
liði Missouri State sem náði glæstum
árangri í vetur.
„Missouri-ríki er rétt austan við
miðjupunkt meginlands Bandaríkj-
anna og telst vera 18. fjölmennasta
fylkið. Springfield er þriðja stærsta borg
ríkisins með um 170 þúsund íbúa og
telst því vera 150. fjölmennasta borg
Bandaríkjanna. Hitastigið er að meðal-
tali um 20°C í Springfield og ríkis-
skordýrið telst vera hunangsflugan.
Nafn Missouri kemur frá ættflokki
svokallaðra Missouri-indíána en
Missouri þýðir í raun bær hinna stóru
( DAGUR Í LÍFI BROTTFLUTTRA ) oli@feykir.is
Ólína Sif Einarsdóttir / Króksari sem spilar knattspyrnu í Missouri USA
Hvenær og hvernig kom það til að þú
fórst til viðkomandi lands? Ég fór út í
ágúst 2016. Ég hafði áður verið í
sambandi við Soccer and Education
USA sem hjálpuðu mér að komast í
samband við Rob Brewer þjálfara sem
bauð mér skólastyrk fyrir að koma og
spila fótbolta fyrir kvennalið Missouri
State Bears.
Hvernig myndir þú lýsa venjulegum degi
hjá þér? Ég vakna klukkan sjö flesta
morgna og fer í morgunmat. Konan í
ommelettu-stöðinni í mötuneytinu
þekkir pöntunina mína sem eru tvö
“over medium” egg. Síðan hjóla ég oftast
í tíma, flestir áfangarnir í grafískri
hönnun eru kenndir downtown svo það
tekur mig u.þ.b. tíu mínútur að hjóla
þangað. Ég er oftast í tímum frá átta til
hádegis. Eftir hádegismat fer ég á lyft-
ingaæfingu og síðan á fótboltaæfingu.
Ég er oftast búin á æfingu um fjögur eða
fimm leytið og restin af deginum fer í
heimanám eða að hanga með liðs-
félögum / herbergisfélögum.
Hver er hápunktur dagsins? Ætli það sé
Hversu lengi ertu í kjörbúðina frá
heimili þínu? Er svona 5 mínútur að
hjóla
Hvað færðu þér í staðinn fyrir eina
með öllu? Chick-fil-a er hættulega
gott!
Hvað kostar mjólkurlítrinn? $0.90
(ca 95kr)
Hver er skrítnasti maturinn?
Biscuits and gravy er skrítnasti (og
versti) morgunmatur sem ég hef
smakkað!
Hvert ferðu til að gera vel við þig?
Chick-fil-a, Buffalo Wild Wings eða í
mall-ið.
5 á 15
sekúndum
kanóa. Meðal þekktustu orginala
Missouri má nefna Harry Truman
fyrrum forseta, Mark Twain, Walt
Disney og tónlistarmennina Chuck
Berry og Nelly.