Feykir - 14.03.2018, Blaðsíða 21
11/2018 21
Magnús Elí Jónsson
Tvær súpur og marengsterta frá
ömmu Láru á fermingarborðinu
Magnús Elí Jónsson verður fermdur í Sauðárkrókskirkju á pálmasunnudag, 25. mars, af
sr. Hjálmari Jónssyni. Magnús Elí á heima á Sauðárkróki og foreldrar hans eru Helena
Magnúsdóttir og Jón Hörður Elíasson.
Hvers vegna valdir þú að fermast? -Ég valdi það að fermast af því að mig langar að
staðfesta trú mína, pínu líka að fá gjafir, borða góðan mat og hitta ættingja mína.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? -Ekki rosalega mikið en eitthvað.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið háttað? -Fermingarfræðslu sem
inniheldur mikið af spjalli og messum.
Hvar verður veislan haldin? -Í Frímúrarasalnum, Sauðárkróki.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já heldur betur. Gúllassúpa
og kjúklingasúpa. Eftir matinn verður boðið upp á marengstertu frá ömmu Láru,
súkkulaðitertu og ís með fullt af nammi.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já, það verða blá jakkaföt, hvít skyrta, bindi og
svartir leðurskór.
Hver er óska fermingargjöfin? -Ég veit það ekki! Kannski nýr sími, ferð til útlanda
og pínu peningur.
Fermingin mín
Katrín Ösp Bergsdóttir
Fer í nokkrar messur á ári og
syngur stundum í kórnum
Katrín Ösp Bergsdóttir á heima á Narfastöðum í Skagafirði. Hún
verður fermd á pálmasunnudag, 25. mars, í Hofsstaðakirkju hjá sr.
Döllu Þórðardóttur. Foreldrar hennar eru Bergur Gunnarsson og
Rósa María Vésteinsdóttir.
Hvers vegna valdir þú að fermast? -Til að staðfesta skírn mína.
Hefur þú velt trúmálum mikið fyrir þér? -Já, ég hef svolítið gert það. Ég fer í messur
nokkrum sinnum á ári og syng stundum í kórnum.
Hvernig hefur fermingarundirbúningnum verið háttað? -Ég mæti í fermingarfræðslu
í skólanum og hef einnig farið í nokkrar messur hér og þar í Skagafirði.
Hvar verður veislan haldin? -Hún verður haldin í Höfðaborg á Hofsósi.
Er búið að ákveða hvað verður á matseðlinum? -Já, við erum næstum búin að
ákveða allt. Það verða nokkrir forréttir og súpa svo 2-3 aðalréttir og kökur og kaffi á
eftir. En annars kemur þetta allt í ljós.
Er búið að ákveða fermingarfötin? -Já, ég keypti kjól og jakka í Cosmo í Kringlunni
til að vera í í veislunni en svo langar mig að vera í upphlut í kirkjunni.
Hver er óska fermingargjöfin? -Mig langar í hnakk í fermingargjöf.
Hluti hráefnisins kominn ofan á botninn en bæði ostiog hvítlauksolíu á eftir að
bæta við sem er alveg ómissandi.
uðu rótargrænmeti og blá-
mygluosti. Það er víst svo með
matargerð að það er um að
gera að leyfa hugmynda-
fluginu að njóta sín.
Hráefnalisti:
800 g hveiti
500 ml vatn
25 g ferskt ger
2 msk sykur
1 msk salt
4 msk jómfrúarolía
Fyrir fyllinguna:
1 krukka gott pestó
10 skinkusneiðar
3 tómatar
200 g hvítmygluostur
200 g rjómaostur
200 g cheddar-ostur
4 msk hvítlauksolía
salt og pipar
Aðferð: Byrjið á að vekja gerið
í ylvolgu vatninu og bætið
sykrinum við. Látið standa í 15
mínútur. Blandið hveitinu,
saltinu og jómfrúarolíunni
saman. Því næst bætið þið
gervatninu við og hnoðið í 15
mínútur. Þá er deigið látið
hefast í tvær klukkustundir.
Færið deigið á hveitistráða
borðplötu þegar það hefur
þrefaldast að stærð.
Smyrjið pestóinu á botninn.
Raðið afganginum af hrá-
efninu ofan á en geymið
svolítið af cheddar-ostinum.
Reynið að hafa ostinn innst
í brauðinu þar sem hann á eftir
að bráðna og getur bleytt
deigið.
Aldrei vitlaust að setja
hvítlauksolíu!
Vefjið deiginu saman og
látið þyngdina á fyllingunni
hvíla á saumunum.
Gætið þess að brauðið sé vel
innsiglað!
Penslið með eggjablöndu.
Raspið cheddar-ost yfir.
Bakið við 180 gráður í
forhituðum ofni í þrjú kortér.
Takið brauðið úr ofninum
og látið hvíla í 20 mínútur áður
en það er skorið, þá nær
innihaldið að setjast.
Núna er kominn tími
til að njóta!
Allt tilbúið og tími kominn til að njóta
Við sjáum um veisluna
FALLEGAR OG GÓMSÆTAR FERMINGARTERTUR Á FRÁBÆRU VERÐI!
30 manns
BÓKARTERTA kr. 18.300
18 hringir f. 45-50 manns
KRANSAKAKA (ófyllt) kr. 21.500
30 manns
SÚKKULAÐIKAKA kr. 18.300
20 manns
MARENGSTERTA kr. 12.200
Gerum hvað sem ykkur dettur í hug!
T.d. sykurmassa
Ýmislegt fleira gott og girnilegt
í fermingarveisluna
Hafðu samband í s: 455 5000, bakaripanta@gmail.com - Sauðárkróksbakarí, Aðalgötu 5, SKR.
Allt eftir þínum óskum: Heitir réttir, snittur, smáréttir,
brauð og pestó, tertur af öllu tagi, risa kleinuhringir o.fl.
FERSKUR Á NETINU
Feykir.is
Hafðu samband í síma 455 7176
eða sendu Feyki póst á
feykir@feykir.is
Uppskriftina er einnig hægt að nálgast á slóðinni:
http://www.laeknirinnieldhusinu.com/2014/03/ljuffengt-fyllt-
veislubrau-og-skiafri.html