Feykir - 14.03.2018, Page 10
10 11/2018
Það er svo gaman að skoða
hvaða tískustraumar eru í
fermingarfatnaði á hverju ári. Þó
svo að margt virðist vera svipað
frá ári til árs, þegar maður rennur
fljótt yfir, þá eru það áhrifin frá
götutískunni sem gleðja augað
mitt svo mikið því þau poppa svo
mikið upp fermingartískuna frá
þessu hefðbunda.
Uppháar buxur og þröngir
langerma bolir það nýjasta
fyrir dömurnar
Í dömufatnaðinum eru alls konar
útfærslur á samfestingum ráðandi en
auðvitað fá fallegu hnésíðu kjólarnir að
vera með, hvort sem þeir eru úr blúndu
eða öðrum efnum. Þá eru kjólarnir og
samfestingarnir bæði langerma og með
hálfermum, ef þeir eru með hlírum þá
eru þeir þykkir. Það sem kemur skemmti-
lega á óvart í ár er að ekkert er um pils
heldur buxur og þá helst þessar uppháu
með beinum skálmum. Við þær eru svo
þröngir langerma bolir í margs konar
litum og efnum. Hvað litina varðar þá
eru bæði hvítur og fölbleikur í boði í
flestu en þeir litir sem ekki hafa sést
síðustu ár hjá dömunum eru dökkblár og
rauður sem mér þykir alveg einstaklega
skemmtilegir litir sem hafa verið
vinsælir í götutískunni
núna. Við þessar fallegu flíkur er svo
boðið upp á bæði flatbotna skó og allar
gerðir af hælum en það sem sker sig úr
eru sandalar með litlum kubbahæl og
ökklabandi. Þeir setja algjörlega punkt-
inn yfir i-ið, að mínu mati, dömulegir og
stöðugir fyrir óvanar stelpur til að ganga
á.
Rúllukragabolir og kragalausar
skyrtur það nýjasta fyrir
strákana
Það sem er mest áberandi fyrir ungu
strákana eru jakkaföt í dökkum litum
eða jakkafatajakkar við dökkar buxur.
Litlu herramennirnir eru svo auðvitað
ótrúlega sætir þegar þeir setja upp bindi
eða slaufu en það nýjasta í skyrtunum er
að þær eru ekki með neinum kraga, sem
gerir það að verkum að ekki er hægt að
nota aukahluti eins og bindi eða slaufu.
Með þessu verður útkoman frjálslegri og
ekki jafn hástemmd. En það nýjasta og
skemmtilegasta í strákafatnaðinum í ár
eru þunnu rúllukragapeysurnar sem
komu heitar inn síðasta haust og verður
gaman að sjá hverjir þora að leggja í það
„outfitt“, ótrúlega skemmtilegt og töff við
þröngar dökkar gallabuxur og jakka-
Samfestingar & jakkafatajakkar
Feykir skoðar fermingartískuna 2018
UMFJÖLLUN
Sigríður Garðarsdóttir
fatajakka. Skótauið fyrir strákana er svo
með svipuðu móti og í fyrra og er
töluvert þægilegra en það sem er í boði
fyrir stelpurnar en það eru strigaskór.
Til er endalaust úrval af þeim á mark-
aðnum í dag og ætti ekki að vera erfitt að
finna eitthvað sem hentar.
Aðgengið að verslunum betra
með tilkomu samfélagsmiðla
Eftir að hafa skoðað vel hvað er í boði í
fermingarfatnaðinum í ár þá verð ég að
viðurkenna að ég er svo ánægð að sjá
hvað úrvalið eykst frá ári til árs. Þá eru
þeir verslunareigendur sem eru að
bjóða upp á fermingarfatnað orðnir
duglegri við að notast við Facebook og
aðra samfélagsmiðla því þetta gerir
ferlið, að finna föt á fermingarbarnið,
svo mikið auðveldara fyrir foreldrana.
Verslunareigendur eru líka loksins að
opna augun fyrir því að það þarf líka að
veita góða þjónustu á netinu, ekki bara
inni í búðinni sjálfri því verslunar-
mynstrið er að breytast svo mikið.
Ég mæli ekki með því að panta föt af
erlendum síðum, nema þá ef þú þekkir
stærðirnar sem viðkomandi netverslun
er að bjóða upp á. Ég hef undanfarið
heyrt svo margar sögur af fólki sem
hefur ætlað að spara sér nokkra
þúsundkalla með því að taka sénsinn og
panta fermingarfötin af erlendri síðu,
kjóllinn eða jakkafötin koma og ekkert
passar, hvað þá? hver er sparnaðurinn?
Verslum heima – ekki spurning!
MYNDIR FRÁ GALLERÍ 17
www.ntc.is