Feykir - 29.11.2017, Side 36
2 01 736 2 01 736
Laufey býr í Stóru-Gröf syðri,
á Langholti í Staðarhreppi
hinum forna ásamt eiginmanni
sínum, Sigfúsi Inga Sigfússyni,
og þremur börnum þeirra;
Leifi 17 ára, Steinari Óla 13
ára og Sigurbjörgu Ingu 7
ára. Hún er fædd og uppalin í
Eyjafirðinum, á bænum Klauf
í Eyjafjarðarsveit og er elst
þriggja systkina. Systir hennar
og mágur búa nú í Klauf en
foreldrar hennar byggðu sér
hús að Syðri-Klauf þar rétt hjá.
Laufey gekk í Laugalandsskóla
og Hrafnagilsskóla og síðar í
Menntaskólann á Akureyri.
Eftir það var hún einn vetur í
Noregi sem au pair en þaðan
lá leiðin í Háskóla Íslands þar
sem hún nam íslensku.
„Þegar ég útskrifast þaðan
fékk ég sumarvinnu, sumarið
´99, hjá Máli og menningu.
Þá var hafin endurskoðun á
Íslenskri orðabók undir stjórn
Marðar Árnasonar. Ég hafði
verið í áfanga hjá Kristínu
Bjarnadóttur, sem starfaði
þarna líka, og hún kom mér
þarna inn fyrir þröskuldinn.
Þarna var ég fyrst lausráðin
en síðan þegar ég kom úr
fæðingarorlofi 2001 fékk ég
fastráðningu. Síðan hef ég
unnið við bókaútgáfu undir
nokkrum fyrirtækjaheitum,“
segir Laufey og telur upp
nokkur nöfn sem hafa verið
notuð á útgáfuna. „Fyrst undir
merkjum Máls og menningar,
svo Eddu útgáfu, þegar
bókaforlögin Mál og menning
og Vaka-Helgafell voru sam-
einuð og þá fylgdu með
útgáfumerki eins og Iðunn,
Heimskringla og fleiri. Árið
2007 var útgáfuhluti Eddu
færður yfir til JPV útgáfu og
þá varð fyrirtækið Forlagið
til,“ útskýrir Laufey. Eftir varð
Disney-útgáfa og eitthvað
fleira sem heyrir ennþá undir
Eddu útgáfu í dag en hún er nú
hluti af Árvakri.
Starfsemin fluttist vestur á
Bræðraborgarstíg þar sem JPV
útgáfa var til húsa og hefur
verið þar nánast í óbreyttri
mynd frá haustinu 2007.
Flutningur norður
Árið 2010 flytja þau Laufey
og Sigfús norður í land þar
sem hann fékk vinnu hjá
Sveitarfélaginu Skagafirði.
Laufey segir að yfirmenn
hennar hafi metið það svo að
þeir gætu unað því að hún
ynni annar staðar og segir hún
það í sjálfu sér hafa gengið
ágætlega.
„Grundvöllurinn fyrir því
er sá að ég fékk aðstöðu hér í
Safnahúsinu og þetta samfélag
að sitja í. Ég hef oft unnið
heima við líka en það er mjög
mikilvægt að hafa kaffistofuna
og geta hitt fólk. Hér er líka
ekki ósvipuð starfsemi og fyrir
sunnan að því leytinu til að
hér er ég innan um bækur alla
daga og hér er líka stunduð
bókaútgáfa eins og hjá
Sögufélaginu,“ segir Laufey en
hennar vinna felst í ritstjórn á
bókum.
Mest sinnir hún kennslu-
bókum, orðabókum og handa-
vinnubókum. „Vinnan geng-
ur út á það að taka á móti
handritum þegar þau koma
í hús, sjá um handritslestur
og halda utan um útgáfuferil
bókarinnar eftir það. Það
Flutti starfið
með sér norður
VIÐTAL
Páll Friðriksson
Laufey Leifs er ritstjóri hjá Forlaginu
Laufey Leifsdóttir starfar
sem ritstjóri hjá Forlaginu
einu stærsta útgáfufyrirtæki
landsins. Það gefur út bækur undir merkjum JPV,
Máls og menningar, Vöku-Helgafells, Ókeibóka og
Iðunnar og rekur einnig metnaðarfulla kortaútgáfu,
eins og segir á heimasíðu fyrirtækisins. Hjá Forlaginu
koma út um 150 nýir titlar ár hvert; bækur af öllu tagi
og gerðum og á ýmsum tungumálum. Það sem vekur
athygli er að starfsstöð Laufeyjar er á Sauðárkróki,
nánar tiltekið í Safnahúsinu við Faxatorg. Feykir
tók hús á Laufeyju fyrir skömmu og fræddist um
ritstjórann og starfið sem hún sinnir.
