Feykir - 29.11.2017, Blaðsíða 23
232 01 7
Oddný Ragna Pálmadóttir
Snjókarlinn
Rjómatertubotnar,
tveir litlir eða einn stór:
6 egg
200 gr sykur
200 gr hveiti
3 tsk lyftiduft
Aðferð: Egg og sykur þeytt vel
saman, hveiti og lyftiduft
sigtað í hræruna. Bakist á
200°C í 10 mín. Þeyta ½ l
rjóma og blanda t.d. 1 dós
blönduðum ávöxtum saman
við og setja á milli.
Ég ákvað að ögra sjálfri
mér aðeins og nota sykur-
massa til að skreyta kökuna.
Ég þurfti að nota þrjá
rjómatertubotna til að ná
að gera snjókallaandlit. Afar
skemmtilegt hráefni og hægt
að nota á kökur við öll tilefni.
Sykurmassi - mömmur.is::
1 poki Haribo sykurpúðar
1 kassi Dan Sukker flórsykur (aðeins
meira ef þið litið massann)
2-2,5 msk. vatn
palmínfeiti eða kókósolía
til að smyrja áhöld og skálar
gel-matarlitir
Aðferð: Smyrjið áhöld, borð og
skálar vel með palmínfeiti.
Setjið vatn og sykurpúða
í djúpa glerskál bræðið í
örbylgjuofni í u.þ.b. 2½ mín.
Ef ætlunin er að lita massann
er best að setja matarlitinn
með vatninu annars hægt
eftir á. Hrærið í blöndunni
á 30 sekúndna fresti. Þegar
sykurpúðarnir hafa bráðnað
er flórsykri bætt út í blönduna
og þessu hnoðað saman
í höndum eða í hrærivél.
Nota skal duftið TYLOSE
til að herða sykurmassann
í laufblöð, hatt og nef eða
kaupa GUM-PASTE.
Steinunn Gunnsteinsdóttir
Grafin rjúpa m/ piparrótarsósu
4 rjúpnabringur, úrbeinaðar
1 dl gróft sjávarsalt
½ dl sykur
2 msk. dill
1 msk. ferskt rósmarin
4-5 lauf fersk salvía, söxuð smátt
1 msk. sinnepsfræ
svartur pipar úr kvörn
Aðferð: Skolið bringurnar
og þerrið. Leggið á gott fat.
Blandið saman sykri og salti.
Þekið vel yfir bringurnar
báðum megin. Blandið
saman öllum kryddunum og
þekið jafnt yfir bringurnar.
Þekið með plasti og látið
standa í kæli, helst yfir nótt.
Skerið í þunnar sneiðar og
berið fram með grilluðu
snittubrauði eða kexi.
Piparrótarsósa:
1 dós sýrður rjómi
3 msk. majónes
1 pakki piparrótarmauk
1 msk. sítrónusafi
1 msk. hunang
1 tsk. salt
„Á mínu heimili er lítið
af sætabrauði um jólin en
þeim mun meira af villibráð,
ostum og skinkum. Rjúpan
slær alltaf í gegn.“
Aldís Hilmarsdóttir
Eplasalat
Passar einstaklega vel með
hamborgarhrygg. Tekur há-
mark 30 mínútur að útbúa.
3 græn epli
1 og ½ bolli græn vínber
2 og ½ dl rjómi
1 msk. sykur
150 gr sýrður rjómi
1 tsk. sítrónusafi
Aðferð: Epli flysjuð og skorin
í litla bita, vínber skorin í
helminga. Rjómi þeyttur
með sykrinum. Sítrónusafi
hrærður út í sýrða rjómann
og því svo blandað varlega
við þeytta rjómann. Eplum
og vínberjum blandað út í og
fært í fallega skál.
Ef vill má setja valhnetu-
kjarna yfir til skrauts.
Ólöf S. Júlíusdóttir
Döðlugott
500 g döðlur, saxaðar smátt
250 g smjör
120 g púðursykur
150 g Kellogg‘s Rice Krispies
400 g Síríus rjómasúkkulaði
2 pokar Nóa lakkrískurl
Aðferð: Döðlur og smjör
brætt saman í potti. Púður-
sykurinn er bræddur með
þangað til döðlurnar eru
orðnar mjúkar. Blandið
Rice Krispies og lakkrískurli
saman við og setjið í form í
frysti í 10 mínútur. Bræðið
súkkulaðið yfir vatnsbaði.
Hellið yfir Rice Krispies-
blönduna og frystið í um
það bil 30 mínútur. Skerið í
bita, berið fram og njótið.
Herdís Káradóttir
Fjóshurð (brúnterta)
1 kg hveiti
500 gr smjörlíki
500 gr sykur
1 bolli sýróp
4 egg
2 tsk. negull
2 tsk. kanill
2 tsk. allrahanda
2 tsk. lyftiduft
2 tsk. natron
Aðferð: Hnoðað og skipt í
4 hluta, flatt út á plötu og
bakað við 250 gráður.
Krem:
1 stk. smjör
1 egg
1/2 glas vanilludropar
U.þ.b. 3 pk. flórsykur
Örlítið vatn eftir þörfum
Aðferð: Þessu er öllu
hrært saman og smurt á
kökurnar sem lagðar eru
loks saman.
Njótið vel! Móðuramma
Herdísar í Brekkukoti í
Blönduhlíð (Ingunn
Björnsdóttir frá Stóru-
Ökrum) bakaði þessa
uppskrift mikið og
kallaði brúntertuna alltaf
fjóshurð og randalínuna
hesthúshurð. „Þannig
að við tölum alltaf um
fjóshurð og hesthúshurð
þegar þessar tertur eru á
borðum,“ segir Herdís.
Sigurlaug Vordís Eysteinsdóttir
Spesíurnar hennar Sillu
250 gr íslenskt smjör, lint en ekki
brætt.
250 gr flórsykur
250 gr hakkaðar möndlur
250 gr hveiti
1 egg
Aðferð: Allt hnoðað vel saman
eða sett í hrærivél. Sívala
lengjur búnar til úr deiginu
og kældar í ísskáp. Eftir
kælingu, skorið í þunnar
kökur og bakað á blæstri
við 150–180°C, fer eftir bök-
unarofni, í 8–10 mín.
Súkkulaðidropar settir til
skrauts í hverja köku um leið
og þær koma úr ofni. Kælt
og skolað niður með ískaldri
Kökur að hætti Kiwaniskvenna
Bakað, blandað og grafið
232 01 7