Feykir - 29.11.2017, Page 35
352 01 7
-
Heilir og sælir lesendur góðir.
Þar sem þessi þáttur kemur til með að
birtast í jólablaði Feykis hefur mér dottið
í hug að tína nú til ýmsan kveðskap sem
tilheyrir þeirri hátíð. Gott að byrja með
þessum fallegu erindum eftir Kristján
Hjartarson frá Skagaströnd, sem hann kallar
Aðfangadagskvöld:
Kom Jesú, kom til mín
í kvöld ég vænti þín.
Minn hugur opinn er
minn andi fagnar þér.
Vek hátíð helga og sanna
í hjörtum allra manna.
Kom vinur, vak hjá mér
og veit mér hvíld í þér.
Þann frið sem fögnuð á
og fleyga himinþrá.
Ó, láttu ljós þitt skína
og lýsa götu mína.
Kom vinur nú í nótt
með náð og kærleiksgnótt.
Kom lífsins sigursól
með söng og heilög jól.
Kom himnabarnið bjarta
og bú í mínu hjarta.
Gaman að heyra aðeins meira frá þessu
magnaða skáldi frá Skagaströnd. Þessa
ágætu vísu kallar hann Aðventubæn.
Til vor ennþá greiðir göngu
glaður mælir „Sjá ég kem“,
hann sem fæddist fyrir löngu
í fjárhúsinu í Betlehem.
Fleiri ágætar vísur fylgja reyndar þessari
syrpu Kristjáns. Gaman að fá eina fallega
vísu í viðbót frá Skagaströnd. Höfundur er
Angantýr Jónsson. Veit því miður ekki hvern
hann hefur í huga við gerð vísunnar.
Nú er jóla komið kvöld
kyrrð í sálum inni.
Skáldið lifir enn, þó öld,
að hans gerðum finni.
Einn af afkastamiklum hagyrðingum á
Akureyri er Magnús Geir Guðmundsson.
Eitt sinn á jóladagsmorgni yrkir hann svo:
Er til jarðar drifhvít mjakast mugga
og morgun jóla birtu óðar klæðist.
Í huga mínum hjartnæm óskin fæðist,
að herir ljóssins ógni veldi skugga,
virkilega megi við því stugga,
svo von í brjósti hryggu aftur glæðist.
Næstu vísu mun Magnús Geir hafa sent
góðum vini sínum, Ríkarði B. Jónassyni á
Akureyri, á jólakorti.
Hlýja fylli huga þinn
á hátíðinnar dögum.
Ró og friður Rikki minn
ráði þínum högum.
Önnur vísa, einnig ort á jólum, kemur hér.
Í brjóstum hjörtu hraðar slá
hátíðleikans búning fá,
yls og friðar innan frá
í augum flestra nú má sjá.
Vísnaþáttur 701 Um áramótin 2000-2001 yrkir Magnús Geir svo:
Áramóta engin heit
yfir höfuð strengi,
en ýmis ljóðin, áfram veit,
ég yrki vel og lengi.
Burtu hverfur ennþá eitt
ár í tímans hafið.
Eftir skilur ekki neitt
ömurleika vafið.
Það er Þóra Jónsdóttir frá Kirkjubæ sem
yrkir svo fallega vísur á jólanótt.
Önn var á alla vegu
umferðargnýr og þröng.
En hljómur frá Drottins húsi
helgi yfir bæinn söng.
Nú þaggar alkyrr ótta
ysinn fjær og nær.
Fellur að moldar feldi
flosmjúkur jóla – snær.
Stillt blikar jólastjarna.
Stafar helgi og frið.
Vekur mildi í manna hjörtum
og minning um horfin svið.
Það er hinn góði hagyrðingur, Ingimar
Bogason á Sauðárkróki, sem gefur svo falleg
heilræði 1. janúar 1966.
Alltaf stöðugt vandinn vex
með vísindum og grufli.
Nítján hundruð sextíu og sex
situr á sprengidufli.
Fegrum lífsins sjónarsvið
og saman bökum snúum,
svo árið gefi alheimsfrið
öllum jarðarbúum.
Að lokum þessi vel gerða hringhenda frá
Inga Boga.
Við öllum vanda eru ráð
af allra handa tagi.
Í kærleiksanda eflum dáð
með alheimsbandalagi.
Ekki er að neita að fallega er oft ort til
jólanna, svo vel tekst Ingólfi Ómari upp í
næstu vísu.
Fönn þó hylji foldar svið
finn ég gleði í hjarta.
Blessuð jólin boða frið
björtum ljóma skarta.
Víst væri gaman að halda áfram að rifja upp
það sem tengist þessari miklu hátíð en nú
er ekki pláss fyrir nema lokavísu. Höfundur
hennar Bjarni Böðvarsson.
Ástin fegri, ykkar jól
andinn vermdur ljósi og hlýju.
Og hin glaða gæfu sól
greiði för á ári nýju.
Veriði þar með sæl að sinni.
/ Guðmundur
Valtýsson
Eiríksstöðum,
541 Blönduósi
Sími 452 7154
( GUÐMUNDUR VALTÝSSON ) palli@feykir.is 30
ára