getur þurft að senda verkið í
myndritsstjórn eftir atvikum,
jafnvel láta teikna kort eða
skýringarmyndir og síðan
þarf að láta alla verkþætti
hanga saman þar til bókin fer
í umbrot. Svo fylgi ég bókinni
eftir gegnum umbrotsferlið,
þangað til hún kemur út og
er allan tímann í samstarfi við
höfunda og þá lesara sem lesa
á ýmsum stigum.“
Laufey segir meðaltíma-
lengd verkferla bóka ákaflega
misjafnan og oft séu bækur
nokkur ár í vinnslu. Þá
segir hún venjulegan feril
kennslubóka vera tvískiptan.
„Fyrst fær ritstjórinn hand-
ritið og les það og gengur
svo frá því þannig að það geti
farið í prufukennslu í eina
önn. Síðan tekur útgáfuferlið
við. Þetta eru alltaf nokkrir
mánuðir. Það er ekki óalgengt
að það líði hálft ár og jafnvel
lengra frá því að handritið
kemur í hús og þangað til
bókin fer í prentun. Það er
algengur tími,“ segir hún. „Ég
er þá ekkert ofan í bókinni
alla daga. Í nokkrar vikur er
hún í yfirlestri og svo fer hún
í umbrot og þá kem ég ekkert
nálægt henni á meðan. Þannig
að þetta er þó nokkuð langur
vinnslutími í heild sinni.“
Jólabækurnar
snemma á ferðinni
Laufey segir að Forlagið
vilji helst fá jólabækurnar
snemma frá höfundum, helst
á fyrstu mánuðum árs. Allar
jólabækur þessa árs voru
farnar í prentun snemma í
október og allar komnar út í
nóvemberbyrjun. Það er til
þess að jólabækurnar fái sinn
tíma, svo fólk hafi tíma til að
kynna sér þær og jafnvel lesa,
áður en jólin koma.
Stærsta verkefni Laufeyj-
ar þessa stundina er kennslu-
bók, Listin að vefa, eftir
Ragnheiði Þórsdóttur, list-
vefara og vefnaðarkennara
í Verkmenntaskólanum á
Akureyri sem áður bjó á
Sauðárkróki. Um er að ræða
kennslubók í vefnaði þar sem
ýmsum fróðleik er bætt við og
vefnaður er settur í sögulegt
samhengi. Sem dæmi er
fjallað um kljásteinavefstað
sem Íslendingar ófu allt sitt
vaðmál í, hvernig vefstóllinn
tók við og hvernig vefnaður
hefur þróast í tímans rás
ásamt fleiru. „Þetta er til-
tölulega flókin bók því í
henni eru bæði um hundrað
teiknaðar skýringamyndir, á
annað hundrað ljósmyndir og
fjöldi bindimynstra. Þannig
að það er ekki einföld vinnsla
að láta þetta allt passa saman.
Svo eru einhverjar fleiri
kennslubækur í bígerð,“ segir
Laufey sem hefur að ýmsu að
hyggja þessa dagana.
Bestu jólin
Nú nálgast jólin á ljóshraða
og Laufey er spurð hvort hún
hlakki til jólanna.
„Mér finnst þetta alltaf
mjög hátíðlegur tími og gott að
hafa svona tilefni til að gleðjast
og vera með fjölskyldunni. Og
hvíla sig! Það er ekkert betra
heldur en að sitja uppi í sófa
með svolítið af laufabrauði,
konfekti og góða bók. Þannig
eru jólin best.“
En hver skyldi uppáhalds
jólauppskrift Laufeyjar vera?
„Ég baka engin ósköp fyrir
jólin, en okkur krökkunum
finnst alveg nauðsynlegt
að baka nokkrum sinnum
hálfmána á aðventunni. Við
notum ævinlega hefðbundna
uppskrift úr bók Helgu Sig.
Hálfmánar með
sveskjumauki
250 g hveiti
1 tsk lyftiduft
¼ tsk hjartarsalt
½ tsk kanill
100 g smjörlíki
125 g sykur
1 egg
(1−2 msk konjak)
Hveitið er sáldrað með lyftidufti,
hjartarsalti og kanil. Smjörlíkið
mulið í, sykrinum bætt saman
við. Vætt í með eggi og konjaki,
ef vill. Hnoðað fljótt saman og
kælt. Flatt út og tekið undan glasi,
aldinmauk sett á hverja köku,
hún klemmd tvöföld saman með
fingrunum eða gaffli. Smurð
með eggi eða mjólk. Bakað
gulbrúnt við mikinn hita.
Laufey við vinnuborð sitt í Safnahúsinu á Sauðárkróki. MYND: PF
b
b b