Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 29

Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 29
IF Rekstur ehf Bókhaldsþjónusta Get bætt við mig verkefni GSM 773 0980 idahildurfenger@gmail.com Dómsmálaráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti dómara sem mun hafa fasta starfsstöð við Héraðsdóm Reykjaness. Miðað er við að skipað verði í embættið frá og með 31. ágúst 2020. Umsækjendur skulu fullnægja skilyrðum 2. mgr. 29. gr. laga nr. 50/2016. Í samræmi við 4. gr. reglna nr. 620/2010 er áskilið að í umsókn komi fram upplýsingar um: 1) menntun og framhaldsmenntun, 2) reynslu af dómstörfum, 3) reynslu af lög- mannsstörfum, 4) reynslu af stjórnsýslustörfum, 5) reynslu af fræðistörfum, s.s. kennslu og öðrum akademískum störfum og upplýsingar um útgefnar ritrýndar greinar og bækur, fræðilega fyrirlestra o.s.frv., 6) reynslu af stjórnun, 7) reynslu af öðrum aukastörfum sem nýtast dómaraefni, s.s. vinnu í tengslum við undirbúning lagasetningar o.fl., 8) upplýsingar um almenna og sérstaka starfshæfni, 9) upplýs- ingar um andlegt atgervi og sjálfstæði í vinnubrögðum og 10) upplýsingar um tvo fyrrverandi/núverandi samstarfsmenn/yfirmenn sem geta veitt dómnefnd bæði munnlega og skriflega upplýsingar um störf og samstarfshæfni umsækjanda, sbr. 5. mgr. 5. gr. reglna nr. 620/2010 og 11) aðrar upplýsingar sem varpað geti ljósi á faglega eiginleika og færni umsækjanda sem máli skiptir fyrir störf héraðsdómara. Með umsókn skal fylgja eftir því sem við á: 1) afrit af prófskírteinum, 2) afrit dóma í munnlega fluttum málum sem umsækjandi hefur samið atkvæði í síðustu 12 mán- uði, 3) afrit af stefnu og greinargerð í málum sem umsækjandi hefur samið og flutt munnlega síðustu 12 mánuði, 4) afrit af úrskurðum stjórnvalda sem umsækjandi hefur samið síðustu 12 mánuði og 5) útgefin fræðirit og ljósrit af tímaritsgreinum umsækjanda. Þess er óskað að þær tímaritsgreinar sem hafa verið ritrýndar verði auðkenndar. 6) Önnur gögn sem varpa ljósi á faglega færni umsækjanda til starfa sem héraðsdómari. Umsóknir skulu berast dómsmálaráðuneytinu eigi síðar en 11. maí nk. Til þess að hraða afgreiðslu umsókna og bréfaskiptum er áskilið að umsóknir og fylgigögn berist dómsmálaráðuneytinu með rafrænum hætti á netfangið starf@dmr.is. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun liggur fyrir. Dómsmálaráðuneytinu, 24. apríl 2020. Embætti héraðsdómara laust til umsóknar Viltu flytja til Flateyrar? - Nýtt starf við Lýðskólann Lýðskólinn á Flateyri auglýsir eftir starfsmanni. Við bjóðum sveigjanlegan vinnutíma og krefjandi starfsumhverfi sem reynir á félagsfærni og áhuga á fólki. Meðal verkefna er þróun nýrrar alþjóðabrautar skólans og þátttaka í stjórnun og skipulagningu daglegs skólastarfs í samvinnu við aðra starfsmenn skólans. Mögulegt er að kennsla einstakra námskeiða verði hluti starfsins. Á litlum vinnustað göngum við öll störf eins og að aðstoða nemendur, bera stóla, raða í uppþvottavél og semja námsskrá. Við leitum að dugmiklum einstaklingi sem státar af skipu- lags- og samskiptahæfni og hefur getu til að hugsa út fyrir boxið. Við viljum ráða ábyrgðarfulla manneskju sem brennur fyrir sköpun og hefur vilja til þess að gera betur og ná lengra. Reynsla af því að vinna með ungu fólki á öllum aldri er kostur. Þekking á skólastarfi og reynsla af skipulagningu og þróun námskeiða er æskileg. Nánari upplýsingar um starfið veitir Ingibjörg Guðmunds- dóttir skólastjóri í síma 699 7535 eða í netfanginu skola- stjori@lydflat.is Umsóknir sendist á skolastjori@lydflat.is fyrir 15. maí. Ráðið verður í starfið frá 1. ágúst. Nánari upplýsingar: Ari Eyberg (ari@intellecta.is) Thelma Kristín Kvaran (thelma@intellecta.is) Umsóknarfrestur: 27. apríl 2020 Umsókn óskast fyllt út á www.intellecta.is LV hefur þjónað sjóðfélögum sínum frá 1956. Starfsmenn vinna í þágu sjóðfélaga við uppbyggingu lífeyrisréttinda og ávöxtun eigna. Markmið sjóðsins er að vera áhugaverður vinnustaður, gæta að jafnvægi milli vinnu og einkalífs og bjóða gott starfsumhverfi fyrir samhentan hóp til að vinna að krefjandi verkefnum. Nánari upplýsingar um LV má finna á: www.live.is Með umsókn skal fylgja kynningarbréf þar sem í stuttu og kjarnyrtu máli er gerð grein fyrir kostum umsækjanda sem nýtast í starfi auk ferilskrár. Á síðari stigum þarf umsækjandi jafnframt að sýna fram á að persónuleg fjármál og önnur fjárhagsleg umsýsla sé flekklaus. Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Áhugasamir einstaklingar, af öllum kynjum, eru hvattir til að sækja um. Sérfræðingur í eignastýringu Hæfniskröfur: • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem viðskipta-, hag-, eða verkfræði • Reynsla af störfum á fjármálamarkaði • Hæfni til að greina flókin fjárfestingarverkefni og kynna þau með skipulögðum hætti • Skipulögð vinnubrögð, sjálfstæði og frumkvæði • Hæfni í mannlegum samskiptum og fagleg framkoma • Gott vald á íslensku og ensku í ræðu og riti • Próf í verðbréfaviðskiptum er kostur Helstu verkefni: • Virkt samstarf við forstöðumann eignastýringar og aðra viðkomandi starfsmenn • Umsýsla eigna sjóðsins, m.a. eftirlit með ávöxtun og áhættu í eignasafni • Greining á væntri ávöxtun og áhættu eignaflokka til skemmri og lengri tíma • Greining fjárfestingartækifæra • Samskipti við aðila á fjármálamarkaði • Skýrslugerð og almenn upplýsingagjöf til stjórnenda og eftirlitsaðila Lífeyrissjóður verzlunarmanna óskar eftir að ráða öflugan einstakling til starfa í eignastýringarteymi sjóðsins. Leitað er að ábyrgum og metnaðarfullum einstaklingi með reynslu af fjármálamarkaði og mikinn áhuga á eignastýringu. Næsti yfirmaður sérfræðings er forstöðumaður eignastýringar. Í boði er áhugavert og krefjandi starf við umfangsmikið eignasafn sjóðsins. Mest lesna atvinnublað Íslands* Atvinnublaðið Sölufulltrúar: Hrannar Helgason, hrannar@frettabladid.is 550 5625, Viðar Ingi Pétursson, vip@frettabladid.is 550 5626 *Neyslukönnun Gallups 2018, allt land, 18-80 ára
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.