Feykir - 14.03.2018, Qupperneq 6
6 11/2018
Okkur langar að fjalla aðeins
um það hvað við erum að gera
á Sauðárkróki. Að vera ung-
lingur á Sauðárkróki getur
bæði verið gott og vont. Við
erum tiltölulega frjáls og eigum
t.d. auðvelt með að fá vinnu ef
við viljum. En vegna þess að
þetta er lítill staður þá eru ekki
eins miklir valmöguleikar í
tómstundum og annars staðar.
Skólinn hjá okkur hefst 8:10 og
oft erum við til klukkan16:00 í
honum, stundum lengur.
Sumir unglingar stunda
tónlistarnám með skólanum og
er frábært að hægt sé að gera
það á skólatíma en ekki að
þurfa að lengja daginn eins og
var áður fyrr. Það er hægt að
stunda nokkrar íþróttir og
tómstundir á Króknum. Það
sem unglingar gera er að
stunda hefðbundnar íþróttir
eins og fótbolta, körfu og
frjálsar og svo eru nokkrir í
bogfimi og æfa skíði og
hestamennsku.
Fyrir utan íþróttir fara
unglingar líka í Hús frítímans
og margir hittast þar vikulega
þegar eitthvert starf er í gangi
en margir unglingar mæta
aldrei í Hús frítímans.
Nokkrir krakkar eru í leik-
félaginu og setja upp sýningar
þar.
Margir unglingar eru skráð-
ir í unglingadeildina Trölla og
þar er flott og skemmtilegt starf
sem hentar mjög mörgum.
Skátarnir eru með starf á
Króknum en við erum ekki
mikið að mæta þar.
Okkur finnst frábært að
hafa bíó á staðnum og reynum
alltaf að mæta þegar áhugaverð
mynd er í sýningu.
Annars erum við mikið í því
að vera úti og hitta vini þegar
Samtaka krakkar að taka fyrstu skóflustunguna að nýjum gervigrasvelli. MYNDIR: FJÖLMIÐLAVAL
Margmiðlunarval Árskóla
Hvernig er að vera
unglingur á Sauðárkróki?
Við erum nemendur í 9. og 10. bekk í Árskóla og erum í margmiðlunarvali í
skólanum og vildum vekja athygli á lífi unglinga á Sauðárkróki. Hluti af
margmiðlunarvalinu er að fara í heimsókn á fjölmiðla og sjá hvaða starf fer þar fram.
Í heimsókn okkar á Feyki fengum við tækifæri til að skrifa grein og fjalla um
unglingalífið á Sauðárkróki. Í þessari grein viljum við tala um það sem við viljum
bæta varðandi félagslíf ungmenna á Króknum. Við vonumst til þess að greinin valdi
breytingum á Króknum og bæti líf unglinga á staðnum. Við krakkarnir sem erum í
margmiðlunarvali erum, Inga Vala, Valli, Reynir, Þorgrímur, Emma og Andrea.
við getum án þess að vera að
gera neitt sérstakt. Mjög margir
unglingar eyða góðum hluta af
frítíma sínum í símanum eða
tölvunni og eiga í samskiptum
þar inni. Þetta getur verið bæði
gott og slæmt vegna þess að
krakkar geta notað þetta til að
forðast venjuleg samskipti en
þarna er líka vettvangur fyrir
marga til að eignast vini utan
Sauðárkróks og vera í sam-
skiptum við þá. Einnig spilum
við mikið af tölvuleikjum og
eru vinsælustu leikirnir Over-
watch, Fortnite, PUBG (Player-
unknown’s Battlegrounds), Call
of Duty og World Of Warcraft.
Margir unglingar eru í
vinnu með skólanum og það
helsta sem stendur okkur til
boða yfir veturinn er að: bera út
blöð, vinna í bakaríinu, vinna í
ruslinu, vinna í Bifröst, Kaup-
félagi Skagfirðinga eða Hlíðar-
kaup. Svo á sumrin er hægt að
vera í SumarTím en við getum
ekki unnið þar allt sumarið svo
stundum vantar okkur meira
að gera yfir sumarið.
Auka samgang milli skóla
Margir unglingar finna ekki
neitt við sitt hæfi og fara þá í
sífellt meira mæli í tölvurnar til
að hafa eitthvað að gera og
einangrast stundum við það.
Okkur langar að koma með
nokkrar hugmyndir til að bæta
unglingalífið/menninguna á
Sauðárkróki. Það sem við vilj-
um sjá öðruvísi eða breytingar
á er; betra net í skólann, okkur
langar í fleiri námsleiki til að
gera námið áhugaverðara; fá
fleiri enskar bækur í bókasöfn-
in, fjölbreyttari verslanir eins
og t.d. tölvu- og fataverslanir.
Í Húsi frítímans vildum við
sjá betri viðburði til að laða
fleiri krakka þangað, eins og
t.d. hæfileikakeppni og að sett
yrði á laggirnar klúbbastarf
þar sem krakkar með svipuð
áhugamál gætu komið saman
og kynnst betur í gegnum
klúbbastarfið. Eins og til dæmis
tölvuleikjaklúbbur, útivistar-
klúbbur o.þ.h.
Einnig myndum við vilja sjá
betra net í sveitirnar svo
krakkarnir þar hafi sömu
möguleika og krakkarnir á
Króknum. Við viljum líka auka
samganginn milli skóla í
Skagafirði á skólatíma. Hittast
oftar og t.d. að vinna að verk-
efnum saman. 10. bekkur gæti
hist einu sinni í mánuði í
mismunandi skólum og lært
saman. Þetta er svona það
helsta sem við vildum sjá
breytast í Skagafirði.
En það sem við myndum
vilja að yrði stóra breytingin
hérna er ekki að fá sebra-
hestadýragarð, eins og einhver
sagði, heldur finnst okkur að
unglingarnir á Króknum ættu
að eiga jafn mikinn hlut í sam-
félaginu og fullorðnir þegar
verið er að taka ákvarðanir um
málefni sem tengjast ungling-
um.
Þá finnst okkur vanta að við
séum höfð með í ráðum eða
spurð hvað okkur finnst. Að
alast upp í góðu samfélagi sem
tekur tillit til okkar gerir líf
okkar betra og eykur möguleika
okkar í framtíðinni. Unglingar
hafa fullt af hugmyndum sem
eiga erindi inn í samfélagið og
þá sérstaklega um málefni sem
snúa beint að þeim.
Krakkarnir í margmiðlunarvali og höfundar greinarinnar.