Fréttablaðið - 25.04.2020, Blaðsíða 21
við aldrei upplifað það jafn sterkt
hversu mikilvæg vísindin eru fyrir
líf okkar. Sem faraldsfræðingur get
ég aftur á móti ekki rannsakað hvað
sem er á Íslandi vegna fæðarinnar
og fer hluti rannsókna minna fram
í Svíþjóð þar sem rannsóknir eru
mögulegar á 10 milljónum manna.“
Við erum þrautseig þjóð
Unnur segir spurningalistann snúa
að líðan, lífsstíl og almennu heilsu-
fari fólks í faraldrinum en einnig
um seigluþættina sem gera það
að verkum að við náum að lifa af
erfiða tíma. „Við erum of boðslega
þrautseig þjóð en það eru hópar í
samfélaginu sem ég hef áhyggjur
af. Hér á landi hafa um 1.800 ein-
staklingar sýkst og hjá þeim og fjöl-
skyldum þeirra hefur ríkt óvissa um
það hvernig sjúkdómurinn þróast
og mögulega ótti um frekara smit.
Einstaklingar hafa einnig misst
vinnuna og eldra fólk hefur verið
meira og minna einangrað í tvo
mánuði. En það er líka hlutverk vís-
indanna að auðkenna hvaða leiðir
fólk hefur notað til að lifa þennan
tíma af. Hvað gerði fólk? Söng það
og birti á internetinu til að gleðja
sjálft sig og aðra? Ég sé möguleika í
því að komandi kynslóðir geti lært
af því.
Ef ég horfi yfir félagahópinn
minn er áhugavert að sjá hvernig
þetta einfalda líf passar fólki misvel,
persónuleikaþættir ráða því hvort
fólk kann vel við sig í þessu rólega
tempói eða hvort það verður
rosalega óþreyjufullt. Það verður
svo rosalega skýrt hverjir eru góðir
kandídatar í afdalalíf og hverjir eru
það ekki,“ segir Unnur og hlær.
Áfengisneysla og ofbeldi
Unnur segir aðalmálið þessa stund-
ina vera að átta sig á stöðunni en
svo vilji þau geta fylgt fólki eftir og
skoðað hvort þessi breyting á lifn-
aðarháttum eða líðan hafi áhrif á
heilsufar þess til lengri tíma. „Eru
einhverjar nýjar þarfir í heilbrigðis-
þjónustu sem þarf að koma til móts
við? Við erum nú þegar farin að sjá
aukningu símtala í hjálparsíma
Rauða krossins vegna einmana-
leika. Það er aukning á erindum til
heilsugæslu vegna ótta við smit og
fleira. Það er aukning á sölu áfengis
í Vínbúðum og það er nánast enginn
ferðamaður á landinu. Auðvitað er
minni sala á veitingastöðum svo
þetta jafnast kannski eitthvað út en
þetta eru vísbendingar um mögu-
lega aukningu í áfengisneyslu. Það
eru einnig vísbendingar um aukn-
ingu á heimilisof beldi og börn í
hættu og því er mikilvægt að skoða
alla þessa þætti.
Síðasti álíka heimsfaraldur var
árið 1918 og við hefðum gjarnan
viljað að samfélagið þá hefði haft
möguleika á að skilja áhrifin sem
hann hafði á sálarlíf og heilsufar
þjóðarinnar í víðara samhengi.
Þá var ekki þekking til þess en nú
getum við skoðað þetta og veitt
þeirri vitneskju fram til komandi
kynslóða og mögulega grætt líka
þekkingu sem nýtist okkur til að
skipuleggja heilbrigðiskerfið betur.“
Sálfræðiþjónusta fyrir alla
Eins og fyrr segir setti Unnur ásamt
teymi sínu rannsóknina Áfallasaga
kvenna af stað árið 2018 og svaraði
nánast þriðjungur kvenna hér á
landi ítarlegum spurningalista.
Unnur segir 10 til 15 ólík rannsókn-
arverkefni vera í vinnslu úr þeim
grunni. „Við erum á fullu að vinna
úr þeim gögnum sem söfnuðust og
vinna nýjar vísindagreinar um áhrif
áfalla á heilsufar kvenna.
Annar vængur í þessu er að reyna
að þróa meðferðir fyrir konur. Sér-
staklega langar okkur að geta þróað
hagkvæm meðferðarúrræði sem
eru öllum aðgengileg því sálfræði-
meðferð er dýr og ekki aðgengileg
öllum. Við höfum því verið að leggja
heilmikla vinnu í það í alþjóðlegu
samstarfi og vonandi verður hægt
að bjóða konum úr Áfallasögu
kvenna í þúsundavís að taka þátt í
slíku verkefni.“
Lamandi áhrif á annað kynið
Unnur og teymi hennar höfðu
undirbúið rannsóknina lengi en
sáu ekki fyrir Metoo-baráttuna sem
spratt upp haustið áður og hafði góð
áhrif á rannsóknina að hennar mati.
„Samfélagið var að vakna og átta sig
á því að áföll sem aldrei voru sett í
orð væru að hafa lamandi áhrif á
annað kynið. Þetta þyrfti að skoða.
Konur sem höfðu kannski aldr-
ei sagt það upphátt að þær hefðu
orðið fyrir áreitni eða of beldi voru
farnar að geta það í krafti Metoo-
byltingarinnar.“
Unnur segir að niðurstöðurnar
bendi til að yngri konur séu líklegri
en þær eldri til að tilgreina að brotið
hafi verið gegn þeim. „Hvort sem
það er þeim sem yngri eru ferskara
ÞAÐ ER ALVEG ÓTRÚLEGT
AÐ SJÁ HVAÐ KONUR HAFA
Í RAUNINNI LENT Í MIKLU.
HVERSU ALGENG ALVAR-
LEG ÁFÖLL OG OFBELDI
ERU.
Unnur er einn
okkar fremstu
vísindamanna
og beinir augum
sínum nú að
líðan þjóðar-
innar á tímum
COVID-19.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
í minni eða að þær átta sig frekar á
því að brotið hafi verið á þeim er
óljóst. En ég er þó fullviss um að
ástæðan er ekki sú að eldri konur
hafi síður orðið fyrir ofbeldi en þær
sem eru yngri.“
Óskiljanlegt en raunverulegt
„Það er alveg ótrúlegt að sjá hvað
konur hafa í rauninni lent í miklu.
Hversu algeng alvarleg áföll og
of beldi eru. Það er ákveðið menn-
ingarsjokk að átta sig á því, þrátt
fyrir að ég sé búin að vera í þessum
áfallarannsóknum töluvert lengi. Að
sjá að fjórar af hverjum tíu konum
hafi lent í alvarlegu kynferðislegu
eða líkamlegu of beldi er erfitt að
horfast í augu við. Þetta er óskiljan-
leg tölfræði en hún er raunveruleg.“
Unnur segir tölurnar ekki ósvip-
aðar í þeim löndum sem við oftast
berum okkur saman við. „Maður
hélt að í jafnréttissamfélögum,
eins og okkar, mætti maður búast
við lægri hlutföllum en það er ekki
þannig. Það segir mér bæði að við
konur í þessum samfélögum vitum
þegar á okkur er brotið en sýnir líka
að þessi af brot eiga sér stað hvar
sem er.“
Hálfgerður durtur
Unnur segist njóta sín vel í starfi og
það að skapa þekkingu sem kemur
þolendum áfalla og samfélaginu í
heild til góðs drífi hana áfram. „Svo
er bara alltaf gaman að leysa gátur
og staðfesta fyrirframgefnar til-
gátur, eða hafna þeim. Það er ótrú-
legt að horfa á gögnin sín og hugsa:
Svona er manneskjan!“
Eins og fyrr segir hefur sjaldan
verið eins mikið að gera hjá Unni
sem hafði í upphafi séð fyrir sér að
hún tæki upp prjónana á þessum
tímum og læsi allar bækurnar sem
setið hafa á hakanum. „Ég held ég
sé hálfgerður durtur þegar það er
svona mikið að gera hjá mér,“ segir
hún í léttum tón. „Það er líklega
ekkert þægilegt að vera í kringum
mig þegar ég set hornin undir mig
og hamast áfram.“
Unnur segir rytma vísindanna
seigf ljótandi og henta ekki hverj-
um sem er. „Maður er í mörg ár að
vinna að rannsókn sem svo kemur
kannski út í einni vísindagrein, sem
enginn les nema þröngur hópur sér-
vitringa. Þetta getur verið einmana-
legt nema þegar maður er í góðum
hóp eins og ég er, það gerir starfið
skemmtilegt og skapandi og biðina
þolanlegri.“
Aðspurð segist Unnur viss um að
við sem samfélag verðum ekki söm
eftir þá erfiðleika sem við nú göng-
um í gegnum. „Við verðum ekki
söm aftur. Við höfum í senn orðið
hrædd og upplifað sorgir, en einn-
ig látið reyna á þrautseigju okkar
og tileinkað okkur ýmsa tækni til
að gera hlutina á annan hátt. Svo
hræðist maður líka að það verði
ákveðin fjarlægð. Fólk talar um
að handabandið hverfi en það fer
auðvitað eftir því hversu lengi við
verðum í þessari stöðu að þurfa að
halda fjarlægð við annað fólk.
En við finnum alltaf leiðir og það
verður áhugavert að fylgjast með
því hvernig samfélagið okkar og
heimsmyndin þróast. Þessi heims-
faraldur markar svo ótrúlegan við-
snúning á mannlífi á jörðinni.“
H E L G I N ∙ F R É T T A B L A Ð I Ð 21L A U G A R D A G U R 2 5 . A P R Í L 2 0 2 0